12.04.1929
Neðri deild: 43. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1018 í B-deild Alþingistíðinda. (652)
16. mál, fjárlög 1930
Haraldur Guðmundsson:
Jeg bað um orðið í fundarbyrjun í gær og hefi mátt þrauka síðan. Hefir það verið löng bið og leiðinleg. Fyrst vil jeg víkja nokkrum orðum til hæstv. forseta. Jeg hafði orð á því í nótt, að jeg kynni þessum vinnubrögðum illa. Jeg veit ekki, hvort það er tilgangur hæstv. forseta, með ráði stj., að neyða þm. til þess að fella niður eldhúsumræður. Jeg vil ekki beinlínis leggja þetta hæstv. stjórn út til bleyðiskapar. En þetta virðist vera bein tilraun til að fá þm. til að þegja, til að svifta þá málfrelsi. Verði slíkum tilraunum haldið áfram, verði þm. látnir vaka nótt eftir nótt og mælast við syfjaðir, úrillir og sljóir, þarf að setja „vökulög“ fyrir Alþingi.
Jeg þarf líka að bera upp kveinstafi mína við hæstv. forseta út af öðru. Jeg hefi fyrir ærið löngu síðan flutt 3 frv., er ekki hafa komið hjer til umr. enn. Er þó búið að ræða mörg frv., sem síðar hafa komið fram, og hafa verið afbrigði viðhöfð til að flýta ýmsum þeirra. Vænti jeg, að þessar eldhúshugleiðingar mínar verki á hæstv. forseta.
Jeg minnist þess, að í gamanblaði einu hjer í bænum birtist í fyrravetur mynd af stórum manni og gervilegum; ætla jeg, að þar væri kominn oddamaður Framsóknarflokksins, hæstv. fors.- og atvmrh. Klæðnaður hans var með nokkuð undarlegum hætti. Var hann í röndóttum buxum og þóttust menn þar kenna flík af fyrirrennara hans, hv. 1. þm. Skagf. Fóru þær ekki sem best hinum stórvöxnu ganglimum framsóknarkempunnar. Leit út fyrir, að þær röndóttu ætluðu að rifna utan af þeim.
Þegar hv. 1. þm. Reykv. hjelt innreið sína hjer í eldhúsið með beinverkjum og kuldahrolli, eins og hann sjálfur sagði, þá kom mjer þessi mynd í hug. Hv. þm. fann það aðallega hæstv. stj. til foráttu, að hún beitti öðrum aðferðum en fyrv. stj. og hefði tekið upp aðra stjórnarhætti en áður voru tíðkaðir. Jeg verð að kalla þetta oflof um stj. Því er ekki að leyna, að þorri landsfólksins bjóst við, að teknir yrðu upp aðrir stjórnarhættir eftir stjórnarskiftin, að íhaldsaðferðirnar yrðu niður lagðar. Því miður hafa þessir menn orðið fyrir vonbrigðum. Um alt of margt er líkt með framsóknarstj. og íhaldsstj. sáluðu. En nokkur hluti þjóðarinnar hefir ekki orðið fyrir vonbrigðum. Íhaldsmenn hafa ekki orðið fyrir vonbrigðum. Þvert á móti. Stj. hefir reynst þeim geðfeldari en þeir þorðu að vona. Það sanna einmitt orð hv. 1. þm. Reykv., þau er hann síðar talaði. Hann sagði þá, að svo slæm sem stj. væri, þá væri hún þó betri nú en í fyrra. Það þýðir, að „þær röndóttu“ væru farnar að fara betur á hæstv. forsrh. Mín von var sú, að hæstv. ráðh. smækkaði sig aldrei svo, að brækurnar af fyrirrennara hans yrðu við hans hæfi. Jeg hefi orðið fyrir vonbrigðum.
Hæstv. forsrh. er sögufróður maður; hann vitnar stundum í Sturlungu og fjáraukalögin miklu. Jeg ætla að fara hjer að dæmi hans.
Jeg minnist meðal annars tveggja mála, er „Tíminn“, blað „framsóknar“- flokksins, hefir hraustlega barist fyrir. Það er einkasala á tóbaki og einkasala á steinolíu. Þegar Íhaldið hvarf að því óheillaráði að leggja niður tóbakseinkasöluna, stóð Framsóknarflokkurinn sem einn maður gegn því. Þetta er annað þingið, sem framsóknarstj. situr að völdum. En hún hefir enn ekki sýnt neina viðleitni á því að bæta úr afglöpum fyrirrennara sinna, er afnámu tóbakseinkasöluna. Þvert á móti rjeði hæstv. stj. því, að frv., sem við jafnaðarmenn fluttum í þessari hv. deild í fyrra, um að taka tóbakseinkasölu aftur upp, náði ekki fram að ganga. Það væri freistandi að rifja hjer upp nokkur ummæli „Tímans“ áður fyr um steinolíueinkasöluna og bera saman við aðgerðaleysi stj. nú. Jeg skal þó að þessu sinni einungis minna á smágrein, sem stóð í blaðinu 1. des. síðastl., sjálfan fullveldisdaginn. Grein þessi er um olíuverslunina. Þar er skýrt frá því, hvernig ólukku íhaldið hafi „murkað“ lífið úr olíueinkasölunni og að þá hafi það óspart hampað þeirri „falskenningu“, að samkepnin mundi halda olíuverðinu niðri. Er ennfremur frá því skýrt, að þá fyrir nokkrum dögum hafi öll olíufjelögin þrjú hækkað verðið sama dag, auglýst sömu verðhækkun og sama verð samtímis, öll þrjú. Af því dregur „framsóknar“-blaðið þá ályktun, alveg rjettilega, að um enga samkepni sje að ræða. Þetta sýnir greinilega, að „Framsókn“, blaði hennar og þingmönnum eru ljós falsrökin, er Íhaldið bar fram við afnám einkasölunnar. En hví í ósköpunum á þá ekki að bæta úr þessu? Ennþá er allur vjelbátaflotinn ofurseldur þessum 3 erlendu steinolíufjelögum. Framsóknarmenn hafa bæði í ræðu og riti, og það ekki að ófyrirsynju, haldið uppi harðri ádeilu á eitt fjelaganna. Þeir hafa bent á stórhættu, sem af því geti stafað. Hjer í hv. deild var í gær sýnt fram á það, að í þessu fjelagi hafa erlendir menn tvö atkv. móti hverju einu, sem Íslendingar hafa. Þetta hefir verið harðlega vítt og að maklegleikum. En hví kippir Framsókn þessu ekki í lag? Það er ofurauðvelt. Ef einkasala er upp tekin, þá er fjelagið úr sögunni. Er Framsókn snúinn hugur í þessu máli? Og ef svo er, hví ekki að skýra þá frá því? Á að leyna því fyrir þjóðinni? Það er áreiðanlegt, að kjósendur hafa væntst þess, að flokkurinn mundi verða samkvæmur fyrri framkomu sinni í þessum málum, myndi standa við loforð sín, bein og óbein.
Sama er að segja um tóbakseinkasöluna. Einn hv. íhaldsþm., hv. 2. þm. G.-K., hafði orð á því einhverntíma á fundi, að það væri rangt að taka brauð 10 frá börnunum, þ. e. a. s. tóbaksgróðann frá tóbakskaupmönnunum. Er Framsókn orðin sammála þessu? „Tíminn“ hefir þó margt stórt orðið talað og atyrt að makleikum m. a. hv. 1. þm. Skagf. og sagt hann hafa drepið sitt eigið afkvæmi, og er það síst ofmælt. Hví sýnir stj. slíkt tómlæti í þessu? Er of mikið fje í ríkissjóði? Eða er það líka orðið glapræði í hennar augum að „taka brauðið frá börnunum“: tóbakið frá tóbakskaupmönnum, þar á meðal hv. 2. þm. Reykv.? Það væri gott að fá að heyra eitthvað um þessa hluti. Þetta eru mál, er voru efst á baugi fyrir kosningarnar síðast. Um framkvæmdir þarf ekki að spyrja; þær eru engar. En hvað er um fyrirætlanir? Jeg flutti hjer í fyrra till. til þál. um einkasölu á steinolíu. Jeg fjekk henni komið á dagskrá síðasta klt. þingsins. Nú flyt jeg hana aftur. í Ed. er komið fram frv. um einkasölu á tóbaki. Það verður því bráðlega hægt að sjá, hver alvara Framsóknarflokknum er í þessum málum, en stj. verður að svara fyrir sig hjer nú.
Jeg man það, að blöð Framsóknarflokksins og þingmenn hans hafa oftlega og að makleikum vítt framkvæmdastj. íhaldsins. Það hefir verið flett ofan af margskonar sukki, fjárdrætti og sviksemi, er þróast hafði undir verndarvæng þess. Það hefir verið talsvert gert til þess að hreinsa til. Það hefir verið hreinsað til í Brunabótafjelaginu og áfengisversluninni, framin gagngerð rannsókn á embættisfærslunni á Patreksfirði og hjer í Reykjavík og yfirleitt skerpt eftirlit með embættismönnum og lagabrjótum, t. d. bannlagabrjótum. Alt var þetta rjett og skylt og sjálfsagt að gera. í þessu hefir stj. til þessa reynst stórum betri en fyrirrennari hennar. En einmitt af þessum sökum er það enn undarlegra, jeg vil segja hörmulegra, að á Seyðisfirði er maður starfsmaður landsverslunar, sem opinber sjóðþurð er hjá ár eftir ár. í landsreikningunum árið 1927, aths. yfirskoðunarmanna, stendur þessi klausa:
„Sjóðþurð reikningshaldara á Seyðisfirði hefir aukist um kr. 35657,18, úr kr. 95404,06 upp í kr. 131061,24“.
Þetta minnir á, hvernig sjóðþurðin í Brunabótafjelaginu magnaðist ár frá ári, og er leitt til þess að vita, að hæstv. stj. skuli ekki hafa sýnt sama skörungsskap þar austur frá sem annarsstaðar.
Hvað veldur? spyrja menn. Er stj. að gefast upp? Eða er þetta gæðingur hennar? Ætlar hún að fara að dæmi fyrirrennara sinna og hlífa sínum mönnum?
Þá minnist jeg þess og, að foringjar og blöð Framsóknarflokksins hafa, og það mjög að maklegleikum, veitst að foringjum Íhaldsflokksins fyrir þröngsýni þeirra og flokkshagsmunapólitík, fyrir það, að íhaldsfl. hugsaði eingöngu um það, að koma fram hagsmunamálum fámennustu stjettarinnar í landinu, burgeisanna, máttarstólpanna í Íhaldinu. Þeir hafa og sýnt, hvernig t. d. ríkislögreglufrv. var bein tilraun til að tryggja aðstöðu stóratvinnurekendanna til þess að kúga alþýðuna í landinu í kaupdeilum. Ennfremur hafa þeir sýnt fram á, hvernig öll framkoma íhaldsins í verslunarmálunum gekk út á það, að láta stórkaupmennina halda sem mestu af gróða sínum.
Það skal nú játað, að það hefir ekki borið verulega á því, a. m. k. ekki í fyr en nú upp á síðkastið, að núv. stj. gengi erindi þessarar stjettar. En hún hefir komið fram og litið of einhliða á sig sem bændastj. Hún hefir illu heilli að því leyti fetað í fótspor fyrv. stj., að hún lítur aðallega á hag einnar stjettar. Ber fjárlagafrv. þess greinilegan vott, sem og önnur frv., sem hæstv. stj. hefir borið fram. Þar er eins og hún sjái ekkert fólk nema bændurna. Sjómenn og verkafólk yfirleitt virðist fyrir utan sjóndeildarhring hæstv. stj.
Framsóknarflokkurinn hefir veitt Íhaldsfl. þungar ákúrur fyrir það, að hann virti ekki þingræði og lýðræði, og eru það mjög rjettlátar ásakanir. En það virðist samt svo í þessu efni, sem íhaldsbuxurnar fari skrambans laglega á framsóknarforingjunum, því enginn hefir fjandskapast eins gegn rjettlátri kjördæmaskipun og hæstv. forsrh. En það er mála sannast, að lýðræðið er hjer ekkert annað en skrípaleikur, meðan núv. kjördæmaskifting ekki er lagfærð.
Þm. Framsóknar og hæstv. stj. hafa oft og einatt vítt fjármálastj. Íhaldsins í atvinnumálum okkar og þá leynd, er hvílir yfir atvinnurekstri þeirra fáu manna, er sölsað hafa undir sig mikið af veltufje þjóðarinnar. Framsóknarforingjarnir hafa oft heimtað rannsókn á atvinnurekstri þessara manna og ráðsmensku þeirra; a. m. k. 2 ráðh. hafa lýst því yfir hjer í hv. í deild, að tap bankanna, á þessum mönnum aðallega, mundu nema um 20 milj. kr. Ef nokkur alvara hefði fylgt þessum orðum framsóknarforingjanna, þá átti hæstv. ríkisstj., sem nú er hæstráðandi bankanna beggja, að láta það verða sitt fyrsta verk að gefa út skýrslu um töp og eftirgjafir bankanna, er sýndi, á hverjum hefði tapast og af hvaða orsökum. 20 milj. eru enginn smáskildingur fyrir þjóð, sem telur aðeins 100 þúsundir. Þetta hefir hæstv. stj. ekki gert, svo um þetta veit almenningur alls ekkert ennþá, og jeg efast meira að segja um, að fjhn. Alþingis viti nokkuð þar um. Ætlar nú hæstv. ríkisstjórn ennþá að nota íhaldsbrækurnar og halda hlífiskildi leyndarinnar yfir öllu því og öllum þeim, sem valdið hafa þessum tugmiljóna töpum af fje þjóðarinnar?
Jeg hefi nú drepið á nokkur atriði til þess að sanna orð hv. 1. þm. Reykv., að stj. hafi batnað frá hans sjónarmiði. Það hlýtur þá annaðhvort að vera, að ganglimir hæstv. forsrh. sjeu farnir að rýrna, eða þá að íhaldsbrækurnar hafa víkkað. Það síðara er áreiðanlega ekki tilfellið. Íhaldsbrækur eru ekki teygjanlegar. Því miður held jeg að það fyrra sje nær sanni. En það mundi stórlega gleðja mig, ef ganglimir hæstv. forsrh. færu nú að stælast aftur og hann gæti alveg losnað við þessa íhaldslarfa.
Af því, sem jeg hefi sagt, verður það skiljanlegt, að suðan á þessum eldhúsdegi er ekki sjerlega snörp, heldur sannkölluð moðsuða. Ágreiningurinn er svo nauðalítill. Það er nartað og nuddað um smáupphæðir, svo sem 500, 700 og 1000 kr. ferðastyrki eða starfslaun. En það, sem máli skiftir fyrir þjóðina í heild sinni, minnist enginn á. Alt þetta eldskraf íhaldsins er því innantóm orð, sum stór og ljót, en jafninnantóm fyrir því. Tómahljóðið stafar ekki af því, að syndir stj. sjeu ekki stórar og margar, heldur af hinu, að andstæðingar stj. eru fullkomlega ánægðir með vanrækslusyndir hennar. En vanrækslusyndirnar eru einmitt höfuðsyndir hennar. Þótt hún hafi ýmsar ásetningssyndir á samviskunni, eru þær smámunir í samanburði við vanrækslusyndirnar.
Það var trú ýmsra, er Framsókn tók við völdum, að bætt mundi úr mörgu því, er ábótavant var í opinberu lífi þjóðarinnar, og að tekið mundi verða með meiri festu á málunum yfirleitt. En þetta hefir ekki verið gert, og er það þung ásökun á núv. hæstv. stj. Hún hefir ekki viljað eða ekki þorað að fást Við hin stærri málin og hefir virst hálffeimin við að tala um þau. Vil jeg í því sambandi benda á till. okkar jafnaðarmanna um rannsókn á hag og rekstri togaraútgerðarinnar og till. okkar um einkasölu á steinolíu. Það er eins og framsóknarmenn hafi beinlínis verið hræddir við að minnast á þessi mál. Og þó þeir geti ef til vill ekki verið mjer sammála um skipun þessara mála, þá skyldi jeg virða það við þá, ef þeir fengjust til þess að ræða þau og lýsa sinni skoðun á þeim, ef þeir þá hafa um þau nokkra skoðun. Sama er um hæstv. stj. Blöð þeirra eru þó það framsæknari, að þau þora þó að drepa á þessi mál einstaka sinnum.
Þetta eru nú hugleiðingar í sambandi við almennar vanrækslusyndir stj. En svo hefir hún ennfremur vanrækt að gera það, er Alþingi í fyrra ætlaðist til að hún gerði og beinlínis lagði fyrir hana að gera.
Í fyrra, eftir að stjórnarskiftin urðu og íhaldið hafði tapað við kosningarnar, var Alþingi stórhugaðra en áður. Það rjeðst í það að gera stórfeldar breyt. á síldarversluninni, þó það að vísu gengi þar allmjög skemra en við jafnaðarmenn hefðum kosið. Þá var og samþ. heimild fyrir ríkisstj. til þess að taka lán til að ljúka við byggingu landsspítalans fyrir 1930. Ennfremur var samþ. að byggja útvarpsstöð og skorað á stj. að undirbúa frv. um almennar ellitryggingar. Þá voru og samþ. lög, er heimiluðu hæstv. stj. að taka lán til þess að tryggja sölu veðdeildarbrjefa. Enn var og samþ. að smíða strandferðaskip og byggja síldarbræðslustöð, og að lokum voru gerðar allmiklar breyt. á landsbankalögunum; til hans á að leggja 3 milj. kr. Hvað hefir nú stj. gert í þessum málum? Skal jeg nú víkja nokkuð að framkvæmdum hennar eða öllu heldur framkvæmdaleysi í þessum efnum, Þar sem jeg ekki veit til fulls, mun jeg leyfa mjer að spyrja hæstv. stj.
Á fundi í Sþ. síðastl. ár var samþ. þál. þess efnis, að skora á ríkisstj. að nota lánsheimild þá, er hún hafði til þess að ljúka við byggingu landsspítalans fyrir 1930. Nú er þegar búið að leggja í þessa byggingu um 780 þús. kr. Þar af eru 480 þús. frá ríkinu, en 300 þús. úr landsspítalasjóði. En alls er gert ráð fyrir, að spítalinn kosti 1 milj. og 200 þús. kr. Nú eru í þessa árs fjárl. veittar til hans 100 þús. kr. og 60 þús. munu vera óeyddar af síðasta árs veitingu. Vantar þá ennþá 260 þús., svo að hann geti komist upp fyrir 1930. Jeg veit nú að vísu ekki, hvað byggingin er komin langt, en jeg hygg þó, að ekkert sje því til fyrirstöðu, að verkinu verði lokið fyrir 1930, ef nægilegt fje er fyrir hendi. En jeg vil jafnframt taka það fram, að jeg álít óhjákvæmilegt að byggja jafnframt starfsmannabústað, því það tekur alt of mikið rúm frá sjúklingum, ef starfsfólkið á að búa í spítalanum. Jeg skal ekki tala um þá hagsýni, sem í því felst að láta þessa byggingu standa ónotaða og arðlausa í mörg ár. Hitt er öllum ljóst, enda meira um vert, að þörfin er mikil á því, að spítalinn taki til starfa, bæði vegna sjúklinganna og læknakenslunnar í landinu. Jeg veit ekki, hvort ríkisstj, er samkv. samningum sínum við landsspítalanefndina skylt að lögum að hafa reist hann fyrir 1930, en þó hygg jeg það; en svo mikið er víst, að það er vilji allrar þjóðarinnar, að hann verði kominn upp fyrir það ár. Vil jeg því óska andsvara um það frá hæstv. stj., hvort svo verði eða ekki, og jafnframt átelja, hve lítt þessu verki er hraðað nú, þegar stj. virðist hafa fullar hendur fjár.
Á fundi í Nd. í fyrra var samþ. þál. um að skora á stj. að láta rannsaka, hvað það mundi kosta að koma upp ríkisprentsmiðju. Hefi jeg heyrt hjer við þessar umr., að til þess hafi verið greiddar 1400 kr. Mun það hafa verið hv. þm. Borgf., er hneykslaðist mjög á þessu. En maðurinn, sem fjekk þetta, var reyndar bróðir minn, svo það getur verið, að það hafi valdið gremju og eftirtölum þessa hv. þm. Jeg hefi átt kost á að kynna mjer þá skýrslu, er maður þessi gaf stj., og till. hans. Án þess að jeg fari frekar út í efni hennar, skal jeg geta þess, að með því að koma þessari prentsmiðju á fót mundi mega spara ríkinu árlega marga tugi þúsunda. Prentunarkostnaður ríkissjóðs mun nú vera í alt hátt á 3. hundr. þús. kr. árlega. Eftir þeim upplýsingum, er fyrir liggja, mundi prentsmiðja með um 150 þús. kr. stofnkostnaði geta annað þessu. Það verður því að teljast hreinasta glapræði, ef stj. snýr sjer ekki að framkvæmdum í þessu máli, enda var það tilætlun d. í fyrra. Hvers vegna er skýrslan ekki lögð fyrir þingið?
Þá furðar mig á því, að stj. skuli ekki enn hafa sýnt einhvern árangur af undirbúningi þeim undir fullkomnar ellitryggingar, sem henni var í fyrra skipað að gera. Var þó tilskilið, að hún ljeti leggja frv. þessa efnis fyrir þetta þing. Að vísu hefir verið flutt í Ed. af einum þm. einhver lítilsháttar breyt. á ellistyrktarlögunum, en hún er aðeins kákbreyt. og ekki til hins minsta gagns. Furðar mig á því, að hæstv. stj. skuli ekki vilja stíga þetta spor í mannúðaráttina, skuli ekki einu sinni hlýðnast beinni fyrirskipun um að leggja frv. um þetta efni fyrir þingið. Vona jeg, að hún bæti nú nokkuð úr þessu með því að styðja till. mína um almannatryggingar.
Þá kem jeg að útvarpsstöðinni. Hefir áður komið fram fyrirspurn um þetta mál og hefir hæstv. forsrh. svarað því, að ekki væri hægt að byrja á þessu fyrirtæki vegna þess að ekki væri ennþá búið að ákveða, hvaða bylgjulengd stöðin skyldi hafa. Jeg vil nú ekki beinlínis bera brigður á þetta, en held þó, að það geti varla verið því til fyrirstöðu, að hægt sje að gera meira að undirbúningi málsins en gert hefir verið. Veit jeg fyrir víst, að öllum almenningi er það mikið áhugamál, að stöðin komist upp sem allra fyrst. Tómlæti hæstv. stj. í þessu menningarmáli gegnir hinni mestu furðu.
Og hvað er um lánið til kaupa á veðdeildarbrjefum? Mjer hefir helst skilist á þeim svörum, sem gefin hafa verið því viðvíkjandi, að ekki væri búið að útvega þetta fje ennþá. Stj. vill láta líta svo út, sem hún skilji vel þarfir bændanna fyrir bættum lánskjörum, en hún ætti líka að skilja þörf þeirra, er taka lán úr veðdeildinni. Ugglaust þekkir hún kjör eða rjettara sagt ókjör þau, er lántakendur þar verða að sætta sig við. En þau eru þessi: Veðdeildin lánar yfirleitt aðeins út á h. u. b. 14 af húsverðinu. Auk þess eru afföllin af lánum og varasjóðstillagið 12%, svo lántaki fær ekki útborgað nema 88 kr. af hverjum 100, er hann tekur að láni. Verða því raunverulegir vextir nærri 7% p. a. Eftir þessum dýru lánum verða menn að bíða missiri, ár eða jafnvel lengur, meðan sala brjefanna ekki er trygð.
Enn er það strandferðaskipið, sem jeg vildi minnast á. Hefi jeg ekki ennþá heyrt, að byrjað væri á byggingu þess. Er það svo, að hæstv. stj. sje hætt við að byggja það, þvert ofan í yfirlýstan vilja þingsins? Telur hún heppilegra, að erlend skip annist strandferðirnar? Um þetta alt vildi jeg gjarnan fá skýr svör.
Þá er það síldarbræðsluverksmiðjan, sem jeg vildi minnast örlítið á. Hefi jeg ekki heyrt, að byrjað hafi verið á byggingu hennar ennþá, þrátt fyrir alldýran undirbúning. Mun það hafa verið Jón Þorláksson verkfræðingur, er rannsakaði þetta mái fyrst, gerði áætlun um stofn- og rekstrarkostnað, en eftir því, sem síðar upplýstist, mun hafa orðið hjá honum slysaleg reikningsskekkja, svo að jafnvel munaði 100% á rekstrarútkomunni. Jeg tók ekki eftir því, að hv. þm. Borgf. mintist á þá þóknun, er Jón fjekk fyrir þetta, þegar hann var að telja upp bitlingaaustur stj. Það hefir tíkast til fallið niður hjá honum, og það af skiljanlegum ástæðum. En hvað sem þessu líður, þá er það víst, að verksmiðjan verður ekki komin upp fyrir næsta síldveiðitíma. Er það þó hin mesta nauðsyn, því eins og nú er, eru þeir, sem ekki geta saltað síld sína, ofurseldir þeim, er eiga bræðslustöðvarnar. Annaðhvort verða þeir að selja bræðslustöðvunum síldina fyrir það verð, er þær vilja gefa fyrir hana, eða fleygja henni að öðrum kosti. Og síldareinkasalan verður ekki trygð nema bræðslustöð sje stofnsett í sambandi við hana.
Hvað viðvíkur Landsbankanum, þá vil jeg spyrja hæstv. stj., hvort hann sje búinn að fá þær 3 milj., er honum ber samkv. lögunum frá í fyrra. Jeg hefi heyrt mjög ótrúlega sögu um þetta, sem jeg held, að jeg verði að segja hv. dm. En sagan er á þá leið, að ríkisstj. hafi að vísu greitt bankanum í orði kveðnu þessa upphæð, 3 miljónir, en hafi fengið hana að láni hjá bankanum sjálfum. Ef þetta er satt, þá er hjer fundin mjög auðveld leið til þess að útvega bankanum eins mikið fje og hann þarf á hverjum tíma; það er bara að láta bankann lána ríkinu eða sjálfum sjer fjeð. En jeg verð samt að leyfa mjer að efast um gildi þessarar ágætu(!) aðferðar.
Hvað veldur nú þessu, að svo miklu minna hefir verið gert í þessum efnum en þingið í fyrra ætlaðist til? Er ríkissjóðurinn tómur? Þó að svo væri, þá afsakar það ekki aðgerðaleysið, því ríkisstj. hefir haft nægar lántökuheimildir og lánstraust erlendis. En ríkissjóðurinn er ekki tómur; ekki er einu sinni sú afsökun fyrir hendi. Samkv. því, er hæstv. forsrh. sagði í fjárl.ræðu sinni fyrir nokkrum vikum, þá var 11/2 milj. kr. tekjuafgangur síðastl. ár. Hefði nú tekju- og eignarskattsviðaukinn verið innneimtur í ár, en hann hefir verið áætlaður 400 þús., þá hefði stj. haft 1900 þús. kr. tekjur umfram gjöld til ráðstöfunar á þessu ári og liðnu ári. Með öðrum orðum, þá hefði verið hægt að byggja bæði strandferðaskip og síldarbræðslustöð og jafnvel að ljúka við landsspítalann líka án þess að taka nokkurn eyri að láni. Þá hefði ekki verið eftir nema útvarpsstöðin, og til hennar hefði mátt taka lán, ef ekki yrði afgangur á fjárlögum þessa árs, er nægði til að byggja hana.
Jeg hefi nú að mestu lokið við það, er jeg vildi hafa sagt til hæstv. stj. En jeg vil þó bæta því við, að allra hluta vegna væri best, að óskir þær og vonir, er hv. 1. þm. Reykv. bar fram í fyrradag um áframhaldandi „bata“ hjá stj., verði tálvonir. Það yrði bæði Framsóknarflokknum og hæstv. stj. fyrir bestu, og jeg er ekki í vafa um, að það yrði meiri hl. landsmanna fyrir bestu. Stj. verður að láta sjer skiljast, að hún getur ekki verið beggja vin og báðum trú, hún getur ekki þjónað tveimur herrum, bæði íhaldsherrunum og alþýðu allri. Batnandi stj. í íhaldsaugum er versnandi stj. í augum almúgans. Þjóðin hefir afþakkað íhaldsstjórnina. Hún mun afþakka hverja íhaldsstj., engu síður þótt hún kalli sig framsóknar-bændastjórn.
Hingað til hefi jeg setið hjá við eldhúsumr. En það hefir samt farið svo, að þegar ýmsir hv. þm. hafa verið að skeyta skapi sínu á hæstv. stj., þá hafa þeir jafnframt þurft að hnippa í mig. Sjerstaklega var það hv. 1. þm. Skagf. Hann tók svo til orða í gær, að ríkisgjaldanefndin hefði verið skipuð til þess eins að snuðra um gerðir íhaldsins. (MG: Rjett). Þetta játar hann nú í einfeldni síns hjarta, og fer þá mönnum að skiljast, hvers vegna ríkisstj. er ekki vel sjeð á ýmsum stöðum. Íhaldinu er ekki vel við, að uppvíst verði um gerðir þess og ráðstafanir ýmsar. En ef alt væri nú hreint hjá þeim hv. íhaldsherrum, hefðu þeir mátt verða fegnir að fá jafntrúverðuga menn og mig og Björn í Grafarholti til að athuga gerðir þeirra og skýra frá sparsemi þeirra og viturlegum ráðstöfunum. Enginn hefir mjer vitanlega borið brigður á það, að skýrsla okkar væri rjett í alla staði. (JJós: Jú, blaðið Tíminn). Ætli hv. þm. Vestm. lesi ekki Tímann líkt og ónefnd persóna biblíuna? Íhaldsblöðin, sem sí og æ hafa reynt að rægja og níða nefndina, hafa ekki getað bent á, að neitt væri rangt í skýrslu hennar. Þau hafa sagt, að störf n. væru hjegómi einn, að n. væri gagnslaus, skýrsla hennar væri marklaust hjal og með þessu væri verið að kasta fje ríkissjóðs í Harald Guðmundsson, til þess að hann hefði eitthvað að jeta, og þar fram eftir götunum. Jeg hefi auðvitað látið þetta sem vind um eyrun þjóta og ekki sint því hið minsta. En þetta sýnir, að íhaldið hefir orðið því sárreitt, að birtur var sannleikurinn um fjáraustur þess og bitlingabruðl. Sannleikur, sem það altaf hefir kappkostað að leyna fyrir landsfólkinu.
Jeg var svo óheppinn, að jeg heyrði ekki ræðu hv. þm. Borgf. í gær; hún var víst bæði sköruleg og vel flutt, en jeg las útdrátt úr henni í Mbl., og hefi þar sjeð, að hann hefir gert að umtalsefni bitlinga þá, sem hann telur, að núv. stj. hafi úthlutað. Mjer dettur ekki í hug að bera blak af hæstv. stj., en í þessu sambandi tel jeg rjett að minnast lítið eitt á gerðir fyrv. stj. í þessu sambandi, til að sýna, hvernig íhaldsm. fer vandlætingarhjal í þessum efnum. Annars virðist mjer, að hjer hafi verið blandað saman tveim óskyldum hugtökum og að menn hafi ekki gert sjer grein fyrir, hvað það er, sem þeir kalla bitlinga. Jeg lít svo á, að það eitt sje bitlingur, er menn taka kaup án þess að vinna fyrir því. Þegar menn inna verkin vel og dyggilega af hendi, lít jeg svo á, að það fje, sem þeir fá fyrir það, sje kaup, en enginn bitlingur, enda sje þá kaupið í samræmi við vinnuna. Þeir bitlingar, sem blað mitt einkum hefir átalið, eru þess eðlis, að opinberir starfsmenn ríkisins, sem hafa ærið nóg að starfa, eru settir til að gegna allskonar aukaverkum, sem þeir sökum tímaskorts geta ekki leyst vel af hendi án þess að taka tíma frá sínu aðalstarfi í þágu ríkisins. Fá þeir oft stórfje fyrir þessi aukaverk og halda auk þess óskertum launum. Þannig er því farið með ýmsa þá, sem fyrv. stj. hefir falið endurskoðun á reikningum hinna ýmsu stofnana ríkisins. Endurskoðunin hefir oft verið helbert kák eða alls engin. Mætti t. d. í þessu sambandi benda á endurskoðendurna við Brunabótafjelag Íslands, sem fóru ekki nákvæmlegar yfir reikninga en það, að hægt var að dylja þar sjóðþurð um margra ára skeið.
Skal jeg nú víkja aftur að skýrslu ríkisgjaldanefndar og taka þaðan örfá dæmi um örlæti íhaldsstj. við sína menn. Samkv. henni hefir Einar prófessor Arnórsson fengið greitt af opinberu fje árið 1926:
Embættislaun .
kr. 9030,00
og er þar með talin dýr-
tíðaruppbót.
Skattstjóralaun
— 4183,25
Fyrir lög „Íslands“
—15000,00
— setu- og varadómarastörf ..
. . .
— 803,16
— sambandslaganefnd — 500,00
— málaflutning
.... — 66,93
— aukavinnu
fyrir
stjórnarráðið
.... — 2575,00
— utan þetta
fjekk
hann — 2500,00
úr bæjarsjóði fyrir formensku í niðurjöfnunarnefnd Reykjavíkur.
Þetta er gott sýnishorn af launagreiðslum íhaldsstjórnarinnar: Greiðslan fyrir aukavinnu langtum meiri en embættislaunin. Hv. 1. þm. Skagf. sagði m. a., að hið eina, sem ríkisgjaldanefndin hefði getað fett fingur út í, væru þau „bein“, sem skrifstofustjórarnir í stjórnarráðinu hefðu fengið. Rjett er það, að ýmsum greiðslum til þeirra er ekki hægt að gefa annað nafn. Hann (MG) mun einkum hafa átt við þau aukastörf, sem skrifstofustjórinn í dómsmrn. hefir haft með höndum, en líkt er um fleiri. Skal jeg nú gefa yfirlit yfir störf hans og laun, til þess að sýna, að það er ekki að ástæðulausu, sem blað mitt hefir gert þetta að umtalsefni. Launagreiðslur til hans eru þessar 1926:
Embættislaun 9030 kr.
Fyrir aukavinnu í stjórnarr. 2100 —
— endurskoðun við
áfengisverslunina .... 2400 —
— reikningshald kirkju-
garðssjóðs 3000 —
— reikningshald land-
helgissjóðs 4000 —
Samtals 20530 kr.
Aukabitarnir, sem þessi maður hafði, eru samtals 11500 kr., eða 2500 kr. hærri en embættislaun hans, sem þó eru hæstu embættislaun. Jeg álít, að slíkur embættismaður sem þessi, er hefir afar umfangsmikil og áríðandi störf í sínu embætti, geti ekki haft mörg og mikil aukastörf án þess að vanrækja að einhverju leyti embættisstörf sín, sem þó þola enga vanrækslu. Fjölda fleiri dæma mætti nefna, sem svipuð eru þessu, en þó ætla jeg ekki að gera það, heldur taka 2 smærri spámenn til athugunar, en það eru þeir hv. 1. þm. Skagf. og hv. 3. landsk. Einhver hv. þm. var að tala um það í gær í aðfinslutón, að forsrh. hefði tekið hálf laun fjmrh., en slíkt er ekki einsdæmi. Hv. 3. landsk. tók árið 1926 við þessu fje úr ríkissjóði: Þingmannskaupi kr. 1987.92, ráðherralaunum auk ókeypis húsnæðis, ljóss og hita í 3 mán. kr. 12500.00, 1/2 risnufje kr. 2000.00 og húsaleigu kr. 1050.00, eða samtals kr. 17537.92.
Hv. 1. þm. Skagf. tók á sama ári, auk ráðherralauna og þingfararkaups, 1/2 laun dómsmrh. fyrir 6 mánuði og svo kr. 756.50 fyrir embættiseftirlit.
Á þessu ári fjekk íslenski sendiherrann í Kaupmannahöfn aftur starf sitt frá 1. júlí að telja, og var honum á því ári greitt úr ríkissjóði: Sendiherra laun í 1/2 ár kr. 22500.00 danskar, fyrir ráðunautsstörf kr. 3000.00, ferða kostnaður kr. 9561.58, uppbót fyrir húsakaupatjón kr. 10000.00 og fyrir grein í minningarrit Landsbankans kr. 125.00, eða samtals 45186.58 kr. og þessar greiðslur eru svo að segja allar fyrir eina 6 mánuði. Ótal dæmi fleiri mætti nefna til að sýna launagreiðslur íhaldsins, en þó mun jeg ekki gera það að þessu sinni, heldur benda að síðustu á það, að 10 embættismenn ríkisins fengu 1926 kr. 240000.00 greiddar úr ríkissjóði, eða 24 þús. kr. hver að meðaltali, en um samin starfslaun þeirra námu ekki nema h. u. b. 1/3 af þessari upphæð. Jeg veit ekki, hvað betur getur sýnt og sannað fjárbruðl, óheilindi og spillingu ráðandi stj. en það, að greiða hálaunuðum embættismönnum sem svarar tvöföldum launum þeirra fyrir að inna af hendi aukastörf, sem þeir komast ekki yfir. Hver getur t. d. látið sjer detta í hug, að nokkur von sje á því, að skrifstofustjórinn í stjórnarráðinu geti leyst öll þessi verk af hendi og gegnt embættisskyldum sínum jafnframt? Og hvað segja menn um það, að hann tæki ríflega borgun fyrir aukastörf á eigin skrifstofu. Hv. 1. þm. Skagf. sagði, að núv. stj. hjeldi áfram uppteknum hætti í þessu efni, og ef það er satt, þá er það stórlega vítavert. Enginn skyldi ætla, að mjer þyki starfsmönnum ríkisins greidd of há laun. Því fer fjarri. Laun flestra þeirra eru mjög skorin við nögl. En það eru ekki láglaunamennirnir, sem fá beinin, heldur einkum þeir, sem sitja í best launuðu embættunum, og auk þess er það óhæf leið, að ætla að bæta launin upp með aukastörfum. Það verður til þess að mest er hugsað um að ná í þau, en minna hugsað um aðalstarfið. Hv. 1. þm. Skagf. drap á „nefndafarganið“ hjá hæstv. núv. stj. og helti úr skálum reiði sinnar út af því; en nú skal jeg benda honum á, að flokksmenn hans og sjálfur hann hafa ótæpt skipað nefndir, hálaunaðar mjög. Skal jeg telja upp nokkrar, sem jeg man eftir nú í svipinn, en vil þó aðeins stikla á þeim stærstu, t. d. milliþingan. eins og fossan. og bankalagan., sem kostuðu báðar á 2. hundrað þús. kr., og úttektarn. Landsbankans. Þeir, sem í henni störfuðu, fengu 6000 kr. hver fyrir starf, sem áætlað var, að ljúka mætti af á ca. 2 mán. í mesta lagi, eða sem svarar 100 kr. á dag auk alls kostnaðar. Jeg drep nú á þetta aðeins til þess að rifja upp fortíð íhaldsins og benda á ástæðuna til sultarsöngs þeirra hjer í deildinni. Þeir þrá að hafa fjárhirslu ríkisins handa í millum til þess að gæða sjer og sínum gæðingum á fjenu eins og þeir áður svo óspart hafa gert. Söngur þeirra minnir mig á biblíuljóð eitt, Harmagrát Jeremíasar“, söng hins útlæga Ísraelslýðs. Með lítilli breytingu hljóðar hann svo:
Í Babylon við vötnin ströng
við sitjum fullir sorgar,
oss finst hver stundin leið og löng,
langar til Síonsborgar.
Söngurinn er hinn sami og söm er þráin; þeir þrá að ná í valdasessinn og hafa ríkissjóð handa í millum. Þeir sjá ofsjónum yfir „bitum“, sem ekki lenda hjá þeim.
Áður en jeg lýk máli mínu vil jeg minnast á það, að mjer virðist íhaldið hafa hálfeinkennilega verkaskiftingu á þessum eldhúsdegi. Hv. þm. Vestm. fann stj. ýmislegt til foráttu, en sneri sjer þó aðallega að áfengisversluninni og rekstri hennar og vítti slælega bannlagagæslu stj. Jeg hefi aldrei heyrt um hann talað sem bann- eða bindindismann, en hv. þm. Borgf., sem er kunnur fyrir hófsemi, bindindi, óbeit á áfengisnautn og sölu, er látinn þegja um þetta; hann er látinn vaða fjármálaelginn, og sjest að vonum yfir alt nema smáupphæðirnar, náms- og ferðastyrki o. þ. h.
Hv. 2. þm. G.-K. og hv. þm. N.-Ísf. eru aftur á móti látnir skammast út af landhelgisgæslunni, hve hún sje skemmilega vanrækt, eins og þeir beri hana sjerstaklega fyrir brjósti. Þetta kemur þeim mönnum einkennilega fyrir sjónir, sem til þekkja og vita, að annar þessara hv. þm. hefir leyft eða liðið skipstjóra sínum að skafa miðin innan landhelgi rjett framundan bæjardyrum núverandi kjósenda hans, og ekki látið skipstjórann fara, þótt dæmdur væri fyrir landhelgisbrot. En hinn hv. þm. kaupir upptæk veiðarfæri fyrir umboðsmann ensks togara, sem var sekur fundinn fyrir landhelgisbrot, svo að sökudólgurinn fjekk þau aftur eftir fáeina daga og gat haldið áfram fyrri iðju sinni á sömu slóðum. Jeg veit ekki, hvort jeg á að kalla það grátlegt eða hlægilegt, að íhaldið skuli hafa valið einmitt þessa menn til að ræða um landhelgisgæsluna og þýðingu hennar og nauðsyn. Það eitt nægir ekki, að tala fagurlega, ef breytnin er gagnstæð. Það er þó ef til vill ekki nema samboðið íhaldinu að láta þessa tvo menn hafa orð fyrir því í þessu máli. Það sýnir ef til vill heilindin. Jeg held, að það hafi verið hv. 1. þm. Reykv., sem skoraði á og bað Framsóknarflokkinn auðmjúklega að taka höndum saman við íhaldið og ráða niðurlögum jafnaðarmanna, sem hann sagði vera óþjóðlega niðurrifsmenn. Þetta er nú gamli söngurinn, þegar hræðslan við vöxt og þroska jafnaðarmannaflokkanna ærir íhaldið, skorar það á alla, sem vilja „halda í eignarrjettinn“, að sameinast gegn hinum „óþjóðlegu jafnaðarmönnum“. Alþjóðlegur og óþjóðlegur er hið sama í augum hv. þm. Hann mætti þó vita það, ef hann þekkir nokkuð til alþjóðlegrar samvinnv., að hún byggist einmitt á því, að hver þjóð sje óháð og frjáls og fái notið sín til fulls, alveg eins og þjóðfjelagsheildin byggir á persónulegum þroska og frelsi einstaklinga sinna. Alþjóðleg samvinna er óhugsandi, nema þjóðirnar haldi sjálfstæði sínu óskertu, sjeu allar jafnrjettháir aðilar. Þá stafar þjóðerni þeirra engin hætta af alþjóðlegri samvinnu; þvert á móti, þá er hún þeim hin besta trygging.
Hv. 1. þm. Skagf. tók undir „óþjóðlegheita“-skrafið með nafna sínum. (MG: Jeg nefndi það ekki). Jeg þori ekki að fullyrða það, en mjer þykir það trúlegt, að hann hafi gert það. Slíkt er í fullu samræmi við það, að hv. þm. N.-Ísf. og hv. 2. þm. G.-K. tala um landhelgisgæsluna sem sitt hjartans mál, Þætti mjer því ekki ólíklegt, að hv. 1. þm. Skagf. talaði um föðurlandsástina fyrir hönd síns flokks, því að hann er þjóðkunnur fyrir hana frá því er hann reið til Krossaness forðum. (MG: Jeg fór á bát). Förin var jafnfrækileg, hvort sem hann fluttist á skjaldböku eða víkingaskipi. Í öðru lagi sýnir bað glögglega þjóðhollustu hans, að hann vann að því af alúð að koma „Shell“- fjelaginu hjer á laggirnar. Það er mitt álit, og þau orð mín skal jeg endurtaka utan þings, að íslenska „Shell“ er leppfjelag fyrir enska „Shell“ og sett á laggirnar til þess eins að útvega því hin sömu rjettindi og ef það væri íslenskt fjelag. örugg sönnun þessa er m. a. sú, að það var sett sem beint skilyrði af enska auðfjelaginu fyrir fjárframlagi til stöðvarbyggingarinnar við Skerjafjörð, að stofnað yrði íslenskt fjelag, sem teldist eiga stöðina. Hinn þjóðholli maður, hv. 1. þm. Skagf., brá þá fljótt við til þess að fullnægja þessu skilyrði. Hann kom á laggirnar hlutafjelaginu „Shell á Íslandi“, sem talið er að hafi meira en helming hlutafjárins frá íslenskum mönnum, og sem því hefir sama rjett og íslenskt fjelag hjer á landi, en sem jeg verð samt að efast um, að sje íslenskt fjelag í raun og veru.
Annars hefir hinn þjóðholli þm. Skagf. verið skrambi skammsýnn, þegar hann samdi við enska fjelagið, sje mark takandi á orðum hans í fyrra, þegar hann er að svara mjer í umr. um till. mína um einkasölu á steinolíu. Hann segir svo: „Hv. þm. þótti ilt, að Shell-fjelagið skyldi vera íslenskt fjelag og áleit það mjög hættulegt, að íslenskir menn skyldu stjórna því, en hinsvegar ágætt, ef það hefðu verið útlendingar“. Þetta og annað eins hefir mjer vitanlega aldrei dottið í hug að segja. Hv. þm. hefir því lagt mjer þessi orð í munn til þess eins að svara þeim.
Svo bætir hann við frá eigin brjósti: „Jeg get ekki haldið, að það sje verra, að fyrirtækið sje undir stjórn íslenskra manna en útlendra, enda fer það, sem hann sagði um þetta, algerlega í bág við það, sem hann sagði að öðru leyti“. Hv. þm. tekur svo sem ekki mikið upp í sig. Hann heldur, að það sje „ekki verra“, þó að fjelagið sje undir íslenskri stjórn. Þetta mun jeg ekki hafa látið mjer nægja og inti hann því frekar eftir þessu, og þá svarar hann á þessa leið: „Þetta er mesti misskilningur. Útlendingar hafa að vísu lagt fram nokkuð af fje, en þeir eru alveg útilokaðir frá stjórn fjelagsins, því að meiri hl. hlutafjárins er íslenskur. Og jeg held því einmitt fram, að Íslendingar hafi full yfirráð fjelagsins“. Eins og sýnt var fram á í gær, ræður atkvæðamagn úrslitum á fjelagsfundum. En nú hafa útlendingar 198 atkvæði, en Íslendingar aðeins 108. Það er því helber uppspuni hjá hv. þm., er hann segir, að Íslendingar hafi öll umráð yfir fjelaginu; þeir hafa nær helmingi færri atkvæði en útlendingarnir, ráða engu. Óefað hefir hv. þm., sem er lögfræðingur og fyrv. dómsmrh., vitað þetta, er hann ljet hafa sig til að stofna þetta leppfjelag fyrir enskan olíuhring, enda er það í fullu samræmi við þjóðhollustu og skörungsskap hv. 1. þm. Skagf. og þjóðhollustu flokks hans.
Jeg vil nú að lokum enda mál mitt með þeirri ósk til handa hæstv. stj., að ganglimir hæstv. forsrh. mættu vaxa og stælast, svo að brækur þær, sem hann hefir fengið frá hv. 1. þm. Skagf., mættu rifna til fulls utan af honum. Jeg er fullviss þess, að ef hitt verður ofan á, að hann lagi sig eftir þessari íhaldsflík, haldi áfram að smækka sjálfan sig til þess að rífa ekki buxurnar, þá verður það til þess, að hann skapar flokki sínum, sjálfum sjer og stjórninni vansæmd, og áður en langt um líður fullan aldurtila.