06.04.1929
Neðri deild: 38. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í B-deild Alþingistíðinda. (411)

106. mál, kynbætur hesta

Pjetur Ottesen:

Jeg bjóst nú ekki við, að miklar umr. yrðu um þetta mál. En hv. 1. þm. N.-M. og hv. þm. V.-Sk. hafá tekið svo fullan munninn um það, hver fjarstæða till. okkar væri, að jeg verð að bæta nokkrum orðum við það, sem jeg áður sagði.

Hv. þm. V.-Sk., sem eftir eigin sögusögn er afarvel að sjer í því, hvenær hestar verða kynþroska, og í öllu því, er lýtur að byggingu þeirra, vildi fullyrða, að engin breyt. á kynþroskun hesta gæti átt sjér stað á tímabilinu frá 20. apríl til 14. maí. En jeg þekki nokkur dæmi þess, að sú breyt. hefir orðið á kynþroska hesta á jafnvel skemri tíma en þeim, er hjer um ræðir, að hægt hefir verið að gelda hest eftir hálfan mánuð, þar sem það var með öllu afskorið áður, nema þá með uppskurði, sem ekki er á færi nema dýralækna. Þannig mundi oft vera hægt að vana fola þann 14. maí, sem ekki væri hægt 20. apríl. Þeir hestar yrðu því áreiðanlega miklu fleiri, sem hæfir yrðu til vönunar 14. maí.

Þá er og vitanlega um aukinn kostnað að ræða, einkum fyrir útbeitarhjeruð. Því þýðir ekki að neita. Því trúir enginn, þótt hv. þm. vilji fullyrða það, sjálfum sjer til geðs. Það er oft mikill munur á gróðri 14. maí og 20. apríl, svo taka yrði folana á gjöf þann 20. apríl, þó nógur gróður sje kominn 14. maí. Þá verður einnig að taka þá fola á gjöf 20. apríl, sem ekki eru kynþroska, svo vanaðir verði. En 14. maí má oftast láta slíka hesta í girðingu, þótt fyr á tíma sje ekki hægt vegna gróðurleysis. Þetta verður því aukinn kostnaður. Hvað það atriði snertir, að þessi breyt. sje nauðsynleg fyrir kynbæturnar, þá held jeg, að það sje hrein undantekning, ef 2 vetra hestar eru ekki óskaðlegir — eins og hv. þm. orðaði það — á tímabilinu frá 20. apríl til 14. maí. Það eru algerðar undantekningar. Jeg held, að ákvæði laganna eins og það er nú sje vel forsvaranlegt. Og þar sem lögin hafa orðið nokkuð óvinsæl vegna kostnaðar, sem er því tilfinnanlegri, að hrossin hafa lækkað stórkostlega í verð síðan þau voru sett, þá get jeg búist við, að fram muni koma raddir um, að l. verði breytt í þá átt, að slakað verði til á sumum ákvæðum þeirra. Slíkar raddir er auðvelt að framkalla. öruggast mun því vera fyrir þá, sem vilja láta núgildandi löggjöf haldast um þetta, að greiða atkv. með brtt. okkar. Þá fæst það um leið, að sett verði reglugerð um þessi lög.