18.05.1929
Neðri deild: 72. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 432 í D-deild Alþingistíðinda. (3887)

126. mál, þjóðaratkvæðagreiðsla um samkomustað Alþingis

Hákon Kristófersson*):

*) Ræðuhandr. óyfirlesið. Mjer þykir leitt, að minn gamli og góði vinur, hv. flm., skuli hafa reiðst því, hvernig jeg lýsti afstöðu minni til þessa máls. Annars þakka jeg honum fyrir velvildina og hugulsemina og efast ekki um, að hann mundi lána mjer snæri, ef jeg þyrfti einhverntíma á því að halda. En um leið og við skiljum nú að þessu sinni, þá vildi jeg óska honum þess, ef svo kynni að fara, að hann kæmi einhverntíma síðar til mín til þess að leita míns fulltingis í einhverju máli, að hann yrði aldrei fyrir því, að við hann yrði sagt: Vík frá mjer o. s. frv.