20.03.1929
Neðri deild: 27. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 569 í B-deild Alþingistíðinda. (543)
3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Lárus Helgason:
Hv. þm. Borgf. hefir tekið margt fram í sinni ræðu, sem jeg hefði annars komið að í þessu máli. Það fór fyrir mjer eins og honum, að mjer kom einkennilega fyrir sjónir þessi brtt. á þskj. 149. Jeg veit ekki betur en að menn megi vel við una að mega velja um kosningaraðferðir, eins og nú gildir. Jeg efast ekki um það, að menn myndu kunna því illa, ef Alþingi færi nú að grípa fram fyrir hendur þeirra og setti þeim flókin lög til að fara eftir, í stað hinna, sem frjálsari eru og ró og friður fylgir. Um leynilega kosningu er það að segja, að hún er alt of fyrirhafnarmikil fyrir bændur, sem mega ekki glata tíma sínum á vorin í slíka skriffinsku. Jeg álít ennfremur, að of mikið hafi verið gert að því að ala upp í mönnum óveruskap með hinum leynilegu kosningum. Því hvað er það annað, sem brtt. þessar miða að, en að hvetja menn til að láta ekki uppi skoðanir sínar opinberlega? Jeg vildi, að við alþingiskosningar væri kosið í heyrenda hljóði sem fyrrum, eins og enn er nú gert í hreppsnefndir, og leynilegar kosningar hefðu aldrei átt að innleiðast, því að fólk venst aðeins á að lofa og svíkja með þessu leynilega pukri, og það er vitanlegt, að þegar um „agitationir“ er að ræða, gera menn mikið að því að lofa öllu fögru án þess að hugur fylgi máli, — og hvað er slíkt annað en óveruskapur? Við þessi vinnubrögð tel jeg rangt að auka, enda er meiningarlaust að kippa fótum undan sjálfstæði og drengskap landsmanna, með því að reyna að gera hverja smákosningu leynilega. Jeg vona því, að hv. deildarmenn greiði þessari brtt. ekki samþykki sitt, og sama er að segja um brtt. á þskj. 116. Jeg álít, að sýslunefndirnar eigi að vera sjálfráðar að því, hvaða kosningaraðferð þær hafa við, og því mun jeg greiða atkv. gegn þessum brtt.