30.04.1929
Efri deild: 57. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 604 í B-deild Alþingistíðinda. (578)
3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Jón Baldvinsson:
Jeg er í raun og vera alveg hissa á hv. 3. landsk., að hann skyldi koma fram með brtt. á þskj. 451 svona illa undirbúnar og vanhugsaðar. Það sjer á, að hann er ekki vanur framkvæmd fátækralaganna og þekkir ekki mikið til hennar. Ef það á að standa, sem segir í brtt. hans, að menn skuli ekki hafa kosningarrjett, ef þeir standa í skuld fyrir þeginn sveitarstyrk vegna leti, óreglu eða hirðuleysis, þá er fátækrastjórnunum þar með lögð á herðar sú skylda, að hafa afarnákvæmt bókhald um ástæður fyrir styrkveitingum, svo að það verði sjeð. Um leið og fátækrastjórnirnar ákveða, hvort þær eigi að veita þessum eða hinum styrk, þá verða þær um leið ,að meta það, hvaða ástæður hafi orðið þess valdandi, að hann varð að leita hjálpar. Nú getur vel svo farið, að siðferði manns bíði hnekki við það að komast á sveitina, og það er ekkert óalgengt, og hann leggist þá í leti og óreglu, og þá verður fátækrastjórnin altaf að vera að meta ástæður hans og framferði upp aftur og aftur. Ef á annað borð á að láta þessa lesti valda missi kosningarrjettar, þá væri sjálfsagt að taka líka með þá menn, sem lifa í leti og óreglu, en er haldið uppi af öðrum, frændum og skyldmennum, eða hafa fengið fje að erfðum og sleppa því við að komast á sveitina. Sje þetta rjett gagnvart fátæklingunum, þá er það líka rjett gagnvart hinum.
Ef hv. 3. landsk. vill koma fram slíkri brtt. sem þessari, þá verður hann að láta það fylgja, að það hafi fallið dómur um það, að maðurinn sje fundinn sekur um þetta, sem varða á kosningarrjettarmissi. Og það er auðvelt eftir núgildandi ákvæðum fátækralaganna; þar er sem sje heimilt að svifta slíka menn fjárforræði. Þetta hefir verið gert hjer í Reykjavík við einstaka menn, og sje jeg ekkert á móti því, þegar þess er þörf, en brtt. hv. 3. landsk. miðar ekki að þessu. Hún er svo ranglátt handahóf, að það nær engri átt að samþ. hana.
Um aðrar brtt. hans ætla jeg ekki að tala, enda hafa aðrir á þær minst. En mjer þótti ástæða til þess að benda á, hversu erfið þessi till. verður til framkvæmda, ef hægt verður að merja hana í gegn.