02.04.1929
Neðri deild: 34. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 436 í B-deild Alþingistíðinda. (403)
106. mál, kynbætur hesta
Frsm. (Lárus Helgason):
Eins og frv. þetta ber með sjer, þá er aðallega um eina smábreytingu að ræða við lögin um kynbætur hesta. Það hefir komið í ljós, að ákvæði l. um, að fresturinn til 14. maí á geldingu hesta ár hvert er of langur. Þykir því rjett að færa þetta takmark til 20. apríl. Getur það engum orðið að baga, því tíminn frá 20. apríl til 14. maí er ekkert heppilegri tími til að gelda hestana en tíminn fyrir 20. apríl. Þarf það engri óánægju eða óþægindum að valda.
2. gr. frv. þessa heimilar stjórninni að gefa út reglugerð við þessi lög. Sú heimild var ekki til í umræddum lögum, en er nauðsynleg, því það hefir komið í ljós, að menn hafa ekki skilið ákvæði laganna á einn veg. Sá maður, sem haft hefir á hendi leiðbeiningar um kynbætur hesta, hefir rekið sig á þetta, og hefir hann látið í tje þau atriði, er helst valda ágreiningi. Eru þau einkum þessi: Fyrsta ágreiningsefnið er, hvort eigi að jafna kostnaði þeim, sem leiðir af kynbótastarfinu, niður á þau folöld, sem fæðast. á því ári, er útgjöldin urðu til, eða á þau folöld, sem fæðast næsta ár á eftir. Væri síðari reglunni fylgt, yrði hlutaðeigandi sveitarfjelag að leggja hrossaræktinni til eins árs rekstrarfje, að minsta kosti þar til hrossaræktin hefði eignast svo mikinn sjóð, að hann nægði sem rekstrarfje eitt ár. Þetta atriði er að sönnu tekið fram í 7. gr. laganna, en eftir fenginni reynslu þarf að setja nánari reglur um innheimtuna en lögin gera.
Annað ágreiningsatriðið er, hvort kynbótanefndir hafi vald til að jafna svo miklu niður á folöldin, að afgangur verði, er leggist í sjóð, sem hrossarækt þeirrar sveitar eigi.
Þriðja ágreiningsatriðið er um völd kynbótanefndanna og skyldur. Nokkrir halda fram, að kynbótanefndir hafi ekki vald til að gera fullnaðarsamning um leigu á kynbótahestum eða koma upp girðingum, nema með sjerstakri heimild hlutaðeigandi sveitarfjelags, en aðrir álíta, að löglega kosnar kynbótanefndir hafi óbundnar hendur um þetta.
Fjórða ágreiningsefnið er, hvort einfaldur meiri hluti sveitarfundar hafi heimild til að ákveða, að hlutaðeigandi sveitarfjelag skuli engan stóðhest hafa til afnota í eitt eða fleiri ár.
Fimta ágreiningsefnið er, hver sje rjettur hrossaræktarfjelaga gagnvart sveitarfjelögum, ef minni hluti hreppsbúa er í hrossaræktarfjelagi, en meiri hluti hreppsbúa kýs kynbótanefnd, er tekur stóðhest á leigu til afnota fyrir sveitarfjelagið. Eru þá meðlimir hrossaræktarfjelagsins skyldir að gjalda tolla af sínum folöldum til hrossaræktarstarfsemi sveitarfjelagsins, auk þess að þeir verða að standa straum af kynbótastarfsemi hrossaræktarfjelagsins?
Tilgangur frv. er því sá, að koma í veg fyrir þennan misskilning og þau vafaatriði, sem hjer er um að ræða. Sjer landbn. því ekki betur en full ástæða sje til að verða við þessum óskum ráðunautarins og heimila stj. að gefa út reglugerð, til þess að ráða bót á þeim ágöllum hrossakynbótalaganna, sem hjer hefir verið bent á.
Finn jeg svo ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um málið. Það virðist ofureinfalt, og getur því tæplega valdið ágreiningi. Óska jeg svo, að frv. verði vísað til 2. umr.