13.03.1929
Neðri deild: 21. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í D-deild Alþingistíðinda. (3862)

49. mál, almannatryggingar

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg vil geta þess út af þeirri fyrirspurn, er hv. þm. Mýr. kom fram með, að stj. hefir snúið sjer til eins af færustu sjerfræðingum, sem völ er á hjer, um þetta, Brynjólfs Stefánssonar skrifstofustjóra, og beðið hann um að taka mál þetta til athugunar og láta stj. í tje álit sitt. Jeg kom aftur að máli við hann nú nýlega og inti hann eftir, hvað gengi, en hann hefir svo mikið að gera, að lítill tími vinst honum til annara starfa, svo að jeg býst ekki við, að álit hans geti komið fyrir þetta þing.

Jeg tók ekki eftir, hvort hv. flm. óskaði eftir, að málinu yrði vísað til n., en vildi beina því til hans, að rjettast myndi vera að vísa því til allshn.