16.05.1929
Neðri deild: 70. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í D-deild Alþingistíðinda. (3746)
100. mál, rýmkun landhelginnar
Haraldur Guðmundsson:
Jeg hefi ekkert á móti því, að þessi till. verði samþ., en jeg verð að segja það strax, að jeg geri mjer litlar vonir um árangur. Jeg veit ekki betur en að áður hafi verið samþ. ályktanir svipaðar þessari, og jeg býst við, að þáv. stjórnir hafi reynt að fylgja þeim fram, en árangur hefir enginn orðið. Mjer finst þetta líka eðlilegt, því að fyrsta skilyrðið til þess, að við fáum erlendar veiðiþjóðir til að fallast á, að við færum út landhelgina, er auðvitað, að við getum sannfært þær sömu þjóðir um, að þetta sje hagur fyrir þær líka, þar eð botnvörpuveiðar á þeim svæðum spilli uppvaxtarskilyrðum fisksins. Allmikið hefir verið unnið að því að rannsaka uppvaxtarskilyrði fisksins, og menn gera sjer miklar vonir um árangur af þeim rannsóknum. Jeg held því, að líklegasta leiðin í þessu máli væri sú, sem hv. flm. drap lauslega á, nefnilega að leggja málið fyrir Þjóðabandalagið og láta fylgja skýrslu um rannsóknir þessar, uppvaxtarstöðvar fisksins og annað þar að lútandi. Jeg held, að bæði í sambandi við þetta mál og önnur sje kominn tími fyrir okkur að athugá, hvort við ættum ekki að sækja um upptöku í Þjóðabandalagið. — En með löggjöf innanlands getum við flýtt fyrir góðum árangri. Ein glegsta sönnunin fyrir því, að við værum sannfærðir um, að botnvörpuveiðarnar spiltu uppvaxtarskilyrðum fisksins, væri sú, að við bönnuðum okkar eigin togurum að veiða á uppvaxtarstöðvunum, t. d. inni á Faxaflóa. Það væri erlendum togaraeigendum sönnun, sem þeir yrðu að taka tillit til. Þá mundi auðsótt að fá hinar erlendu þjóðir til að líta sanngjörnum augum á þetta. Í landhelgismálunum eigum við mikið undir þegnskap og drengskap togaraútgerðarmannanna íslensku. Jeg skal ekki fjölyrða nú um það, hvernig þeir hafa reynst okkur til þessa. Um það eru fjölmörg vitni í dómarabókum og bókum Alþingis. En í lengstu lög ætla jeg að vona, að þeir sætti sig við þetta, ef þeir vita, að það er til góðs. Jeg skýt þessu fram, af því að jeg hefi enga trú á, að árangur náist af því einu að samþ. þessa tillögu.