18.05.1929
Efri deild: 74. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í D-deild Alþingistíðinda. (3731)

142. mál, dýralæknissetur í Vestfirðingafjórðungi

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Með því að hæstv. atvmrh. er ekki viðstaddur, þá ætla jeg að tala fáein orð viðvíkjandi þessu máli. Jeg skil vel þær ástæður, sem liggja til þess, að hv. þm. Snæf. flytur þessa till., því það er nú einu sinni svo, að þau hjeruð, sem hafa fengið opinberan starfsmann, vilja ógjarnan missa hann aftur. Stundum gengur þetta svo langt, að sum hjeruð vilja ekki láta leggja niður landssjóðslaunuð embætti af þeim sökum einum, að þau vilja hafa slíka embættismenn sem gjaldendur í sínu hjeraði. Nú gegnir nokkuð öðru máli með lækna, enda þykist jeg vita, að fyrir hv. þm. Snæf. vaki einungis almennar ástæður. Jeg býst við, að þar sem dýralæknhinn hefir setið í Stykkishólmi í mörg ár, áður en hann var fluttur til Borgarness, þá muni margir sakna hans í Stykkishólmi og þar í grend, enda er það mjög að vonum. Jeg skal því gera nokkra grein fyrir því, hvers vegna hæstv. atvmrh. ákvað, að dýralæknirinn skuli sitja í Borgarnesi. Síðan dýralæknir var fyrst settur í Vestfirðingafjórðungi hefir mikið breytst, sjerstaklega á sviði samgöngumálanna. Sjerstaklega er nú vegakerfið orðið svo fullkomið að Borgarnesi, að þar er að verða einskonar miðstöð milli Reykjavíkur og Suðurlands annarsvegar og hinsvegar Norður- og Vesturlands. Samgöngur eru mjög greiðar til Borgarness úr öllum hjeruðum fjórðungsins, akfær vegur til Stykkishólms yfir Kerlingarskarð, akfært upp um Borgarfjörð allan að Húsafelli og bráðlega akfært frá Borgarnesi um Dalsmynni til Dala yfir Bröttubrekku. Loks, þegar brúin á Hvítá verður fullgerð, verður akfært suður fyrir fjörð og fram fyrir Hafnarfjall. Þessi afstaða gerir það að verkum, að miklu fleiri geta náð til lœknisins í Borgarnesi með litlum tilkostnaði heldur en ef hann sæti í Stykkishólmi. Nú ber á það að líta, að þegar menn vitja dýralæknis, gegnir nokkuð öðru máli en þegar mannalæknis er vitjað. Í hinu síðara tilfelli eru þeir sóttir þegar mikið liggur á, og þá er venjulega alt lagt í sölurnar, og er þá mest undir því komið, að stutt sje að vitja læknisins. Hinsvegar eru störf dýralækna að mestu leyti í gegnum síma; þeirra er ekki vitjað beinlínis, nema þar sem ferðakostnaðurinn er ekki meiri en svo, að borgi sig að sækja lækninn, og það er vitanlega aðeins úr þeim sveitum, sem næst liggja. Nú er fjórðungurinn svo víðáttumikill, að varla kemur til mála, að dýralæknirinn sje sóttur alment, nema ef alveg sjerstaklega stendur á. Aðalstarf hans verður því tvímælalaust símleiðis, og er þá mest undir því komið, að hann sje á þeim stað, sem vel hagar til með símasambönd. Nú hagar svo til, að símalaust er yfir Breiðafjörð, og að því er jeg best veit, er símasambandið frá Vestfjörðum og suður yfir Breiðafjörð gegnum línuna yfir Holtavörðuheiði til Borgarness. Af því leiðir aftur það, að stórum auðveldara er að öllum jafnaði að ná símasambandi frá Vestfjörðum til Borgarness heldur en til Stykkishólms. Að þessu athuguðu getur mönnum tæplega blandast hugur um, hvor staðurinn er heppilegri. Og enn bætist við ein ástæða, sem jeg hygg, að hv. þm. Snæf. sje ekki kunnugt um, nefnilega það, að fyrir hæstv. atvmrh. vakti að útvega Hvanneyrarskólanum kenslu í dýralækningum, og þess vegna, m. a., var dýralæknirinn settur í Borgarnes, og var ætlast til, að hann hefði þessa kenslu í ígripum að vetrum. Sú breyt., sem verið er að gera á bændaskólunum, nefnil. að færa þá nær lífinu og láta þá veita meiri hagnýta fræðslu en verið hefir, hefir það óhjákvæmilega í för með sjer, að útvega verður bændaefnum nokkra kenslu í einföldustu atriðum dýralækninga. Það er ekki ætlunin að gera þá að lærðum dýralæknum, heldur kenna þeim undirstöðuatriði slíkra lækninga, einkum gagnvart þeim kvillum, sem oftast koma fyrir og mestu tjóni valda á búfjenaði vorum. Slíkt er engum meðalgreindum manni ofætlun að læra á tiltölulega skömmum tíma. Nú virðist einsætt, að heppilegast sje að láta dýralækninn í Vestfirðingafjórðungi hafa þessa kenslu með höndum, bæði af þeirri ástæðu, sem jeg hefi nefnt, og svo af almennum sparnaðarástæðum.

Jeg vil nú vænta þess, að þegar hv. þm. Snæf. hefir komist að raun um, að flutningur dýralæknisins var gerður með almennum hagsmunum fyrir augum, en ekki til þess að skerða hagsmuni kjördæmis hans, þá muni hann geta fallist á, að þessi till. sje ekki á nægum rökum reist. Auk þess er honum kunnugt um, að hans kjördæmi á mjög auðvelt með að vitja læknisins í Borgarnes, vegna hinna góðu vega og tíðu samgangna, sem þangað liggja, enda þótt það sje lengra að kílómetratali. Jeg tel því till. þessa til skaða og vil leggja eindregið til, að hún sje feld.