18.03.1929
Neðri deild: 25. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 562 í B-deild Alþingistíðinda. (536)
3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Frsm. minni hl. (Magnús Guðmundsson):
Jeg benti á það við 2. umr., að ákvæði 17. gr. brytu í bág við gerða samninga við ýmsa bæjarstjóra landsins, og forsrh. tók vel í það, að gr. yrði breytt, en jeg get ekki sjeð, að nokkur brtt. liggi hjer fyrir. Sjálfur kom jeg ekki með neina slíka till., því að jeg áleit mjer ekki skylt að gera það. En ennþá má koma í veg fyrir þetta, með því að taka málið af dagskrá, en fyrir mjer vakir það, að jeg vil benda á það, að tekið hefir verið eftir þessum annmarka.