17.05.1929
Neðri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 288 í D-deild Alþingistíðinda. (3817)

134. mál, Borgarnesbátur

Jörundur Brynjólfsson*):

*) Ræðuhandr. óyfirlesið. Jeg skil vel, að Borgfirðingar kjósi betri samgöngur en þeir hafa, þó að þeirra samgöngur sjeu einna bestar á landinu. En mjer heyrist á undirtektum manna, að þessi till. muni eiga erfitt uppdráttar. Jeg vil því leggja til það, sem jeg tæpti á áðan, að till. verði vísað til stjórnarinnar. Það mun hjeraðsbúum hugþekkara en að hún verði kannske feld.