17.05.1929
Sameinað þing: 6. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í D-deild Alþingistíðinda. (3722)
144. mál, gengi gjaldeyris
Jón Baldvinsson:
Það er auðsjeð, að það er nokkur samdráttur milli hv. þm. V.-Ísf. og hv. 3. landsk. í þessu máli. Það byrjar svona líkt og tilhugalíf hjá pilti og stúlku, með smákarpi, en endar svo oftast með hjónabandi. Mun þess líklega ekki langt að bíða, að þessir tveir aðilar innsigli hjónabandssáttmála sinn í gengismálinu. Hv. þm. V.-Ísf. vildi nú láta líta svo út, sem ekki væri ástæða til annars fyrir okkur jafnaðarmenn en að gleðjast yfir þeim úrslitum, er þetta mál hlýtur að fá. Það er nú reyndar öðru nær en að við gerum það, þó það þýði hinsvegar ekkert að sýta út af því, þótt „stærri“ flokkarnir tveir sameinist. Vitanlega gæti jeg skýrt frá því, ef lengra væri farið út í það, af hvaða ástæðum við jafnaðarmenn teljum, að hækka beri krónuna upp í gullgengi. En í stuttu máli má segja, að aðalástæðan sje sú, að láta þær stjettir, sem töpuðu á lággengistímabilinu hagnast á hækkuninni. Og það var aðallega verkalýðurinn, sem það gekk út yfir, og því ekki nema sanngjarnt, að hann fái þess nokkra bót. Sje jeg svo ekki ástæðu til þess að halda lengra áfram umr. um þetta, en vil mælast til þess, að nafnakall verði látið fram fara um þessa till., þegar hún verður borin undir atkv.