18.05.1929
Efri deild: 76. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í D-deild Alþingistíðinda. (3779)

148. mál, skólasjóður Herdísar Benediktsen

Flm. (Ingibjörg H. Bjarnason):

Till. til þál. á þskj. 694 er komin hjer fram vegna þess, að samskonar till. frá hv. þm. Barð., hv. þm. Snæf. og mjer var tekin út af dagskrá í sameinuðu þingi í gær og kom því ekki til umr. þar. En það er sjálfsagt, að þingið láti uppi skoðun sína á þessu máli áður en því slítur.

Þegar frú Herdís sál. Benediktsen ánafnaði eigur sínar til stofnunar kvennaskóla á Vesturlandi, mælti hún svo fyrir í arfleiðsluskrá sinni, að „allar þær ráðstafanir, sem lúta að því, að koma skólanum á fót og ákveða fyrirkomulag hans, skulu gerðar af landshöfðingja í samráði við amtsráð Vesturamtsins“.

Eins og kunnugt er, þá breyttist stjórnarskipun landsins, og við þá breyt. voru bæði landshöfðingjaembættið og amtsráðin lögð niður. Við það fjell það starf að hafa íhlutun um stofnun og starfrækslu skólans, er til kæmi, að nokkru leyti undir stjórnarráð Íslands, en þeim hluta þess, sem áður heyrði undir amtsráð Vesturamtsins, var ráðstafað með sjerstakri konunglegri tilskipun, er gefin var 2. mars 1908.

III. liður tilsk. hljóðar þannig:

„Þá er til þess kemur að stofna kvennaskóla í hinu fyrverandi Vesturamti af sjóði „Minning Herdísar og Ingileifar Benediktsen“, skal leita álita sýslunefndanna í nefndu amti um þau atriði, er amtsráði vesturamtsins var ætlað að hafa afskifti af samkvæmt gjafabrjefi frú Herdísar Benediktsen“.

Tilskipun þessi er enn í fullu gildi og er því ómögulegt að ganga framhjá henni, eigi að ráðstafa eignum fyrnefnds sjóðs. Það verður eigi gert með löglegum hætti án þess að leita um það samþykkis sýslunefndanna í Vestfirðingafjórðungi.

Nú hefir hæstv. stj. látið sem hún þekti ekki tilsk. þessa og gengið algerlega framhjá henni, sem sjá má á því, að í frv. stj. til fjárlaga fyrir árið 1930 er feldur burtu styrkur til húsmæðraskólans á Staðarfelli, af þeirri ástæðu, að sjóður frú Herdísar Benediktsen eigi nú að taka skólann að sjer.

Þessa er aðeins stuttlega getið í aths. aftan við fjárlagafrv. með svofeldum orðum:

„Styrkveiting til húsmæðraskólans á Staðarfelli er látin falla niður, þar eð ákveðið er, að Herdísarsjóður taki hann að sjer. Í hans stað kemur húsmœðraskólinn við Alþýðuskóla Þingeyinga. Er honum ætlaður sami styrkur og hinn hafði“.

Þetta er sjóðnum ætlað að gera að fornspurðum þeim aðila, sem hjer á íhlutunarrjett, engu síður en ríkisstj., nefnilega sýslunefndunum í hinu forna Vesturamti.

Þáltill. sú, sem hjer liggur fyrir, er fram komin til þess að mótmœla þessari aðferð. Munu hv. þm. sjá, að engin lög standa til þess, að farin verði sú leið, sem ætluð er samkv. till. fjárlagafrv.

Þá er og önnur ástæða engu lítilvægari; hún er jafnvel enn veigameiri en hin fyrri, og skal jeg nú víkja að henni nokkrum orðum.

Í erfðaskrá frú Herdísar Benediktsen eru skýr og ótvíræð ákvæði um það, hvernig hún vill að fyrirkomulag skólans verði. Þar segir svo:

„Það er ósk mín, að fyrirkomulag hins fyrirhugaða skóla verði sem líkast kvennaskólanum í Ytri-Ey, eins og hann er nú“ (c: 15. jan. 1890).

Skóli sá, sem frú H. B. hjer tekur sem fyrirmynd að skóla sínum, hafði eins og kunnugt er á sjer hið mesta álit og var talinn fullnægja þeim kröfum, sem menn þá gerðu mestar til almennrar kvenmentunar hjer á landi.

Ytri-Eyjarskólinn var ekki húsmæðraskóli, heldur veitti hann nemendum sínum almenna mentun til munns og handa. Að vísu tóku nemendur hans á víxl þátt í heimilisstörfum skólaheimilisins, en á það var ekki lögð aðaláhersla kenslu þeirrar, er skólinn veitti.

Eins og kunnugt er, þá er Staðarfellsskólinn eingöngu hússtjórnarskóli og veitir eigi aðra bóklega mentun en þá, sem nauðsynleg er í sambandi við þá verklegu fræðslu, sem nemendurnir fá.

Starfsskrá eða reglugerð skólans — sje hún annars til — er öll önnur en sú, sem frú H. B. sál. kaus þeim skóla, er starfræktur yrði fyrir gjöf hennar.

Að mínu áliti — og jeg veit að flestir landsmenn eru þar sömu skoðunar — er það með öllu ósæmilegt að ganga þannig alveg framhjá hinsta vilja þess gefanda, sem ánafnar eigur sínar til alþjóðarheilla. Enda er það svo með öllum siðuðum þjóðum, að í þessu falli eru þeim heilög þau ákvæði, sem slíkum dánargjöfum fylgja, og þeim kemur ekki til hugar að rjúfa slíka samninga.

Þess meiri menningu og þroska sem ein þjóð hefir til brunns að bera, þess annara lætur hún sjer um að hlíta vilja þeirra, sem dánargjafir gefa. Hinar auðugustu þjóðir, svo sem Englendingar, eru mjög nákvæmir í því að framfylgja fyrirmœlum slíkra arfleiðsluskráa sem þessarar, og sama er að segja um fleiri þjóðir, t. d. Svía, sem allra Norðurlandaþjóða mest hljóta slíkar dánargjafir, bæði margar og miklar, til ýmsra almenningsþarfa.

Það liggur nú í augum uppi, að eigi má með nokkru móti kippa burtu þeim grundvelli, sem hver sá byggir á, er af skilningi á þörfum framtíðarinnar gefur fje sitt eftir sinn dag til einhvers þess málefnis eða stofnunar, sem honum er sjerstaklega hjartfólgin.

Jeg vil ganga svo langt að segja, að jafnvel þó gjöfinni fylgdu einhver ákvæði, sem erfitt væri að fylgja, þá megi þó ekki ganga í bága við þau nema í ýtrustu nauðsyn. En um slíka nauðsyn er hjer alls ekki að ræða. Að því er snertir gjöf frú Herdísar Benediktsen, þá verður ekki með nokkru móti sagt, að þar sje neitt skilyrði sett, sem erfitt sje að uppfylla, nje heldur að tímarnir hafi breytst svo, að ekki sje hægt að framkvæma hennar hinsta vilja.

Kröfurnar til almennrar mentunar ungra kvenna eru að mestu þínar sömu og þá voru, og þótt nú beri að vísu meira á kröfum um sjermentun húsmæðra — og æskilegt sje að fullnægja þeim —, ætti ríkisstj. á hverjum tíma að vera kleift að verða við óskum í þá átt, án þess að brjóta fyrirmæli, sem örlátir og framsýnir mannvinir setja á deyjanda degi.

Undanfarin ár, síðan húsmæðraskólinn á Staðarfelli tók til starfa, hefir hann notið sjerstaks styrks í fjárlögum, eins og aðrir skólar. Það sýnist því engin frambœrileg ástæða til þess að strika skólann út af fjárlögum — eins og gert var — og fela framfærslu hans sjóði, sem enga skyldu hefir til að starfrækja skólann í þeirri mynd, sem hann nú er.

Hvers vegna má ekki halda áfram að veita fje til hans í fjárlögum?

Til þess að Staðarfellsskólinn geti eignast rjett — lagalegan rjett — til þess að komast á framfærslu hjá sjóði frú H. B., þarf samþykki sýslunefnda Vesturamtsins fyrv., eins og jeg þegar hefi bent á í upphafi ræðu minnar hjer. Þessa samþykkis hefði ríkisstj. átt að vera búin að leita, áður en hún tók ákvörðun þessa. Það hefir hún ekki gert, svo sem kunnugt er.

Nú stendur svo á, að ekki færri en 8 hv. þm. sitja hjer á þingi fyrir hið forna vesturamt. Það eru: hv. þm. Mýr., hv. þm. Snæf., hv. þm. Dal., hv. þm. Barð., hv. þm. V.-Ísf., hv. þm. Ísaf., hv. þm. N.-Ísf. og hv. þm. Str. Það hefði nú mátt búast við, að af 8 hv. þm., er teljast til hins fyrv. Vesturamts, hefðu fleiri en tveir viljað hreyfa andmælum gegn þessari ráðstöfun, en svo var þó ekki, því vitanlegt er það, að bæði Stykkishólmur, Flatey og Ísafjörður hafa hver um sig látið í ljós þá ósk, að skólinn yrði stofnaður þar. En þeir hv. þm. Barð. og hv. þm. Snæf. voru ásamt mjer flm. þessarar till. í sameinuðu þingi.

Til þess að Staðarfellsskólinn geti eignast rjett — siðferðislegan rjett — til framfærslu eða rekstrar af sjóði frú H. B., þarf fyrirkomulag hans, þ. e. tilhögun starfrækslu, að breytast og samrýmast ákvæðum gjafabrjefs frú Herdísar. Þetta má gera með því að setja á stofn á Staðarfelli — náist samkomulag hlutaðeigandi sýslunefnda til þess — almennan kvennaskóla og hafa þar í sambandi við hann húsmæðradeild með því fyrirkomulagi, sem nú er. Ætti engum að blandast hugur um, að með því er betur fylgt vilja hins stórhuga gefanda. Auk þess er með þessu einnig tekið tillit til þeirra gefenda, er ljetu af hendi jörðina Staðarfell sem væntanlegt skólasetur Herdísarskólans og í gjafabrjefi sínu ljetu þá ósk í ljós„ að ef hægt væri, yrði hússtjórnardeild komið þar fyrir í sambandi við skólann.

Þeir, sem á sínum tíma tóku við gjöf þeirra Staðarfellshjóna, hafa heldur ekki nægilega athugað það, sem athuga þurfti í því sambandi áður en Staðarfell varð eign hins íslenska ríkis.

Vonandi er, að hið háa Alþingi sjái nú, að sú braut, sem hjer er stefnt inn á, er því eigi sæmileg, og að það heimili stj. að veita húsmæðraskólanum á Staðarfelli hæfilegan styrk til starfrækslu af ríkisfje, en láti sjóð frú H. B. liggja óhreyfðan þar til málið er svo undirbúið sem arfleiðsluskrá hennar mælir fyrir.

Það væri ekki vansalaust, ef hið háa Alþingi, löggjafarsamkoma ísl. þjóðarinnar, ljeti svo merkilegt mál sem þetta afskiftalaust, ljeti fótum troða vilja hinnar þjóðkunnu, stórhuga heiðurskonu. Jeg hefi hjer bent á óhæfuna og vona, að hv. deild taki vel í mál mitt.