03.05.1929
Neðri deild: 60. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 490 í B-deild Alþingistíðinda. (472)

83. mál, lögreglustjóri á Akranesi

Pjetur Ottesen:

Eins og frv. þetta ber með sjer, hefir sú breyt. verið á því gerð í hv. Ed., að þar hefir verið kipt burt íhlutunarrjetti hreppsnefndar Ytri-Akraneshrepps um það. hvaða maður væri skipaður í þessa stöðu. Þessi breyt. er í fylsta máta ósanngjörn gagnvart hreppsfjelaginu og til stórspillis á frv. En eftir atkvgr. í Ed. að dæma, þá sje jeg ekki, að það muni hafa nein áhrif á endanlega afgreiðslu frv., þó þessu væri kipt í lag aftur hjer. Þess vegna er það, að jeg hefi ekki borið fram till. í þessa átt.