08.05.1929
Neðri deild: 64. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í D-deild Alþingistíðinda. (3662)
93. mál, útrýming fjárkláða
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Fáein orð út af því síðasta, sem hv. þm. Borgf. sagði. Jeg skil ekki í því, þó nú kæmi fram frv. um breyt. á kláðalöggjöfinni, að þá yrði tími til að afgreiða það á þessu þingi. Það verða því engar framkvæmdir gerðar til ársins 1930, og tefur till. því ekkert þangað til. Það verður því aðeins um eitt ár að ræða, því 1931 er ætlast til, að þingið taki málið til meðferðar. En svo er till., eins og jeg hefi áður sagt, alls ekki því til fyrirstöðu, að þingið samþ. einhver bráðabirgðaákvæði, ef tími er til þess, svo það er fjarstæða, að till. tefji nokkuð framkvæmdir í þessu máli.