18.05.1929
Efri deild: 76. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í D-deild Alþingistíðinda. (3787)

148. mál, skólasjóður Herdísar Benediktsen

Forseti (GÓ):

Mjer hefir verið afhent svo hljóðandi rökstudd dagskrá:

Með því að deildin lítur svo á, að skólastaður Herdísarskólans hafi verið ákveðinn þegar landsstjórn og Alþingi tóku við Staðarfellsgjöfinni, tekur hún fyrir næsta mál á dagskrá.