30.04.1929
Efri deild: 57. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 620 í B-deild Alþingistíðinda. (584)
3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Jón Baldvinsson:
Í raun og veru þarf jeg ekki að deila lengur við hv. 3. landsk. um það, að 1. brtt. hans er afarvarhugaverð að orðalagi. Hann er enda búinn að játa það óbeint, því hann hefir ekki getað gert fullnægjandi grein fyrir því, hvernig hún yrði framkvæmd. Jeg veit til þess, að svo er það hjer í Reykjavík, að ekki er ávalt tekið fram, hvers vegna styrkur sje veittur, og jeg minnist varla að hafa sjeð þær ástæður nefndar, sem brtt. ræðir um. Það gæti orðið nokkuð tafsamt að semja kjörskrá, ef fara þarf í gegnum allar fundargerðir fátækranefndar. Það er ekki svo lítið starf að kynna sjer þær til hlítar. Jeg tala nú ekki um, ef ekki væri þar bókað neitt um, hvers vegna maðurinn hafi þegið styrkinn, sem oft er. Þá verður það einungis að geymast í vitund manna. En þá verður það meira og minna tilviljun, hverjir komast á kjörskrá af þeim, er fátækrastyrk hafa þegið. Þá fer fátækrastjórnin að skapa mönnum kosningarrjett. Það er verið að leggja kosningarrjettinn undir dóm hinna og annara manna, er þurfa alls ekki að vera svo rjettsýnir á slíkt. En það er rjettur hvers borgara að eiga sinn kosningarrjett ekki undir dutlungum hinna og annara; þar um eiga að vera skýlaus ákvæði. Það er heldur ekki letin, hirðuleysið, ómenskan, lestirnir sjálfir, sem verið er að straffa. Það er sjálf fátæktin. Það eru margir með hinum sömu löstum, sem annaðhvort eiga sjálfir peninga eða eiga efnaða að. Þeir missa einskis. Þeim verður ekki haldið í skefjum með öðru en að svifta þá fjárforræði, eins og heimild er til og sjálfsagt er að gera.
Þetta mundi gera erfiðleikana margfalda við samningu kjörskrár. Kvartanir og klögumál myndu ganga milli. Ótal úrskurði þyrfti. Úr þessu mundi verða hreint öngþveiti.
Jeg hefi einu sinni athugað það, hvað mikill hluti þurfamanna Reykjavíkur það var, er talið var í skýrslu fátækranefndar, að þegið hefði styrk vegna leti og ómensku. Það var árið 1922 eða 1923. Mjer taldist svo til, að það væri tæplega 1% af þeim, er fátækrastyrks nytu. Náttúrlega eru þetta svo fáir menn, að þeir hafa að jafnaði engin áhrif á úrslit kosninga, þó það sje hugsanlegt. Það væri því engu stefnt í voða, þó þeir fengju að kjósa. En ef það á að svifta þá kosningarrjetti, sem jeg er út af fyrir sig ekkert á móti, þá er sjálfsagt að svifta þá honum með dómi. Jeg hefi því ásamt hv. 2. landsk. flutt skriflega brtt. við 1. brtt. á þskj. 451, er svo hljóðar:
„Aftan við 1. breytingartillöguna bætist: enda verið sviftir fjárforráðum fyrir þessar sakir. Þetta tekur þó ekki til maka þess, er þannig er sviftur fjárforræði“.
Með þessari till. er einnig skorið úr því vafamáli, hvort maki þess, er í 1. lið greinir, missi einnig atkvæðisrjett eða ekki. Jeg held, að það sje rjett, að hann missi atkvæðisrjett eins og till. er nú orðuð.
Jeg vænti þess því, að þessi till. fái að komast að, til að komið verði í veg fyrir handahóf hv. 3. landsk.