16.05.1929
Neðri deild: 70. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 214 í D-deild Alþingistíðinda. (3748)

100. mál, rýmkun landhelginnar

Flm. (Pjetur Ottesen)*):

*) Ræðuhandr. óyfirlesið. Út af orðum hv. þm. Ísaf. vil jeg benda á, að höfuðnauðsyn okkar er sú, að geta sannað erlendum þjóðum, að þetta sje líka þeirra hagur. Hv. þm. var einn á meðal þeirra þdm., sem flúðu út úr d. áðan, þegar jeg var að tala. Jeg skýrði frá, að það væri með rannsóknum verið að undirbúa að geta leitt þetta í ljós, og upplýsti, að árið 1930 mundu verða dregnar vísindalegar ályktanir af þeim rannsóknum, sem hafa farið fram. Þessar vísindalegu rannsóknir eru ekki aðeins stundaðar fyrir okkur, heldur og líka fyrir aðrar þjóðir, sem berjast fyrir rýmkun landhelginnar. Jeg benti á, að það ætti að takast til athugunar, hvort við gætum ekki fengið fulltrúa í Þjóðabandalaginu.

Hv. þm. er trúlaus á, að þessi till. hafi nokkurt gildi; það liggur fyrir skýr yfirlýsing frá hans hendi um, að sókn þessa máls verði torsótt frá okkar hálfu. En jeg vona, að hann standi næstum því einn uppi í þessu efni, og hygg, að allur fjöldi þjóðarinnar trúi fast á framgang málsins og að við fáum fulla leiðrjettingu á því, þó að erfitt kunni að ganga. En það er vænlegast að trúa fast á sigur málsins og halda fast við sínar kröfur.