20.03.1929
Neðri deild: 27. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í B-deild Alþingistíðinda. (540)
3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Hannes Jónsson:
Jeg á hjer nokkrar brtt. á þskj. 149 og 159. Þessar brtt. ganga allar, að einni undanskilinni, í þá átt að koma lögunum í það horf, að kosningar til hreppsnefnda verði altaf leynilegar. Eins og kunnugt er, þá er leyfilegt að hafa þessar kosningar leynilegar, ef hreppsnefnd ákveður, eða kjósenda, þeirra er í hreppnum eru, fer þess á leit. Það mun þegar vera orðið almennast um þessar kosningar, að þær sjeu leynilegar, en það bakar óþægindi, þegar verið er að grauta með þetta fram og aftur, kosningar ýmist hafðar leynilegar eða ekki. Þar að auki er það ekki laust við, að mismunandi ákvarðanir hreppsnefndar um þetta kunni að miða að því að koma að einhverjum vissum manni eða mönnum, er hreppsnefndarmenn sjálfir hafa augastað á. — Á þingmálafundi, sem haldinn var á Hvammstanga í vetur, var samþ. með öllum atkv. gegn einu tillaga í þessa átt. Þar kom greinilega í ljós vilji manna, því fundurinn var vel sóttur, og held jeg, að flestir hreppsnefndarmenn sýslunnar hafi verið þar staddir, og andmælti enginn. Því þótti mjer skylt að flytja brtt. um að koma lögunum í þetta horf.
Á þskj. 149 er ein brtt. annars efnis. Samkvæmt gildandi lögum ákveður oddviti sýslunefndar, að hreppsnefndarkosningar skuli vera hlutbundnar, ef það mikill hluti hreppsbúa óskar eftir því, sem þarf til að koma einum manni að. í brtt. er farið fram á, að til þess þurfi 1/5 kjósenda, og verða það í flestum tilfellum nokkuð færri menn. Það virðist óeðlilegt að ganga út frá því, að allir kjósendur sæki kjörfund. En þeir einir, sem ætla að sækja kjörfund, láta sig það nokkru skifta, hvernig kosning fer fram. Ef hægt væri að koma því við, að nægilega margir af þeim, sem kjörfund sæktu, fengju vilja sínum framgengt um hlutfallskosningu, mundi það rjettlátast. En aldrei verður fyrirfram vitað, hve margir sækja kosningu, og verður því að miða við þá, sem á kjörskrá standa, og býst jeg við, að 1/5 þeirra mundi á kjörfundi verða svo mikilsráðandi í flestum tilfellum, að þeir kæmu manni að, ef hlutfallskosning væri viðhöfð. Þetta býst jeg við að öllum sje ljóst. Og þó að samkomulag náist ekki um hinar brtt., þá vona jeg þó, að þessi nái fram að ganga.
Að öðru leyti miða brtt. allar að því að koma lögunum í samræmi við önnur kosningalög og ákveða leynilegar kosningar. Skal jeg ekki orðlengja meira um þær, en vænti þess, að hv. þdm. geti fallist á þær.