12.03.1929
Neðri deild: 20. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 539 í B-deild Alþingistíðinda. (517)
3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Jóhann Jósefsson:
Hæstv. forsrh. vildi leggja þann skilning í ræðu mína, að hún hefði verið röksemdafærsla með þeim ákvæðum frv. þessa, sem jeg deildi á, en ekki á móti þeim. Hvaða skilning, sem hæstv. ráðh. þóknast að leggja í ummæli mín, þá stend jeg við það, sem jeg sagði, að jeg tel það mjög óheppilegt, að bæjarstjóri sje ákveðinn flokksmaður. Á jeg þar ekki við, að hann megi ekki vera flokksmaður í einhverjum stjórnmálaflokki, heldur það, að jeg vil ekki, að í bæjarmálum láti hann að jafnaði flokkshagsmuni ráða, því að það eru þau mál, sem koma embætti hans við. Hitt á ekki að koma embættisstörfum hans við, hvaða pólitíska skoðun hann hefir. Út af þessum orðum mínum dró hæstv. ráðherra þá ályktun, að jeg teldi t. d. borgarstjórann hjerna í Reykjavík ekki hæfan til þess að vera borgarstjóri, af því að hann væri mjög ákveðinn pólitískur flokksmaður. Þessum ályktunum ráðherrans leyfi jeg mjer að vísa aftur til föðurhúsanna, því að orð mín gáfu ekkert tilefni til þeirra.
Hvað snertir það atriðið, að draga kosningu bæjarstjórans undan valdi kjósendanna í hendur örfáum bæjarfulltrúum, þá verð jeg að telja það miður heppilegt, eins og jeg tók fram áðan. Jeg tel það öldungis sjálfsagt, að hann sje kosinn af sömu aðiljum og bæjarfulltrúarnir, sem sje af öllum kjósendum bæjanna.
Þá óskaði hæstv. ráðherra eftir því, að jeg gæfi frekari skýringu á þeim orðum mínum, þar sem jeg sveigði að ummælum hans í garð bæjanna. Skýringin á þeim orðum mínum liggur hvergi annarsstaðar en í fyrri ræðu hans sjálfs. Það snart mig hálfilla sem fulltrúa fyrir bæjarfjelag, hve kalt virtist anda til bæjanna í ræðu hans. Jeg get ekki hugsað mjer, að hæstv. ráðherra, stöðu sinnar vegna, sje það sama, á hverju veltur í bæjunum.
Þá taldi hann, að ummæli mín hefðu komið úr hörðustu átt, þar sem hann hefði veitt mjer viðtal til þess að ræða við mig um hafnarmál Vestmannaeyinga. Þetta er aldrei nema rjett, en þá kom jeg fram sem talsmaður míns hjeraðs, og jeg taldi mig aðeins gera skyldu mína, eins og t. d. hæstv. ráðherra gerði, þegar hann studdi okkur Vestmannaeyinga í ræktunarmálunum, og eins og jeg gerði, þegar jeg hrósaði honum fyrir það heima í Vestmannaeyjum.
Að endingu skal jeg taka það fram, að jeg álít sum ákvæði frv. þessa svo stórgölluð, að þau dragi alveg úr þeim kostum, sem það annars kann að innihalda.