17.05.1929
Sameinað þing: 6. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í D-deild Alþingistíðinda. (3717)

144. mál, gengi gjaldeyris

Sigurður Eggerz:

Jeg hefi talað oft um gengismálið og skal því ekki gerast langorður að þessu sinni.

Jeg verð að játa, að í byrjun þings leit jeg svo á, að hækkunarmenn væru í ákveðnum meiri hl. á Alþingi. Hinsvegar fæ jeg nú ekki betur sjeð en að verðfestingarmenn sjeu komnir í meiri hl. Eftir yfirlýsingu hv. 1. þm. Skagf. í Nd. er sýnilegt, að Íhaldsflokkurinn er þess tilbúinn að verðfesta, þó hann sje ekki óklofinn þar. Jeg hlýddi á ræðu hv. 3. landsk. áðan og gat ekki betur skilið en hann hefði sömu aðstöðu til málsins og áður. (JBald: Jeg skildi ræðu hans öfugt). Jeg skildi hana nú þannig. Eða var það ekki rjett? Jeg spyr hv. 3. landsk. En eftir frv. tveggja íhaldsmanna um verðfesting pappírsgjaldeyris sje jeg ekki betur en þeir hafi fallist á að stöðva hækkunina. Auðvitað er það, að fallist meiri hl. þings á að stöðva, þá eru einungis smávægileg formsatriði eftir, og sje meiri hl. búinn að koma sjer saman um höfuðatriðið, þá finnur hann stefnu sinni eitthvert form.

Jeg lít svo á, að eftir þessa breyt. á afstöðu þingflokkanna stóru, þá sje hækkunin vonlaus. Hún sje svo að segja úr sögunni. Barátta fyrir hækkun krónunnar er vonlaus, þegar stóru flokkarnir taka höndum saman um að verðfesta. En einn möguleiki er þó enn fyrir hendi, sá, að nú komi mörg góð ár, meðan verið er að bíða og bræða sig saman, og jeg gæti hugsað, að stóru flokkarnir væru ekki á augabragði búnir að koma sjer saman um leiðina, og margt bendir til, að „Framsókn“ ætli sjer að geyma málið og beita því á öngla sína við næstu kosningar. Það geta komið svo ágæt ár, að erfitt verði að halda krónunni niðri. Það er hugsanlegt, að sjálf forsjónin taki í taumana og stj. ráði ekki við krónuna. Það hefir verið litið svo á hingað til, að hvorki sje hægt með lögum nje þál. að segja fyrir um hreyfingar krónunnar. Jeg verð því að segja, að sú stj., sem hefir þá trú, að krónuna megi ekki hækka, — sú stj. sje dálítið gálaus að draga málið von úr viti. Hví ekki að fara þá þinglegu leið að spyrja þjóðina, ef meiri hl. fæst ekki í þinginu? Ef svo mikið framboð verður á pundum, að Landsbankinn treystir sjer ekki til að kaupa þau nema með lækkuðu verði — og þetta hefir komið fyrir einu sinni áður —, þá er krónuhækkunin komin.

Eins og jeg tók fram í byrjun ræðu minnar, þá ætla jeg ekki að fara að draga alt gengismálið inn í umr. En jeg er alveg sannfærður um það, að eins og flestir á landi hjer mundu ekki vilja, að krónan stæði nú í 47 aurum, eru ánægðir yfir að hún skuli vera komin upp í 81½ eyri, eins mundu menn ekki síður verða glaðir á eftir, ef sá áfangi, sem eftir er, væri farinn.

Jeg álít samkomulag „Framsóknar“ og meiri hl. Íhaldsflokksins vera fjárhagslega ógæfu fyrir þjóðina. Það verður áreiðanlega skoðað sem veiklun í fjármálalífi þjóðarinnar erlendis. Það hefir í för með sjer lánsspjöll. Það dregur úr hinum sparandi kröftum með þjóðinni. Það er óhamingja fyrir þjóðina.