12.03.1929
Neðri deild: 20. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í B-deild Alþingistíðinda. (515)

3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Aðeins örfá orð út af ummælum hv. þm. Vestm. um það, hvort jeg bæri meira fyrir brjósti hag sveita eða kaupstaða. Veit hv. þm. það ósköp vel, að mínar áhyggjur eru meira bundnar við sveitímar, en hann þarf ekki annað en að athuga framkomu mína í málum, sem snerta Vestmannaeyjar, til þess að sjá, að jeg er kaupstöðunum alt annað en fjandsamlegur. Sem þm. Str. barðist jeg af öllum mætti fyrir ræktunarmáli Vestmannaeyja. Sem ráðh. átti jeg í fyrra tal við hv. þm. Vestm. um hafnarmál Vestmannaeyja og veitti honum þær útskýringar og aðstoð í því máli, sem jeg gat. Hjelt jeg því, að það væru miklu fremur aðrir en hv. þm. Vestm., sem hefðu ástæðu til þess að kvarta undan mjer, enda hefi jeg heyrt, að hann hafi á fundi austur í Eyjum látið falla mjög lofsamleg ummæli um þennan þm. Str., sem hefði verið sjer svo innan handar. Annars álít jeg, að landbúnaðurinn hafi verið hafður svo afskaplega útundan hjá stjórnarvöldunum, að taka þurfi mikla stefnubreytingu til þess að tryggja, að honum verði lyft hærra en áður. Tel jeg það meiru máli skifta heldur en hvernig þeir bítast þessir flokkar, sem í bæjunum berjast.

Hv. þm. Vestm. fann að því, að bæjarstjórnin ætti að kjósa bæjarstjórann, og færði fyrir því ýmsar ástæður, en þegar þær eru athugaðar, sjest, að þær eru einskis virði. Hann sagði, að það væri tilviljunarmeirihl., sem mundi ráða, hver yrði bæjarstjóri, þegar hann er kosinn af bæjarstjórn. Ætti þó að velta minna á tilviljun, þegar kosnir eru allir fulltrúarnir í bæjarstjórnina, heldur en þegar aðeins er kosið um einn mann, Það er rjett hjá hv. þm. Dal., að það er meiri hl. bæjarstjórnarinnar, sem á að ráða stefnunni í bæjarmálunum. Á þar ekki að fara eftir sömu línum og í landsmálapólitíkinni, heldur á bæjarmálapólitíkin að sitja í fyrirrúmi; gildir þetta hvort sem um bæjarstjóra eða bæjarstjórn er að ræða, en auðvitað setur meiri hl. bæjarstjórnarinnar sinn svip á stefnuna.

Þá taldi hv. þm. Vestm., að bæjarstjóri gæti hæglega á stuttum tíma komist í ósamræmi við meiri hl. bæjarstjórnarinnar, og er það rjett. Þessi röksemd hans gildir samt í ennþá ríkara mæli gegn því skipulagi, sem nú er. Gæti vel hugsast, að bæjarstjóri væri í andstöðu við bæjarstjórnina alt kjörtímabilið út, en milli þeirra þarf þó að vera gott samkomulag. Bendir þetta þá á, að það sje að rjettu lagi bæjarstjórnin, sem eigi að kjósa bæjarstjórann, því að þá eru meiri líkur fyrir góðu samkomulagi heldur en ef hann er kosinn af öðrum aðilja. Þá sagði hv. þm., að bæjarstjórinn ætti helst ekki að vera ákveðinn flokksmaður, og væri gott, að minni hl. ætti einhver ítök í honum. Jeg er nú kunnugur hjer í Reykjavík, og hjer er kosinn borgarstjóri með almennri kosningu, og fer þó mjög fjarri, að þessu sje svona varið hjerna. Jeg býst alls ekki við, að núverandi borgarstjóri hjer vilji viðurkenna, að jafnaðarmenn eigi nokkur ítök í sjer. Vil jeg þó alls ekki áfella borgarstjóra á neinn hátt, því að hann er mjög duglegur og um margt hæfur í sínu embætti. Ætla jeg í þessu sambandi að bera af mjer þær sakir, sem hv. þm. Dal. kom með, að jeg hafi kosið hann þegar hann bauð sig hjer fram við borgarstjórakosningar á móti þeim manni, sem nú skipar það embætti.

Bæjarstjórnir eru skipaðar þeim mönnum, sem kjósendurnir hafa falið æðsta vald í málefnum bæjarins. Er því langeðlilegast, að þessir sömu menn ákveði, hver eigi að hafa framkvæmdirnar á hendi í þeim málum, og getur hjer því ekki verið um að ræða að fá völdin í hendur fámennri klíku. Yfirleitt finst mjer rök hv. þm. Vestm. vera svo vaxin, að þau geri miklu fremur að styðja málstað frv. en veikja, og ásakanir hans í minn garð koma sannarlega úr hörðustu átt.