13.03.1929
Neðri deild: 21. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í B-deild Alþingistíðinda. (528)

3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða

Jón Sigurðsson:

Hv. 2. þm. Reykv. hefir nú aftur endurtekið ósannindi sín frá því í fyrra skiftið. Jeg ætla ekkert að fara að hrekja þau frekar, en jeg skora á hv. þm. að segja nöfn þeirra manna, er hann hefir að heimildarmönnum fyrir þessum sögum sínum. — Í Skagafirði mun mönnum vera vel kunnugt um þessar ferðir mínar, enda tel jeg ekkert ódæði að ferðast um meðal kjósenda minna. Hitt finst mjer mjög óviðkunnanlegt af hv. þm., að fara að flytja slíkar slúðursögur inn í þingið, en það kemur þó engum á óvart, því að þetta er nú einu sinni venja hv. þm.

Þá endurtók hv. þm. fyrri staðhæfingu sína, að jeg væri bergmál af hv. 1. þm. Skagf. Læt jeg mjer það í ljettu rúmi liggja. Er það að vonum, að hann öfundist yfir, að hv. 1. þm. Skagf. verður gott til liðs, þegar hann hugsar til þess, hve fáliðaður hann er sjálfur, og þó ennþá færri, er treysta honum til nokkurs góðs. Jeg get því endurtekið það, að jeg mun aldrei fylgja hv. þm. (HV). Álit hans á mjer sem þm. met jeg að engu. Tek níð hans mjer til inntekta, svo langt er hann fallinn í mínu áliti og margra annara.