18.05.1929
Efri deild: 76. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í D-deild Alþingistíðinda. (3788)

148. mál, skólasjóður Herdísar Benediktsen

Flm. (Ingibjörg H. Bjarnason):

Jeg vil aðeins taka það fram, að dagskráin ræðir um alt annað atriði en hjer liggur fyrir, sem sje þetta, að leitað skuli samþykkis sýslunefnda um það, hvað skólinn skuli standa; þá fyrst er hægt að taka endanlega ákvörðun. Dagskráin fer fram á alt annað en það, sem hjer hefir verið rætt um.