11.05.1929
Efri deild: 66. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í D-deild Alþingistíðinda. (3802)

137. mál, rannsókn brúarstæðis á Lagarfljóti

Flm. (Páll Hermannsson):

Jeg get lýst yfir því, ekki síst eftir yfirlýsingu hæstv. ráðh. um að stj. muni láta gera það, er þurfa þykir, og jafnframt líka yfirlýsingu hv. form. Íhaldsflokksins um að hann væri málinu hlyntur, að þá get jeg sætt mig við, að málinu verði vísað til stj., en till. sjálf ekki borin undir atkv. Aðalatriðið er, að málið verði svo undirbúið sem með þarf, svo að ekki standi á því, þegar þar að kemur, að ráðist verði í þetta mannvirki.