22.02.1929
Neðri deild: 5. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í B-deild Alþingistíðinda. (6)
14. mál, Búnaðarbanki Íslands
Hákon Kristófersson:
Jeg ætla ekki að ganga langt inn á efni þessa frv. Jeg vil, eins og aðrir hafa gert, þakka hæstv. forsrh. fyrir frv., sem jeg tel lýsa huga hans til landbúnaðarins. Jeg er samþykkur því, er hann sagði um framför sjávarútvegsins og kyrstöðu landbúnaðarins, að hvorttveggja þarf að þróast jafnt. Það er vitanlegt með landbúnaðinn, að hann ber ekki jafndýr lán nje þolir eins stuttan lánstíma og sjávarútvegurinn. Arðurinn samkv. eðli sínu er miklu seinteknari. Með þessu er jeg þó ekki að kasta neinum hnútum að sjávarútveginum; síður en svo. Báðir atvinnuvegirnir þurfa að þrífast. Jeg vil því lýsa ánægju minni yfir frv. í heild, eða stefnu þess. En það eru nokkur orð í greinargerðinni, sem komu mjer til að standa upp. Að vísu er greinargerðin ekki samin af hæstv. forsrh., en hann ber eigi að síður ábyrgð á henni. — Eins og kunnugt er, þá bar íhaldsfl. fram á síðasta þingi frumvarp um rekstrarlán. Því þarf ekki að lýsa nú. Það náði ekki fram að ganga, og máske hefir það heldur ekki verið gallalaust. En þá bar stjórnarflokknum vitanlega að laga frv. En í þessari greinargerð kemur það fram, sem — og það fer betur — ótítt er að sjá í þess háttar álitum, að tekið er dómsvald yfir heilum flokki manna og honum með algerlega órökstuddum ummælum bornar á brýn hvatir, sem honum eru til ámælis.
Í greinargerðinni er sagt, að sá flokkur þingsins, sem sjerstaklega ber hagsmuni sveitanna fyrir brjósti, hafi ekki getað fallist á frv. þetta. Þetta er ókunnuglega og ómaklega mælt hjá Böðvari Bjarkan. Þótt jeg beri hlýjan hug til frv., þá er jeg mjög óánægður með þessa yfirlýsingu í greinargerðinni og tel hana algerlega ómaklega, og jeg vil algerlega mótmæla slíkum ósönnum ummælum — svo jeg ekki viðhafi sterkari orð — hvenær sem þau koma fram. Jeg verð að líta svo á, að jeg og sá flokkur, sem jeg fylgi, sje enginn stjettarflokkur og að við viljum unna öllum stjettum rjettlætis. Og þótt landbúnaðurinn hafi orðið á eftir í framförum, þá hefir enginn flokkur getað lagað það til fulls.
Jeg verð helst að álíta, að tilgreind ummæli hafi farið framhjá hæstv. forsrh., sem flytur frv. og ber því ábyrgð á því. Annars hefði hann hlotið að strika þau út.
Það hefir komið frá till. um, að máli þessu verði vísað til fjhn. Má vera, að það sje rjett, ef það er kallað bankamál. En þar sem fjhn. á áskilinn rjett á að láta álit sitt í ljós um það, þá tel jeg rjett, að málinu verði vísað til landbn.
Að því er kemur til ummæla hv. þm. Ísaf. um lán til ræktunar í nágrenni kaupstaða, þá býst jeg við, að hæstv. forsrh. sje enn ljósari þörfin á ræktuninni til sveita, enda hefir ræktunin í kringum kaupstaðina tekið stórfeldum framförum á síðustu árum.
Að svo komnu mun jeg ekki fara fleiri orðum um þetta mál. Þrátt fyrir aðstöðu hæstv. forsrh. og Framsóknarflokksins til frumvarps okkar íhaldsmanna um atvinnurekstrarlán er jeg hæstv. stjórn þakklátur fyrir það frv., sem nú liggur fyrir, og mun styðja það. Vel má vera, að á því verði gerðar einhverjar breytingar, en vafalaust nær það fram að ganga í öllum aðalatriðum.