20.02.1929
Neðri deild: 3. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 426 í B-deild Alþingistíðinda. (367)

8. mál, lendingar- og leiðarmerki

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Um frv. þetta er hið sama að segja og þau tvö, sem síðast hafa verið hjer til umr. (Eftirlit með skipum og bátum og atvinna við siglingar). Það er samið af trúnaðarmanni atvmrn. á þessu sviði, vitamálastjóranum. Sömuleiðis hefir hann samið aths. við það. Jeg vil aðeins leyfa mjer að leggja til, að því verði vísað til 2. umr. og sjútvn. að umr. lokinni.