09.04.1929
Neðri deild: 40. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í B-deild Alþingistíðinda. (44)
14. mál, Búnaðarbanki Íslands
Bjarni Ásgeirsson:
Vegna þess að hv. 1. þm. Reykv. (MJ) notaði Landsbankann sem eitt af þeim vopnum, sem hann vóg að þessu frv. með, og mintist á álit það, sem bankaráðið sendi landbn., og jeg sem bankaráðsmaður með nokkrum orðum gera grein fyrir afstöðu minni til þessa máls. Og mjer er óhætt að segja, að nokkuð svipað vakir fyrir öllum bankaráðsmönnum í þessu máli.
Jeg heyrði því miður (texti ólæsilegur) ræðu hv. þm. í n. hafi komið fram í ræðu hans, að hann liti svo á þetta frv., að það væri hörð árás á Landsbankann, og þess vegna væri mjög svo óeðlilegt, að bankaráðið mælti með því. Síðar í ræðu sinni fór hv. þm. nokkrum orðum um afstöðu Framsóknarflokksins til frv. og gaf í skyn, að það væri meiri hl. bankaráðsins, sem að álitinu stæði. Jeg vil geta þess, að allir bankaráðsmenn skrifuðu undir álitið, og jeg vil ennfremur geta þess, út af því, sem hv. þm. sagði um, að farið hefði verið á bak við bankastjórana, að það er alls ekki rjett. Því til sönnunar vil jeg með leyfi hæstv. forseta lesa upp úr álitinu:
„.... Bankastjórar Landsbankans hafa tjáð sig samþykka breytingartillögum álits þessa í öllum aðalatriðum, þó að þeir ekki undirskrifi það, þar sem þeir hafa skýrt landbúnaðarnefndinni munnlega frá áliti sínu“.
Hjer er því ekki um neina flokkshlutdrægni að ræða, heldur einróma álit allra bankaráðsmanna og bankastjóranna.
Jeg held, að skoðun hv. þm. hafi komið skýrast fram, þegar hann mintist á það, að enginn vafi væri á, að ef einn maður ætti Landsbankann, mundi hann hafa lagt á móti þessu frv. Það er mjög sennilegt. Ef hv. 1. þm. Reykv. ætti Landsbankann með húð og hári, ef Landsbankinn væri gróðafyrirtæki hv. þm., þá er enginn vafi á því, að hann væri á móti öðrum slíkum stofnunum hjer. Hann mundi vilja fá sem mest af peningaverslun landsins í sinn eiginn banka. En þarna skilur mikið á milli. Landsbanki Íslands er stofnaður og starfræktur til hagsmuna þjóðarheildinni. Hagsmunir hans og hagsmunir alþjóðar fara saman. En einstaklingsstofnun getur rakað saman fje í vasa eigandans, þó að þjóðin bíði tjón af því. Það er skoðun okkar bankaráðsmanna, að með því að hefjast handa um stofnun landbúnaðarbanka, standi þjóðarheildin betur að vígi en áður. Þegar við álitum, að hann gæti orðið til þess að efla íslenskan landbúnað, töldum við það skyldu okkar að greiða götu hans, því að okkur var ljóst, að landbúnaðurinn hlýtur að vera tryggasti atvinnuvegur landsmanna, þó að hann sje engin uppgripatekjugrein. Og um leið og landbúnaðurinn er trygður, er trygður þjóðarbúskapurinn, og þá um leið sá banki, sem þjóðin á. En hv. 1. þm. Reykv. lítur alt öðrum augum á þetta mál. Hann lítur svo á, að landbúnaðurinn sje ekki fær um að nota lánsfje til sinnar starfrækslu, og því eigi ekki að greiða fyrir lánsstofnun handa honum. Mjer finst hv. þm. vera að gefa sjálfum sjer utan undir, þegar hann um leið vill selja Landsbankanum í hendur þessa starfrækslu. Það ætti þó að vera jafnhættulegt fyrir hvorn bankann sem er.
Hv. þm. finst landbúnaðurinn ekki vera fær um að ávaxta lánsfje. í því sambandi mintist hann á bankaútibúið á Selfossi. Það er að vísu rjett, að þar hefir tapast nokkurt fje, og jeg skal geta þess, að það mun vera búið að afskrifa 320 þús. kr. En þess verður að gæta, að það eru alveg óvenjulegir tímar, sem útibúið hefir starfað á. Þegar það var stofnað og meðan mestum hluta fjárins var veitt út til bænda, stóð yfir mesta lággengistímabilið, og síðan var krónan hækkuð alveg fyrirvaralaust svo mikið, að það hlaut að koma hart niður á þeim mönnum, sem fengið höfðu lán. Skuldimar voru mestar árið 1923, ca. 2 miljónir. Nú er sem sagt búið að afskrifa 320 þús. kr., og það eru þó ekki nema 16% af skuldunum, ekki einu sinni það, sem gengishækkuninni nemur. Það er ekki eins mikið og sá sjerstaki skattur, sem á lántakendur var lagður með gengishækkuninni. Jeg held, að út frá þessu sje óhætt að draga þá ályktun, að ef engar sjerstakar ráðstafanir hefðu verið gerðar af ríkisvaldsins hálfu til þess að þyngja þessar skuldir, þá hefðu þær borgast upp. Um leið og bankinn er stofnaður, verður því að fara fram festing gjaldeyrisins, enda má segja það hv. þm. (MJ) til hróss, að þar er hann í fullu samræmi við sjálfan sig. Hann er á móti festingu og hann er á móti bankanum. En frá sjónarmiði þeirra, sem álíta, að þetta eigi að gera, hlýtur það að koma jafnhliða, að sjá um, að lántakendum verði ekki íþyngt með gengishækkun.
Um svipað leyti og stofnað var útibúið á Selfossi, var stofnað annað útibú á Eskifirði, sem skifti eingöngu við sjávarútvegsmenn, og þar hafa verið afskrifaðar á 3. milj. kr. Að vísu er það nokkuð meira fje, sem staðið hefir í útlánum þar, eða um 31/2 milj. kr. þegar mest var, en allir sjá á þessu hinn geysilega mun á aðstöðu landbúnaðar og sjávarútvegs til þess að skila aftur fjenu. Útibúið á Selfossi getur því ekki talist nein sönnun fyrir því, að bændur geti ekki greitt lán sín, ef ástandið er ,normalt. Hitt er alveg rjett, að landbúnaðurinn er ekki fær um að bera lán með háum vöxtum, venjulegum víxilvöxtum, enda er það alþekt, að allar þjóðir, sem nokkuð vilja gera fyrir sinn landbúnað, leggja mikla áherslu á að sjá honum fyrir lánum með góðum kjörum. Og það mun sannast, að ef nokkuð verður til þess að lyfta íslenskum landbúnaði, þá er það þetta. Þá er Landsbanki Íslands líka trygður, hann, sem hvílir á herðum alþjóðir með öllum sínum skyldum.
Það er alveg rjett, að landbúnaðinum er mikill styrkur að því að njóta þeirrar aðstoðar löggjafarvaldsins, sem honum er trygð með jarðræktarlögunum. En það nægir ekki. Það er ekki nóg að rækta jörðina. Menn verða líka að geta keypt sjer bústofn og bygt yfir hann, og menn verða að hafa fje til að reka bú sín. Það hlýtur því að haldast í hendur, að um leið og ræktunin eykst, verða búin að stækka.
Það eina, sem gæti verið varasamt gagnvart Landsbankanum í þessu sambandi — og hv. þm. fór líka inn á það —, er það, að sparisjóðsfje landsmanna yrði kannske beint frá Landsbankanum og í þennan nýja banka. En jeg man svo langt, að hv. þm. hjelt langa ræðu í fyrra, þegar Landsbankafrv. var hjer á döfinni, og þótti þá ekki anda köldu frá Framsóknarflokknum til Landsbankans. Þá var verið að tryggja bankann, og hv. þm. þótti nóg um. Og aðalrök hans voru þau, að það væri verið að hleypa sparisjóðsfje inn á Landsbankann, en það gæti verið honum hættulegt sem seðlabanka. Það er rjett, ef Landsbankinn hefði ekki örugt ráð til að draga úr sparisjóðsfjárstraumnum að honum. Það kemur því úr hörðustu átt, þegar hv. þm. er nú að kvarta undan því, að sparisjóðsfje verði beint frá Landsbankanum,
Nei, hv. þm. verður að viðurkenna, ef hann vill viðurkenna það, sem rjétt er, að það er sitthvað að líta á Landsbankann sem einkastofnun, sem ekki sjer út fyrir sinn þrönga hagsmunahring, eða sem lánsstofnun til þess að byggja upp sterk og alhliða viðskifta- og atvinnumál. (MJ: Hv. þm. hefir misskilið mig. Jeg sagði ekki þetta). Jeg gat ekki skilið það öðruvísi, enda veit jeg ekki, hvað þetta innskot hv. þm. um bankann sem einstaklingseign hefir átt að sanna annað en þetta.