03.05.1929
Neðri deild: 60. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í B-deild Alþingistíðinda. (602)
3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Frsm. minni hl. (Magnús Guðmundsson):
Jeg gat ekki fengið betri staðfestingu á því, sem jeg sagði áðan, heldur en þá, sem nú er fram komin, þar sem hv. 2. þm. Reykv. tekur brtt. sína aftur. Annars finst mjer það ekki vera til neins að fara að karpa við hann um fátækralögin frá 1927, en þar sem hann sagði, að Íhaldsflokkurinn væri á móti almennum kosningarrjetti, þá er það ekki annað en vitleysa, sem sjest best á því, að 1927 fórum við íhaldsmenn eins langt og hægt var vegna stjórnarskrárinnar í því að láta þá fá kosningarrjett, sem hafa þegið af sveit.