17.05.1929
Neðri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í D-deild Alþingistíðinda. (3814)
134. mál, Borgarnesbátur
Hjeðinn Valdimarsson:
Hv. þm. Mýr. sagði, að vegarsamband milli Reykjavíkur og Borgarness ætti langt í land. Jeg held slík fullyrðing stafi af ónógri athugun á þessu máli. Aðalleiðin mun verða ekki inn fyrir Hvalfjörð, heldur yfir Hvalfjörð. Eins og nú standa sakir er þegar slarkfært yfir Dragháls. Að vísu er það ekki góður vetrarvegur, en þess ber að gæta, að vetrarflutningur er að öllum jafnaði minni en að sumri til. Að minsta kosti líður ekki langur tími af lífi skips þangað til fullkomið vegarsamband fæst hjeðan til Borgarness. Jeg geri ekki ráð fyrir að þurfi mjög dýrar bryggjur eða útbúnað við Hvalfjörð, eins og hv. flm. gaf í skyn. Og jeg er í engum vafa um það, að þótt vöruflutningur verði mest sjóleiðis til þeirra hjeraða, sem næst liggja Borgarnesi, þá verði þó allur þorri vöruflutninga til uppsveitanna landleiðis, þegar vegurinn er kominn. Mönnum þykir hægara að geta flutt lítið hlass landveginn, enda mun það reynast ódýrara. — Það er almenn reynsla, að furðu sætir hve landflutningarnir geta kept við sjóflutningana. Jeg skal svo ekki tala lengra mál að þessu sinni, en vil leggja til að deildin vísi till. frá.