07.05.1929
Sameinað þing: 4. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í D-deild Alþingistíðinda. (3767)
35. mál, einkasala á steinolíu
Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Á síðasta þingi flutti jeg till. til. þál. um sama efni og þessi er. Hún var flutt snemma á þingi, en komst loks að á næstsíðasta klukkutíma síðasta þingfundarins. Þessari þáltill. var útbýtt í þingbyrjun, en hún fær þó fyrst nú að koma til umr.
Af þessum undirtektum Alþingis í fyrra og nú mætti ætla, að hjer væri um eitthvert hjegómamál að ræða. En því fer fjarri. Þetta mál er eitthvert mesta stórmálið, sem Alþingi hefir til meðferðar, og varðar að miklu leyti afkomu eins meginþáttarins í atvinnulífi okkar Íslendinga, vjelbátaútvegsins. Og raunar meira. Samkvæmt Hagskýrslum fyrir árið 1927 voru hjer 190 bátar undir 12 smálestum og 185 bátar yfir 12 smálestir. Sjómennirnir á þessum skipum voru 4500. Þessi skipastóll hefir vaxið síðan og fer vaxandi með ári hverju. Allur þessi útvegur á mikið undir því, með hvaða kjörum olían er seld til bátanna. Enn má gæta þess, að á síðastliðnu ári voru hjer um 800 bílar. Má gera ráð fyrir því, að þeim fjölgi á þessu ári upp í 1000. Bílarnir eru eitthvert þýðingamesta samgöngutækið á landi og kostnaðurinn við notkun þeirra fer mikið eftir því, við hvaða verði kaupa verður eldsneytið, sem til þeirra þarf. Á síðasta ári voru fluttar inn 42 þús. tunnur af steinolíu og bensíni, og miðað við það, má búast við, að nú verði fluttar inn 50 þús. tunnur. Það liggur því í augum uppi, að hjer er um geysilega mikilvægt fjárhagsatriði að ræða.
Í fyrra flutti jeg ítarlega ræðu um þetta mál og rakti þar sögu steinolíuverslunarinnar hjer á Íslandi. Skal jeg ekki þreyta menn með því að endurtaka það, sem jeg þá sagði, en verð þó að rifja upp aðaldrættina. Árið 1912, er stj. með 1. heimilað að takast á hendur einkasölu á steinolíu. Þetta er ítrekað árið 1917 og lögunum þá jafnframt breytt lítillega. En það er ekki fyrr en 5 árum seinna, eða 1922, að stj. ræðst í það að nota heimildina.
Hver var nú ástæðan til þess að þessi heimild var veitt? Hún var sú, að olíufjelagið, sem hjer var búið að hreiðra um sig, hafði veitt landsmönnum svo þungar búsifjar, að sjálfsagt þótti að veita stj. heimildina, til þess að losna við okur og einokun steinolíufjelagsins danska. Á þeim 10 árum, sem liðu frá því að stj. var veitt þessi heimild og þangað til hún notaði hana, græddi danska olíufjelagið stórfje á olíuversluninni. Öll þessi ár er sífelt kvartað undan þeim ókjörum, sem fjelagið beitti viðskiftamennina, en aldrei fjekst stj. til að nota heimildina.
Hvað olli því, að stj. neytti ekki heimildar einkasölulaganna, þó að allur almenningur væri afaróánægður með ástandið? Því er auðsvarað. Það stafaði af því, hve áhrif olíufjelagsins voru rík í landinu, hversu mikil ítök það átti meðal ráðandi stjórnmálamanna. Það er ekki fyrr en ókjörin ganga fram af öllum landsmönnum, að stj. notar heimildina. Um eitt skeið var það vafasamt, vegna yfirfærsluörðugleika, að hægt mundi að fá olíu hingað til lands. Þetta var á „hápunkti dýrtíðarinnar“. Forstjóri olíufjelagsins sagði þá við stj., að fjelagið mundi geta útvegað olíu, en hann bætti við: „Við ráðum þá verðinu sjálfir“. Stj. mátti ekki hafa afskifti af því, hvaða gróða fjelagið tæki af olíunni. Þessi ósvífni gekk fram af stjórninni og varð til þess, að Fiskifjelaginu var hjálpað til að útvega farm af steinolíu, og varð það til þess að sýna landsmönnum, að hægt var að komast af án olíufjelagsins og fá olíuna langtum ódýrari jafnframt. Jeg held, að þessi atburður hafi valdið því öðru fremur, að loks 1922 afrjeð stj. að taka upp einkasölu á steinolíu. Þar með var Landsverslunin sett á laggirnar og stóð hún til ársloka 1925. Þá fluttu nokkrir þm. till. til þál. um að leggja hana niður, og var sú till. samþ. með örlitlum atkvæðamun. En flm. þessarar þáltill. tóku það skýrt fram, að eigi væri til þess ætlast, að olíuverslunin lenti aftur í höndum erlendra auðfjelaga, og því álitu þeir rjett, að ríkið verslaði áfram með olíu í frjálsri samkepni, til þess að halda verðinu niðri og útiloka það, að útlendingar yrðu aftur einráðir í olíuversluninni. Um þetta farast einum af flm. þessarar till., þáverandi þm. Ísaf., Sigurjóni Jónssyni, meðal annars svo orð: „Meining okkar er sú, að Landsverslunin haldi áfram fyrst um sinn að því leyti, sem þörf gerist. Reynsla undanfarinna ára hefir kent okkur það, að valt er að treysta erlendum auðfjelögum í þessu efni og að nauðsynlegt er að hafa hönd í bagga með þeim“. Þetta kemur enn skýrar í ljós hjá hæstv. núv. forseta Nd. (BSv). Hann segir svo: „En mjer virðist það óskynsamlegt að taka verslunina alveg úr höndum ríkisins. Mætti þá fara svo, að erlent fjelag gerðist hjer ofjarl að nýju“.
Það er því greinilegt, að það hefir ekki vakað fyrir flm. þessarar þáltill., að erlend auðfjelög yrðu hjer alráð um olíuverslunina aftur. Meginástæðan, sem fram var færð af þeim, er vildu einkasöluna feiga, var sú, að Landsversl. væri ekki samkepnisfær, að olían væri dýrari hjá henni en verða mundi í frjálsri samkepni. Það er jafnan auðvelt að slá fram slíkum fullyrðingum, en það sýndi sig brátt, að þær voru einskis virði. Eins og áður er sagt, hjelt ríkið svo áfram að versla með olíu árin 1926 og 1927. Og hver var reynslan? Hún var sú, að þessi ár hafði Landsverslunin 80–90% af allri olíuversluninni. Gleggri sönnun fyrir því, að ríkisverslun sje fullkomlega samkepnisfær, er ekki unt að fá.
Eitt af áhugamálum fyrveranda forstjóra Landsverslunarinnar var að gera olíuna ódýrari og verslunina hagkvæmari með því að byggja olíugeyma. Voru gerðar áætlanir um kostnað við þetta, en íhaldsstjórnin kom í veg fyrir, að nokkuð yrði úr framkvæmdum. Var það afarilla farið og óviturlega gert, því að víst er, að ef að þessu ráði hefði verið snúið, og olían seld með nokkru lægra verði en úr tunnum, mundu geymarnir hafa borgað sig á nokkrum árum, vegna flutningskostnaðar, rýrnunar og leka, sem er því samfara að flytja olíuna í trjetunnum, en hægt er að komast hjá, ef flutt er í geymaskipum og geymd í olíugeymum. Árið 1927 fá tvö erlend fjelög sjerleyfi hjá stjórninni, annað til þess að kaupa, hitt til þess að leigja hjer land, og bæði til að byggja olíugeyma og annað það, sem þar til heyrir. Þessi fjelög voru tilbúin að starfa í ársbyrjun 1928. Þá var ekki nema um tvent að gera fyrir Landsverslunina: annaðhvort að taka upp sömu verslunarháttu og erlendu fjelögin, með olíugeymum og geymaskipi, eða að leggja með öllu árar í bát. Það er augljóst, að hún gat ekki, með því að flytja olíuna inn í tunnum, kept við fjelög, sem notuðu olíugeyma og geymaskip, vegna þess mikla sparnaðar, sem því er samfara. Niðurstaðan varð svo sú, að Landsverslun var lögð niður með öllu í ársbyrjun 1928, og geta hin erlendu auðfjelög því óhindruð skapað hjer aftur það ástand, sem flm. þáltill. 1925 lögðu áherslu á, að sjálfsagt væri að forðast Einræði erlendra olíufjelaga í versluninni. Eins og öllum hv. þm. er kunnugt, eiga nú þrjú stærstu olíufjelög heimsins öll anga hjer: Standard Oil, Royal Dutch Shell Company og British Petroleum, sem er angi úr Anglo Persian. Tvö þessara fjelaga, Shell og British Petroleum, eiga hjer geyma, en þriðja fjelagið, Standard Oil, notar eingöngu tunnur, enda verslar það mest með ljósaolíu og bensín, en tiltölulega lítið með hráolíu. (SÁÓ: Það er nú að láta byggja geyma í Viðey). Það er mjög að vonum.
Samkeppnismenn sögðu, þegar sjeð var, að fjelögin yrðu þrjú hjer, að þau mundu keppa um olíusöluna upp á líf og dauða og af því leiða verðlækkun á þessari vörutegund. En hvað segir reynslan? Seint á síðasta ári auglýstu öll þessi fjelög samtímis í þrem dagblöðunum hjer í Reykjavík verðhækkun á bensíni og seldu það öll með sama útsöluverði, bæði fyrir og eftir að verðhækkunin var komin á. Sama er að segja um verð á ljósaolíu og hráolíu. Verðið er eins hjá öllum fjelögunum. Þessi þrjú fjelög komu sjer með öðrum orðum saman um það í bróðerni, hversu mikið þau skuli leggja á olíuna. Svo fór um samkepnina þá! Eftir því sem næst verður komist, taka fjelögin auk venjulegrar álagningar á olíuna alt það, sem sparast við að hafa geyma og flytja olíuna hingað í geymaskipum, því að verðið hjá þeim mun engu lægra en hægt er að fá smáslatta hingað flutta í tunnum. Allan þennan hagnað taka fjelögin í eiginn vasa, úr vösum landsmanna, sem olíu þurfa að nota.
Hvað kostar nú þessi verslunarrekstur? Eftir þeim upplýsingum, sem fengust í fyrra við rannsókn, sem var gerð viðvíkjandi þessum olíufjelögum, hafa þau bundnar a. m. k. 5 milj. kr. í fyrirtækjum sínum. Ef gert er ráð fyrir, að 50 þús. tn. af steinolíu seljist á ári — sem mun fullhátt reiknað —, nemur þessi stofnkostnaður 100 kr. á hverja tn. Vextirnir einir nema því 5–7 kr. á hverja tunnu, sem seld er á ári, og annað eins mun þurfa fyrir viðhaldi. fyrningu o. þ. h. Samtals nemur þessi kostnaðarliður einn því 10–14 krónum á hverja selda tunnu. En þarf nú að hafa svo mikið fje bundið í þessari verslun? Því má hiklaust svara neitandi. Það er vitanlegt, að eitt af þessum fjelögum, Shellfjelagið, hefði bygt hjer svo stóra olíustöð, að hún er alls ekki við hæfi landsmanna, og verður ekki fyrst um sinn. Stöðin er svo stór, að það fjell strax nokkur grunur á, að hjer væri ekki alt með feldu og að það væri haft í huga, að hægt yrði að leita hingað og fá olíu, ef til ófriðar kæmi. Að minsta kosti er það víst, að geymarnir eru svo stórir, að þeirra væri ekki þörf, jafnvel þó að fjelagið væri eitt um verslunina. En því fer fjarri; jeg hefi fyrir satt, að það muni ekki hafa nema liðlega þriðjung hennar í sínum höndum. Líka liggur í augum uppi, að hinn árlegi verslunarkostnaður hlýtur að verða miklum mun meiri, þar sem þrjú fjelög eru um verslunina heldur en ef alt væri undir einni stjórn.
Þá er enn eitt atriði, sem sjálfsagt er að athuga í þessu sambandi, og það er, hvernig er um þetta erlenda fjármagn búið, sem nú starfar í landinu. Er það trygt, að þessu erlenda fjármagni sje ekki gefið meira svigrúm en holt er og til er ætlast í okkar hlutafjelagalögum? Nokkur grunur þótti leika á, að ekki væri alt með feldu um þetta atriði, og var þess vegna á síðasta ári nokkur rannsókn gerð á því, hvernig þessu var háttað hjá fjelögunum. Niðurstaðan af þeirri rannsókn var sú, að málshöfðun var ákveðin á hendur einu fjelaginu, Shell. Dómar fjellu í málinu, bæði í undirrjetti og yfirrjetti, og var fjelagið sýknað vegna skorts á sönnunum.
Um verslun steinolíufjelagsins danska er í sjálfu sjer ekkert sjerstakt að segja. Það hefir umboðsmann hjer, en á engar fasteignir það jeg veit til, og hefir ekki rjett til þess. Um British Petroleum er það fyrst og fremst að segja, að það hefir fengið leyfi ríkisstj. til að eiga olíustöð hjer í bænum, og hefir leigt land af bænum undir hana. En leyfið frá stj. er bundið við ákveðna stærð á landinu, sem bærinn leigir fjelaginu, og er hún skýrt takmörkuð. Vilji þetta fjelag auka við sig eða færa út kvíarnar, þarf það að leita til ríkisins og bæjarstjórnar um sjerleyfi og leigu eða landkaup. Virðist því sæmilega frá þessu gengið. Olíusöluna fyrir þetta fjelag annast íslenskt fjelag, Olíuverslun Íslands.
„Shell“-fjelagið fjekk upprunalega leyfi til að kaupa land við Skerjafjörð. Af því varð ekki. En aftur var horfið að því ráði að stofna hjer fjelag, hlutafjelagið „Shell á Íslandi“, sem átti að reka heildverslun með steinolíu hjer og eiga stöðina með tilheyrandi. Fjelagið lætur síðan íslenskt fjelag, „h/f Olíusöluna“, annast fyrir sig olíusölu út um landið, á sama hátt og Olíuverslunin annast fyrir B. P. Það, sem vakti grun manna, var sambandið milli „Shell“- fjelagsins erlenda og h/f Shell á Íslandi, sem flestir töldu að væri aðeins leppfjelag fyrir erlenda auðfjelagið, til þess stofnað að útvega því rjettindi íslenskra borgara. Hlutafje fjelagsins er talið 500 þús. kr. og röskur helmingur þess kallað innlent fje, 252 þús. Nokkrar brigður hafa verið bornar á, að svo væri. Og jeg segi það hjer og hefi oft sagt það áður, að jeg tel alveg víst, að hjer hafi aðeins ísl. maður eða menn lánað nafn sitt til þess að fjelagið gæti fengið sama rjett og innlent fjelag. Alt bendir til þess, að hjer sje um hreint leppfjelag að ræða. En hvað um þetta: dómur í Hæstarjetti hefir gengið eins og áður er sagt.
En hvernig er yfirráðum háttað í þessu fjelagi“. Hverjir ráða því, hvaða ákvarðanir fjelagið gerir? Það var upplýst í Nd. fyrir tiltölulega skömmu, að af hluthafaatkvæðum á aðalfundi hafi þeir, sem fara með erlenda fjármagnið, 198 atkv., en hinir, sem fara með það, sem kallað er innlent, fari aðeins með 108 atkv. Það eru þá nærri 2 atkv. erlendra hluthafa á móti hverju einu atkv. íslenskra hluthafa í fjelaginu. Þetta verður skiljanlegt, þegar athuguð er forsaga málsins, sem sje undirbúningur þess, — að „Shell“-fjelagið byggir stöðvar og leggur um 3½ milj. króna í kostnað hjer á landi. Í skýrslu þess manns, er rannsakaði skipulag og hag fjelagsins í fyrra, segir greinilega, að skilyrði frá erlenda fjelaginu fyrir því að leggja fram þetta fje til fyrirtækisins hafi verið það, að stofnað væri íslenskt fjelag, sem keypti eignirnar. Það var gert. Íslenskir menn hafa látið a. m. k. nöfn sín til að stofna slíkan fjelagsskap. Það fjelag telst eiga geymana við Skerjafjörð, geymaskipið og annað, stöðinni og versluninni viðkomandi, svo og geyma með tilheyrandi á smærri stöðum úti um land. Hvers vegna erlenda fjelagið setti þetta skilyrði fyrir fjárframlagi, er ofurauðskilið. Það vildi tryggja sjer hjer að öllu sama rjett til hverskonar starfsemi og stækkunar og íslenskt fjelag væri. Þetta lánaðist því, eins og áður er sýnt. Það er síst ofmælt, þótt sagt sje, að ekki sje tryggilega um hnúta búið í þessu efni, — að erlendu fjármagni sje mjög gefinn laus taumur hjer á landi með því fyrirkomulagi, sem nú er á fjelaginu. Þetta „ísl.“ fjelag, „Shell“, getur að ísl. lögum keypt fasteignir og skip og þess háttar og rekið hvaða starfsemi sem er, eins og ísl. borgari væri.
Jeg drap á það í upphafi ræðu minnar, hversu stór vjelbátafloti Ís lendinga er. Nú er vert að athuga í þessu sambandi, hvaðan meginhluti útgerðarmanna þessa skipastóls fær sitt veltufje. Stærri vjelskipin mörg eiga innhlaup í bönkum en mikill þorri af bátaeigendum verður að komast af með lánstraust hjá kaupmönnum, eða kaupfjelögum á stöku stað. Yfirleitt er örðugt fyrir þessa menn að fá lán til atvinnurekstrar síns í bönkunum.
Nú er eitt, sem mjer virðist sjerstaklega vert að athuga í þessu sambandi, og það er það, að fjelagið, sem selur mótorbátum steinolíu, hlýtur oft og einatt líka að vera lánardrottinn eigenda mótorbátanna, það hlýtur þá að sjálfsögðu að hafa mikilla hagsmuna að gæta í sambandi við þessa útlánsstarfsemi og getur gengið svo langt í því að gæta þeirra, að það heimti veð í afla sem tryggingu fyrir skuldinni. Andvirði aflans eða aflinn gengur þá til fjelagsins. Lán út á hann er þá ekki unt að fá hjá öðrum. Í þessu sambandi er fróðlegt að athuga, hvernig atvinnurekstri sumra þeirra manna er háttað, sem að Shellfjelaginu standa. A. m. k. tveir eða þrír af aðalmönnum í fjelaginu reka stórverslun með nauðsynjar bátaútvegsins. Þeir selja salt, veiðarfæri og smurningsolíu og annað það, sem bátaútvegurinn þarf. Báðir versla þeir og með þurkaðan fisk og saltaðan.
Með því fyrirkomulagi, sem nú er á okkar útlánastarfsemi í bönkum — sem ekki eru horfur á, að breytist fljótlega — þá er það víst, að vjelbátaútvegurinn verður hjer eftir sem hingað til að leita á náðir einstakra manna að miklu leyti um lán til rekstrar. Og mjög er líklegt, að bátaeigendur leiti lána hjá olíufjelagi því, sem bátarnir skifta við. Og ekkert er eðlilegra en að gera ráð fyrir, að smátt og smátt kæmi að því, að lánardrottinn legði þær kvaðir á, að skuldunautar þeirra kaupi af þeim auk olíunnar aðrar nauðsynjar útgerðarinnar, svo sem salt, smurningsolíur, veiðarfæri og þessháttar — og taki svo fiskinn upp í skuldina.
Jeg geri ráð fyrir, að mörgum hv. þm. sje í sæmilega fersku minni, hvernig háttað var svo að segja allri verslun á landi hjer til tiltölulega skamms tíma. Það gilti svo að segja það sama um þá, sem bjuggu við sjó, og hina, sem áttu heima í sveitum, eintóm skuldaverslun. Viðskiftamenn voru vel flestir hneptir á skuldaklafann við verslunina, þannig, að þeir urðu að afhenda henni afurðir sínar, og þar urðu þeir að kaupa það, sem þeir þurftu og ekki gátu án verið. Verðinu rjeði lánardrottinn, kaupmaðurinn, bæði á innlendu og útlendu vörunum. Mjer sýnist vel geta stefnt til þess, ef erfið ár kæmu fyrir bátaútveginn, að fjelagið vildi nota sjer aðstöðu sína til þess að ná samskonar tökum á vjelbátaeigendum. Það gæti bundið eigendur bátanna við sig með lánum og síðan neytt þá til þess að kaupa af fjelaginu einu nauðsynjar sínar og afhenda því aftur afurðir sínar. Hverja þýðingu það hefði fyrir vjelbátaútgerðina í landinu, þarf ekki að skýra hv. þm. frá. Fjélagið gæti þá skamtað verðið bæði á vörum sínum og afurðum skuldunautanna.
Ef maður lítur á málið frá þessu sjónarmiði, þá er skiljanlegt, hversu rík áhersla er lögð á, að það sje ísl. fjelag með ísl. rjettindum, sem á stöðvarnar og geymana hjer. Af því að það hefir ísl. rjettindi, getur það hagnýtt sjer allar þessar eignir, ef til þarf að taka, eins og ísl. borgari. Erlendu fjelagi væri það ókleift, ef t. d. ganga þyrfti að útgerðarmönnum vegna skulda og selja eignir þeirra eða yfirtaka þær og hagnýta, t. d. gera skipin út um hríð til fiskveiða. Jeg taldi þörf á að benda á þetta í viðbót við það, sem jeg benti á í fyrra.
Jeg skal ekki teygja mál mitt miklu lengur. En hv. þm. verða að gera sjer ljóst, að það, sem um er að ræða í þessu efni, er hvort hollara sje þjóðinni að hlíta forsjá þessara þriggja erlendu auðfjelaga eða hlíta einni forsjá í þessu efni. Hvort þeir treysta þeim betur til þess að fullnægja þörfum landsmanna á svo hagkvæman og kostnaðarlítinn hátt, sem auðið er, heldur en mönnum, sem þjóðin sjálf velur til þess.
Jeg gat þess, að þegar samþ. var að leggja einkasöluna niður 1925, var það með sáralitlum atkvæðamun. Þeir flokkar, sem þá stóðu öndverðir gegn því, ráða nú á Alþingi. Því er full ástæða til að ætla, að þessir flokkar nú ákveði að neyta heimildarinnar aftur og taki upp einkasölu á steinolíu, og því fremur, sem þess er gætt, að það er tiltölulega auðveldara en það áður var. Nú er sjálfsagt hægt að fá með góðum kjörum — eða taka eignarnámi — það, sem þarf til starfrækslu verslunarinnar, geyma og annað slíkt. Tækin eru til, og ekki annað en yfirtaka þau og halda síðan versluninni áfram.
Í þessu sambandi er vert að geta þess, að jeg hefi heyrt því fleygt, að það yrði ekki þolað skaðabótalaust af Englendingum, sem lagt hafa fje í geyma og stöðvar hjer, að þetta alt yrði gert verðlaust með því að banna þeim steinolíuverslun. En yfirlýsingin frá hv. 1. þm. Skagf. (MG) í fyrra að því er snertir Shell-fjelagið, sem hann er formaður fyrir, sýnir, að þetta er ástæðulaust með öllu. Þegar Spánverjar tóku upp einkasölu á steinolíu í sínu landi, þá höfðu olíufjelög bygt þar mikil mannvirki. Eitthvað af þeim mun ríkisstj. hafa keypt, en skaðabætur fyrir hitt, sem ónothæft varð, voru engar greiddar.
Jeg verð að segja, að mjer leikur mjög forvitni á að heyra undirtektir hæstv. stj. og flokks hennar undir þessa till. Jeg vil ekki trúa því fyr en jeg tek á, að hæstv. stj. geti ekki fallist á till., sem er nákvæmlega í samræmi við starf og stefnu flokksins á undanförnum árum. Að vísu verð jeg að játa, að þegar jeg sá afgreiðsluna á frv. um einkasölu á tóbaki ekki alls fyrir löngu, þá komu nokkrar efasemdir upp í huga mínum. Jeg vænti þess, að jeg fái að heyra undirtektir hæstv. stj., þannig að jeg verði losaður við þennan efa og fái fullvissu um það, að henni sje ekki snúinn hugur í þessu þýðingarmikla máli.