19.03.1929
Efri deild: 26. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 490 í B-deild Alþingistíðinda. (475)

74. mál, sektir

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Þetta frv. flytur allshn. að tilhlutun hæstv. stj., og er það samið af lögreglustjóranum hjer í Reykjavík. Eins og frv. ber með sjer, er tilgangur þess að koma þeirri breyt. á, að sektir megi afplána með vinnu. Grg. frv. er allítarleg og skýrir, hvað fyrir þeim vakir, sem samdi frv.

Það verður að teljast til bóta að veita þessa heimild. Það virðist yfirleitt ávinningur fyrir sektarþola og ríkissjóð, að leyfilegt sje að afplána sekt á þennan hátt. Og það má jafnvel segja, að það sje mannúðlegra og að öllu betur viðeigandi að afplána sekt með vinnu.

Jeg sje ekki ástæðu að láta frá n. hálfu fleiri orð fylgja þessu frv. N. hefir athugað það allítarlega, og jeg vil geta þess, að hún hefir í samráði við mann þann, sem samdi frv., gert á því nokkra breyt.

Þar sem frv. er flutt af n., tel jeg enga ástæðu til, að það fari til n. aftur. Vænti jeg, að hv. d. láti málið ganga áfram án þess.