06.04.1929
Neðri deild: 38. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 441 í B-deild Alþingistíðinda. (410)

106. mál, kynbætur hesta

Hákon Kristófersson:

Hvað sem segja má um það, að frv. þetta sje samið af ráðunaut Búnaðarfjelags Íslands, þá er og hitt víst, að lögin voru á sínum tíma undirbúin af sama manni. Efast jeg um, að sá ágæti maður hafi vaxið til muna að þekkingu á þeim tíma, sem liðinn er síðan; hygg heldur, að hjer sje um algengan hringlandahátt í lagasmíð að ræða. Vil jeg því fella þetta frv. algerlega. 1 grg. við frv. er þess getið, að lögin hafi verið misskilin, en á hitt er hvergi bent, á þau ákvæði l., sem hafa verið misskilin. Jeg ber að vísu traust til hæstv. forsrh., en jeg er samt ekki viss um, þó hann setti reglugerð um þessi lög, að hún yrði fremur laus við alla agnúa en lögin nú. Jeg get tekið undir með hv. þm. Borgf., að oft muni ekki vera hægt að framkvæma geldingu á folum fyrir 20. apríl. Veit jeg það af eigin reynslu. Hv. þm. V-Sk. vildi halda því fram, að ekki væri frekar hægt að framkvæma vönun á tímabilinu frá 20. apríl til 14. maí. En þetta er þó nokkur tími og getur því auðveldlega nokkuð um það skipast á þeim tíma. Þá er og það atriði, að útigengna fola yrði að taka í hús, ef tímatakmarkið er fært. En um og fyrir 14. maí er veður oftast farið að hlýna, og gróður er þá byrjaður eða í nánd. Þá fara og öll sár betur með sig í hlýviðri og gróðrartíð en í kuldum, sem meiri hætta er á í apríl en í maí. — Um reglugerðir alment er það að segja, að þó sumar sjeu vel af hendi leystar, þá eru þó aðrar svo, að þær kollvarpa ákvæðum sumra laga, sem þær áttu að skýra, og það alltilfinnanlega. Vil jeg máli mínu til stuðnings vísa til reglugerðarinnar um skattaframtal í sveitum, sem alls ekki er í samræmi við gildandi lög.

Jeg sje ekki betur en að vel sje í hóf stilt, þótt frv. þetta verði látið falla úr sögunni. Það hefir ekkert verið bent til þess í grg. við frv., í hverju þessi misskilningur, sem sagt er að hafi átt sjer stað um l., er fólginn. (LH: Það var gert í framsögu). Það hefði samt verið hægra að átta sig á því, ef það hefði komið í grg. — En undarlegt er það, að 2 hv. þm., sem báðir eru úr hrossaræktarhjeruðum, hafa lagt eindregið til, að 1. gr. frv. verði feld. Er þá ekki annað eftir en ákvæðið um að gefa út reglugerð. En jeg hygg, að það sje líka óþarft. Má vel hlíta við vald viðkomandi kynbótanefndar í þessu máli og þá venju, sem um ákvæði l. er sköpuð. — Jeg sje, að hæstv. atvmrh. hristir höfuðið. En jeg byggi mína skoðun á þeim góða undirbúningi, sem l. fengu í upphafi, og þeirri reynslu, sem fengin er um þau.