30.04.1929
Efri deild: 57. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 626 í B-deild Alþingistíðinda. (590)
3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Jón Þorláksson:
Út af ummælum hæstv. forsrh., að persónulegar ástæður geti frekar ráðið vali borgarstjóra, ef bæjarbúar kjósa, heldur en ef bæjarstjórn kýs, vil jeg geta þess, að jeg hygg, að hann hafi þar bygt orð sín á misskilningi. Jeg fæ ekki skilið, að persónulegar ástæður fyrir vali borgarstjóra verði útilokaðar með löggjöf, og held, að þær muni ennþá fremur koma til greina við val innan bæjarstjórnar en við almenna kosningu.
Hv. þm. Ak. hjelt því fram, að bæjarstjórinn væri verkfæri í höndum bæjarstjórna, en jeg álít, að hann sje miklu meira. Því til sönnunar vil jeg 'nefna það, að hann sjer einn um framkvæmd fátækralaga og hefir ýms önnur störf á hendi samkv. landslögum, án þess að hann þurfi að fara eftir fyrirskipunum bæjarstjórnar. (EF: Getur hv. þm. nefnt fleiri dæmi?). Já, þetta er aðeins eitt af mörgum.
T. d. má geta þess, að framkvæmd kosningalaga hvílir á borgar- eða bæjarstjórum, og ýmislegt fleira, sem jeg nenni ekki að tína til.
Viðvíkjandi 1. brtt. minni á þskj. 451 vil jeg geta þess, að mjer hefir eigi komið til hugar, að það ákvæði yrði skilið svo, að nokkur maður misti kosningarrjett sinn fyrir leti, ómensku eða hirðuleysi annara en hans sjálfs, enda eru engin lög til, sem ákveða það, en til þess að taka af öll tvímæli, hefi jeg komið með aðra brtt. við þessa brtt. mína, er fer fram á, að tveimur orðum verði bætt aftan við, nefnilega: „sjálfs sín“. Þá hljóðar setningin svo: „Standi ekki í skuld fyrir þeginn sveitarstyrk vegna leti, ómensku eða hirðuleysis sjálfs sín“. Hjer kemur það ótvírætt í ljós, að engan skal setja undir þetta ákvæði, sem ekki hefir gert sig sekan í því, er greinin nefnir.
Um brtt. hv. 2. og hv. 4. landsk. er það að segja, að hún er aðeins smíðalýti og segir ekki annað en það, sem sagt er í 1. og 2. lið. Ennfremur er alger óþarfi að hnýta því aftan í, að kona missi ekki kosningarrjett sinn, þótt maðurinn hafi glatað honum. Sameiginlegar kjörskrár við bæjar- og alþingiskosningar og svo kosningalöggjöfin sjálf ákveða, að svo skuli eigi vera. Sje jeg því ekki nokkra ástæðu til þess að samþ. þessa brtt., því þótt hún verði samþ., segir hún ekki annað en það, sem annarsstaðar stendur í frv.