18.05.1929
Efri deild: 76. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 262 í D-deild Alþingistíðinda. (3790)
148. mál, skólasjóður Herdísar Benediktsen
Flm. (Ingibjörg H. Bjarnason):
Það er búið að benda á það, bði af mjer, hv. 3. landsk. og hv. þm. Snæf., að það sje ekki búið að taka endanlega ákvörðun með Herdísarsjóðinn, þótt tekið hafi verið við Staðarfellsgjöfinni, en óneitanlega hefir verið gefið undir fótinn með, að skólinn skyldi standa þar. Stj. hefir ennþá á valdi sínu að segja, að hún sje ekki bundin við gerðir fyrri stjórna í þessu máli, þar sem ekki hafi verið leitað samþykkis rjettra aðila. Það er líka siðferðisleg og lagaleg skylda hennar að bæta úr því, sem vanrækt kann að hafa verið, og þá fyrst getur hún tekið ákvörðun, en fyr ekki. Úr þessu er auðvelt að bæta og framfylgja þannig fyrirmælum hinnar konunglegu tilsk., því að það eru lög, sem ekki má brjóta, og vil jeg því skora á stj. að fara eftir fyrirmælum hinnar konunglegu tilsk. frá 2. mars 1908.