03.05.1929
Neðri deild: 60. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í B-deild Alþingistíðinda. (607)
3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Frsm. minni hl. (Magnús Guðmundsson):
Deilan um 43. gr. fátækralaganna er gömul og tæpast ástæða til að fara langt út í hana. Jafnaðarmenn finna það að, að sveitarstjórnir eiga að dæma um, hvort sveitarstyrkur sje veittur vegna leti, ómensku eða hirðuleysis. Betri dómstól um þetta er þó ekki hægt að fá, og meðan stjórnarskrá vor er óbreytt, er ekki hægt að komast nær því að afnema fátækrastyrk sem kjörgengisskilyrði og kosningarrjettarskilyrði en gert er í 43. gr. fátækralaganna. Jafnaðarmenn ættu því að þakka íhaldsmönnum fyrir þetta ákvæði 43. gr., ef þeir annars í raun og veru bera hag hinna fátæku fyrir brjósti. Viðvíkjandi því, hvort rjett sje að svifta menn kosningarrjetti vegna leti, drykkjuskapar eða hirðuleysis, þá vil jeg benda á það, að gjaldþrota menn eru sviftir rjettinum. Þó geta menn orðið gjaldþrota fyrir slys og óhöpp. Það getur t. d. brunnið hjá þeim óvátrygt o. s. frv. Hvaða vit er í að svifta slíka menn kosningarrjetti? Ef letingjar og drykkjuræflar eiga að halda sínum kosningarrjetti, þó að þeir sjeu. komnir á sveitina, þá verða gjaldþrota menn að hafa sömu rjettindi. Annars verða lögin ekki sjálfum sjer samkvæm.