06.04.1929
Neðri deild: 38. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (413)

106. mál, kynbætur hesta

Hannes Jónsson:

Jeg get tekið undir með þeim hv. þm., sem telja varhugavert að auka útgjöld bænda vegna þessara laga. Tekjur af hrossaeign eru nú orðnar svo litlar, að heita má, að beint tjón sje orðið að því að eiga stóðhross fram yfir það, sem viðhald brúkunarhrossa útheimtir. Máske er helsti árangur kynbótalaganna sá, að hrossum hefir fækkað og útlit fyrir, að þeim stórfækki fyrir starfrækslu laganna. En þótt máske sje gott, að stóði fækki, þá vil jeg þó ekki, að einstaklingunum sje íþyngt með frekari kostnaði en lögin gera nú. Útflutningur hrossa má heita úr sögunni. Verð á folöldum til slátrunar er þetta frá 20–30 kr. Og af því er 1/3 eða meira tekinn til þarfa kynbótanna samkv. lögunum. Menn slátra því bæði folöldum og öðrum hrossum eftir því sem tími vinst til, svo hrossum mun fækka, þótt ekki sje hert á því með auknum tilkostnaði. Jeg tel því óheppilega að farið, ef bændum verður enn íþyngt með auknum útgjöldum. Jeg er því nú kunnugur, að bændum hefir þótt of langt gengið áður með lögum þessum. Á þingmálafundi í Vestur-Húnavatnssýslu nú í vetur var samþ. till. um að skora á þingið að afnema þessi lög. Jeg hefi nú ekki sjeð mjer fært að bera fram þessa ósk, en jeg verð algerlega að vera á móti öllu því, sem gengur í þá átt að íþyngja bændum enn meira um þetta. Jeg er jafnvel hálfhræddur við, að gefin sje heimild til reglugerðar um þessi lög. Það er ekki af því, að jeg vantreysti hæstv. atvmrh. En jeg hygg, að þeir, sem um hana mundu fjalla, hefðu opnari augu fyrir því að gera alt sem fullkomnast, og þá sem dýrast. En jeg vil á engan hátt auka við neinn kostnað í þessu sambandi og vildi frekar skera hann niður.