29.04.1929
Efri deild: 56. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í B-deild Alþingistíðinda. (466)

83. mál, lögreglustjóri á Akranesi

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Ræða: hv. þm. Snæf. gaf mjer ekki mikið tilefni til athugasemda, en jeg vildi samt sem áður benda á það, að frv. ber það með sjer, að það hvílir engin skylda á Ytri-Akraneshreppi að greiða hluta af launum þessa manns. En því er slegið föstu, að þegar Ytri-Akraneshreppur vill fela þessum manni hreppstjórnarstörf, þá á hann að semja við ríkisstj.... (JóhJóh: Nei, nei, við hreppsnefndina). Það stendur hjer í frv. — með leyfi hæstv. forseta:

„ .... fær hann að auki laun fyrir þau úr sveitarsjóði, samkvæmt samningi milli hreppsnefndar og ríkisstjórnar“.

Ef Ytri-Akraneshreppur vill ekki greiða manni þessum það kaup, sem ríkisstj. telur hæfilegt, þá er hreppurinn ekki skyldur til að nota hann til neins. Alt öðru máli væri að gegna, ef frv. legði kvöð á hreppinn að greiða honum fast og ákveðið kaup. Með þessu ákvæði er slegið föstu því, að hjer sje um opinberan starfsmann að ræða, og ætla jeg ekkert um það að fást út af fyrir sig. Jeg vil því mæla með því, að frv. þetta nái fram að ganga með þeirri breyt., að 1. gr. sje sniðin upp. En eins og frv. liggur nú fyrir, þá get jeg með engu móti felt mig við það. Sjerstaklega finst mjer það óviðeigandi, að farið skuli vera svo mjög eftir till. hreppsnefndar. Mjer finst nógu langt gengið með því að gefa hreppsnefndinni tillögurjett um þessi efni, en ekki skipunarrjett.