13.04.1929
Neðri deild: 44. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1105 í B-deild Alþingistíðinda. (660)

16. mál, fjárlög 1930

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg var svo óheppinn að heyra ekki fyrstu orð hv. þm. Vestm., en jeg hefi frjett, að hann hafi byrjað á áfengisversluninni.

Þessi hv. þm. er ekki ennþá búinn að skilja, að afstaða íhaldsmanna til þessa máls er alveg óverjandi. Það er sannað, að meðferð íhaldsins á áfengisversluninni var niður fyrir allar hellur. Þar var alt í óreiðu, þegar frátekin eru bein svik í bókfærslu. Launagreiðslur voru alt of háar, skuldatöp á versluninni stórkostleg, verslunin keypti illa inn, birgðir sumpart skemdar og hrúgað var upp skuldum hjá útsölumönnum. Sumstaðar var selt á nóttunni og á einum stað var einn mesti óreglumaður og skuldaþrjótur þorpsins útsölumaður.

Það er svo hörð húðin á hv. þm., að hann skilur ekki, að hann er dæmdur af þessu máli, að það er honum og hans flokki til skammar á alla lund. Og svo leyfir þessi hv. þm. sjer að halda ræðu á annan klukkutíma til þess að verja slíkar aðfarir. Hví reyndi hann ekki að afsaka það, að hann og aðrir íhaldsmenn í Ed., þegar hv. þm. átti sæti í þeirri deild, feldu frv., sem átti að laga vínverslunina svolítið? En íhaldið vildi bjarga forstöðumanninum með 18 þús. krónurnar, sem þeir gátu svo pínt á allan hátt. Þetta atvik í Ed., sem hv. þm. er riðinn við, sýnir, að íhaldsmönnum hefir verið kunnugt um þessa rotnun, sem er einhver sú argasta, sem hjer hefir sjest. Þá sagði hv. þm., að hjer væri aðeins um pappírssparnað að ræða. Það hefir ekki verið talað um, að tekið væri brauðið frá börnunum, þegar um tóbakskaupmenn var að ræða, en það er dálítið annað með lyfsalana; þeir eiga að vera fáir.

Annars hefði jeg gaman af því að spyrja hv. þm. Vestm. að því, hvort honum fyndist það aðeins pappírssparnaður, ef þurkaðar væru út allar verslanir í Vestmannaeyjum nema tvær, — og hans verslun væri t. d. ekki önnur þessara tveggja. Annars væri kannske ekki vanþörf á að setja þar einhver takmörk, því að sumar verslanirnar selja nokkuð dýrt. (JJós: Óskar hæstv. ráðh. eftir því að ræða verslanirnar í Vestmannaeyjum?). Ef þess er óskað; jeg get ekki álitið það hættulegt fyrir mig, en það gæti ef til vill verið hættulegt fyrir einhvern annan. Í sambandi við þessa hræsni í áfengismálum, og að hv. 1. þm. Reykv. var að syngja hræsninni lof og dýrð, vil jeg minna á það, að blöð Íhaldsflokksins hafa gert alt, sem þau hafa getað, til þess að auka á drykkjuskapinn í landinu. (JJós: En samkvæmisgreinin í Tímanum, hver áhrif hefir hún haft?). Hefir Tíminn stutt drykkjuskapinn í landinu? (ÓTh: Á samkvæmisgreininni fjell jeg). Maður, sem hefir aðra eins fortíð og hv. 2. þm. G.-K. í þessum efnum, ætti sem minst að tala um ofdrykkju. öllum er kunn frammistaða Íhaldsflokksins í baráttunni við Spánverja. Þá sögðu öll blöð íhaldsins, að sjálfsagt væri að opna landið fyrir spönsku vínunum og lögðust marflöt fyrir Spánverjum. Það sást líka fljótlega, hvað íhaldsmenn voru glaðir yfir úrslitunum, á því, hve mikið þeir skiftu við áfengisverslunina.

Ennþá eitt atriði sýnir þennan argvítuga spillingaranda. Eftir að Alþingi samþ. í fyrra að hafa skarpara eftirlit með drykkjuskapnum, t. d. með því að setja löggæslumenn, kemur í hverju íhaldsblaðinu á fætur öðru uppnefning á þessum mönnum og þeir taldir vörgunum verri fyrir að gera skyldu sína. Þetta sýnir hug íhaldsmanna og þá um leið hv. þm. gagnvart áfengislöggjöfinni og yfirleitt gagnvart lögreglumálum landsins.

Enda kom það og í ljós, þegar farið var að taka menn fasta fyrir ofdrykkju á mannamótum, að þeir, sem teknir voru, voru allflestir íhaldsmenn. (ÓTh: Var þá gengið fram hjá hinum?). Nei, það fundust ekki aðrir fullir en flokksbræður þessa hv. þm. Tíminn hefir barist á móti ofdrykkjunni, en íhaldsblöðin gert hið gagnstæða. Það er því ekki að undra, þótt nokkuð ráðist í flokkana eftir þessu máli. Og Morgunblaðið er ekki andbanningablað fyrir ekki neitt. Jeg minnist þess ekki að hafa sjeð neina leiðrjettingu frá hv. þm. Vestm., þegar löggæslumenn þjóðarinnar voru uppnefndir í íhaldsblöðunum fyrir að gera skyldu sína. Þá sagði hann ekki: Lögin í gildi! Og jeg býst við því, að hann hafi borgað Morgunblaðið sitt með jafnmikilli ánægju og hann er vanur, þótt það hafi svívirt þá menn, er lögskipaðir eru til að halda ofdrykkjunni í skefjum.

Jeg þarf ekki að fara mörgum orðum um samsteypu gamalla vína í áfengisversluninni. Forstjórinn með 18 þús. krónurnar, sem íhaldið hafði sett, byrjaði á því að blanda gömlu víni frá Garðari og öðrum prýðilegum Mbl.-eigendum saman, og líka að líma miða á flöskurnar með ákveðnu firmanafni, og voru þessir miðar til, þegar hinn forstjórinn tók við. Á þessu hvorutveggja hafði forstjórinn byrjað, sem hv. þm. Vestm. og hans flokkur vildu ekki missa, og það er því á ábyrgð hv. þm. og annara íhaldsmanna, að þessi vínblöndun hófst, þar sem það var þeirra trúnaðarmaður, sem hóf venju þessa. Þetta var svo auðvitað lagað, eins og svo margt annað, nokkru eftir að nýi forstjórinn tók við, en það er hart, að þeir, sem bera ábyrgð á 100 af göllunum, skuli gera sig að dómurum, þótt eitthvað af þeim kunni að loða við fyrst í stað hjá þeim, sem við taka, og sem eru að þvo burt merki gamallar spillingar. (JJós: Hver bjó til keraldið?).

Hv. þm. er í áfengismálinu í sama keri og flokkur hans. Í því keri er öll áfengisspilling landsins saman komin, og svo sú hræsni með, sem nú bólar á í fariseaframkomu drykkjuflokksins.

Annars vildi jeg segja fáein orð við þennan hv. þm. í gamni og alvöru út af „vörusvikum“ yfirleitt. Jeg verð að segja, að mjer finst harla merkilegt, að hann, sem er líklega eini kaupmaðurinn í þessari hv. deild, skuli fjölyrða svo mjög um „vörusvik“ í áfengisversluninni. Kannast hv. þm. við skemdu kartöflurnar, fóðurkartöflurnar, sem mokað er upp af ökrunum í Danmörku, en seldar eru hjer sem mannafæða? Veit hann, hvaða stjett hefir þau vörusvik á samviskunni? Er það ekki stjett hv. þm. — kaupmannastjettin? Hvaðan er svissneski osturinn, sem seldur er hjer í verslununum? Er hann frá Svisslandi? Nei, mikill hluti hans er frá Noregi og Danmörku, eða þá löndum, sem liggja enn fjær Svisslandi.

Hv. þm. klökknar ekki yfir þessum vörusvikum stjettarbræðra sinna; þá er ekki talað mikið um vörusvik, þegar þau koma til góða brallstjettinni í landinu.

Hjer á landi hefir lítið verið gert til þess að rannsaka vörusvik efnafræðilega, eins og tíðkast í nágrannalöndunum. Hitt er vitað, að sumar verslanir í landinu hafa flutt inn skemdar og ljelegar vörur. Hvaða stjett er það, sem ber þessa sekt á bakinu? Þorir hv. þm. að þvo kaupmannastjettina hreina af þessum vörusvikum? Hann gæti það ekki, þótt hann vildi; almannavitundin hefir dæmt ormakornið og fleira af líku tægi, sem íslenska þjóðin þekkir fyrir löngu.

Þá gat hv. þm. þess, að það sæist ekki mikið, að reynt væri að halda niðri ofdrykkjunni í landinu. — Þessa dagana hafa verið dæmdir 16 bílstjórar fyrir óleyfilega vínsölu. Sýnir þetta enga viðleitni? (ÓTh: Það sýnir, hváð drykkjuskapurinn er mikill). Og maður þarf ekki annað en þekkja hv. 2. þm. G.-K. til þess að komast að raun um, hve óhóf manna í vínnautn geti verið mikið. (ÓTh: Jeg skora á hæstv. ráðh. að staðfesta þessi orð sín). Vill hv. þm. að það sje rifjuð upp framkoma hans á einu strandferðaskipi fyrir norðan land fyrir nokkrum árum? Og hv. þm. gekk þá með lífið í lúkunum og skalf í sínum litlu buxum af ótta við, að lýsingin á honum myndi koma í Templar á eftir.

Þá sagði hv. þm. Vestm., að það væri „blettur“ á landinu og stjórninni — en þó einkum á hinum grænu og fögru Vestmannaeyjum, að því er mjer skildist —, hvernig framkoma eins tollgæslumanns hafði verið í Vestmannaeyjum í sumar. Hv. þm. ber ekki einungis fram þessa ásökun, enda þótt hann viti, að maður sá, sem um er að ræða, er nú í öðru landi, en þó lætur hann það ekkert á sig fá, heldur gerir það svart, sem er hvítt. En úr því að farið er að draga þennan atburð inn í umr., tel jeg rjett að geta þess, hvernig hann var í raun og veru.

Þegar þessi ungi löggæslumaður, sem er gáfaður, duglegur og reglusamur, kom til Vestmannaeyja, sneri hann sjer þegar að starfi sínu með alúð og árvekni. Hann fór út í skipin, skoðaði vörurnar, innsiglaði vínin og sló yfirleitt fast á lófa þeirra, er tollsvik höfðu í frammi, og eftir að hann kom til Vestmannaeyja var erfitt mjög að svíkja vörur undan tolli, þar eð slíkur maður hafði eftirlit með höndum. Þetta var ekki vinsælt hjá öllum kaupmönnum Vestmannaeyja. Þeir áttu óhægara með að sleppa með svik en áður. Jeg skil þess vegna ekkert í því, hvers vegna hv. þm. Vestm. er svo illa við hinn efnilega tollgæslumann, því að jeg hefi ætíð haft ástæðu til þess að halda, að hann vildi heldur framgang þess heiðarlega en hins óheiðarlega, þar til nú. En áður en jeg segi nánar frá þessu atviki í Vestmannaeyjum, ætla jeg að segja aðra sögu.

Á meðan íhaldsstj. sat að völdum, vildi það eitt sinn til, að lögregluþjónn hjer í Reykjavík fór inn á verstu knæpu bæjarins, til þess að líta eftir. Það eru ryskingar og áflog inni á knæpunni og lögregluþjónninn reynir að stilla til friðar. En hvað skeður? Það er hrækt á hann, hann er barinn og loks er hann hrakinn út af bullunum, sem þarna voru inni. Nú skyldi maður ætla, að lögreglulið bæjarins hefði þegar verið sent á vettvang og knæpan hreinsuð. Nei, það var ekki gert og það var ekki hreyft hár á höfði þeirra manna, er þannig höfðu komið fram við löggæslumann landsins. Stjórnin þagði og dómari bæjarins, hv. þm. Seyðf., þagði líka. Lögregluþjónninn neyddist til þess að fara í einkamál til þess að fá rjett sinn viðurkendan, og jeg veit ekki betur en að hann sitji ennþá í skuldum fyrir þann málskostnað, er af því hlautst. Því að þáv. yfirvöld virtust líta þannig á, að þau ættu að standa með ofbeldismönnunum og vildu þannig draga úr því að þessir fáu löggæslumenn landsins gerðu skyldu sína.

Atvikið, sem fyrir kom í Vestmannaeyjum var nokkuð svipað, nema um aðstöðu landsstj. Tollgæslumaðurinn, sem hjer er um að ræða, lenti í mikilli ónáð hjá erlendu skipunum fyrir dugnað sinn, sjerstaklega hjá Norðmönnunum á Lyru, en það var á almenna vitorði, að þeir höfðu grætt mest á því , bæði hjer og í Vestmannaeyjum, að flytja inn vín á óleyfilegan hátt. Þessi markaður þeirra þvarr mjög eftir að tollgæslumaður þessi kom til Vestmannaeyja, og því lögðu skipsmenn á hann hatur mikið. Og nú kem jeg að því, sem jeg hafði ekki búist við að þurfa að segja frá hjer á hinu háa Alþingi, því að það er sannarlega hart að þurfa að segja frá slíku menningarástandi. Með Lyru er eitt sinn einhver versti smyglari Reykjavíkur, sem er að nokkru leyti Færeyingur og að nokkru leyti Íslendingur. Þegar þessi maður sjer tollgæslumanninn í bátnum á leið út að skipinu, þykist hann þar sjá óvin sinn og fer að kalla til hans ókvæðisorðum og hrakyrðum. Þegar upp á skipið kemur og tollgæslumaðurinn er þar við vinnu sína, fer eins og í tíð íhaldsblómans; þessi bulla ræðst aftan að tollmanninum og ber hann. Nú var það skylda hans sem manns að verja sig og hann hrindir frá sjer þessari hálfdruknu skepnu. Þegar farið var að gera eitthvað í þessu máli, höfðu Norðmennirnir ekkert sjeð og vissu ekkert um þetta, þóttust ekki vera vitnisbærir. Það er ef til vill ekki svo undarlegt, þar sem Norðmennirnir skoðuðu þennan mann sem óvin sinn, en hitt var merkilegra, að menn þeir, sem komið höfðu úr landi, kjósendur hv. þm. Vestm., þóttust einskis hafa orðið vísari. Nú veit jeg ekki, hvort það er firma hv. þm., sem hefir afgreiðslu þessa skips á hendi, en fyrir hlutdrægni manna í Vestmannaeyjum var ekki hægt að koma lögum og rjetti yfir skálk þann, sem barði löggæslumanninn í Vestmannaeyjum.

Þarna kemur fram sami andinn og þegar lögregluþjónninn var óvirtur og hrakinn á drykkjukránni í Reykjavík. Og það fer svo að lokum, enda þótt hver einasti almennilegur maður viti, að tollgæslumaðurinn var þarna að löglegu starfi sínu, og að hann er maður vel mentaður, kurteis og drengur góður, að hann er svikinn af löndum sínum, aðstandendum hv. þm. Vestm. Það furðar mig mest, að hv. þm. skuli ennþá bera gremju í brjósti til þessa manns, og það er blátt áfram andstyggilegt, að ofsóknarandi hv. þm. er svo rótgróinn, að þessi maður á ekki að fá að halda áfram námi sínu erlendis fyrir fje sitt og föður síns fyrir rógi þm., sem ekki hefir heiðarlegri aðstöðu til þessa svívirðingarmáls hans kjördæmis en raun ber vitni um.

Fyrst eftir að farið var að hafa þessa tollgæslu neitaði skipstjórinn á þessu norska skipi að flytja tollþjóna ókeypis milli hafna, og svo mikill var ofsinn í þessum mönnum yfir því að missa af sprúttgróðanum, að það varð að fara diplomatisku leiðina til þess að neyða þá til að hlýða alþjóðalögum.

Jeg vil þakka hv. þm. það, að hann las hjer upp grein úr gamalli reglugerð, er sýndi að íhaldsstj. hafði brotið af sjer í þessum efnum sem öðrum. — Í tíð íhaldsstj. var komin svo mikil óreiða á verslunina í Reykjavík, að Jón Magnússon tók það ráð að breyta þessu þvert ofan í fyrirmæli reglugerðarinnar og ljet einstakling hafa þessa sölu á hendi. Þessi reglugerð er nú úr gildi numin, en ef hv. þm. vill tala um lagabrot, verður hann að áfella sína eigin stj. Ef Hafnarfjarðarkaupstaður vill greiða landinu töpin á versluninni, gæti verið, að jeg talaði um það, hvort reglugerðin hafi verið í gildi. (JJós: Reglugerðin var í gildi, þegar hæstv. stj. rak mennina frá). Hún var í gildi, þegar Jón Magnússon braut hana, en er nú fyrir löngu úr gildi fallin.

Þá taldi hv. þm. upp nokkra af útsölumönnum áfengisverslunarinnar. Meðal þessara manna, sem hv. þm. nefndi, er a. m. k. einn, sem ekki hefir getað borgað skuld sína við verslunina, og hv. þm. getur verið alveg viss um það, að hann og hans flokkur getur aldrei fengið nema meiri og meiri skömm og skaða af öllu umtali um áfengisverslunina eins og hún var á þeirra tíð. En minn flokkur getur ekki fengið annað en frægð og heiður fyrir að hafa tekið þetta fjós eftir fyrirrennara og mokað út úr því.

Þá kem jeg að skipamálshlutanum í ræðu hv. þm. Hv. þm. áfellir mig fyrir það að vilja ekki selja náðarmeðulin í þessu efni, en bendir á það, að fyrir nokkrum árum bárum við hv. 1. þm. S.-M. fram þáltill. um það, að landið skyldi byggja strandvarnaskip, sem væri um leið björgunarskip. Jeg hjelt þá fram þeirri skoðun, að það væri eðlilegt að reyna þetta, en þá reis enginn harðara í gegn mjer en hv. þm. Borgf., flokksbróðir og sessunautur hv. þm. Vestm. Þau rök, sem hv. þm. (PO) bar fram, voru þau, að skipið yrði aðallega björgunarskip og yrði skyldugt til að koma þegar einhver kallaði eftir því, og yrði þannig lengi frá störfum við landhelgisgæslu og dveldi á stöðum, sem mönnum væri kunnugt um, líka landhelgisbrjótum, sem ekki væri heppilegt. Þetta er það síðasta, sem jeg held að gengið hafi um þetta mál hjer. Íhaldið drap þá hugmynd að láta gæsluskipin hafa tekjur af björgun. Þar við bættust svo þeir erfiðleikar, sem mjer var ekki kunnugt um áður, að alþjóðavenjur gera mjög erfitt að hafa þetta fyrirkomulag, sem jeg hafði haldið árið 1923, að mætti nota.

Að því er snertir innihaldshliðina á fyrirspurn hv. þm., þá get jeg upplýst það, að nýja skipið hefir nokkru meira af tækjum til björgunar heldur en Óðinn, en þó er fyrst og fremst gert ráð fyrir því, að það geti á auðveldari hátt int varðstörf af hendi. Jeg vil í þessu sambandi benda á það, að engir hafa fengið meiri hjálp en Vestmannaeyingar, og því situr síst á fulltrúa þeirra hjer að vera með ónot út af þessu starfi, því að sannarlega hefir Vestmannaeyingum oft verið gerður stórgreiði, jafnvel Þór og Óðinn látnir fara langar ferðir norður með landi til að draga bilaða vjelbáta áleiðis til Vestmannaeyja. Jeg er ekki að telja þetta eftir, en skýri aðeins frá því, að þetta hefir verið gert fyrir menn, sem ekki hafa verið látnir borga neitt eða sama sem ekki fyrir það, vegna þess að það hefir verið álitið., að eigendur bátanna stæðu sig ekki við að borga þetta, þó að það hafi verið mjög dýrt fyrir ríkið. En jeg vil segja það, að ef nýja skipið reynist eitthvað betur fallið til að bjarga skipum heldur en Óðinn, þá hlýtur Alþingi, en ekki stj., að ákveða, hvernig borgunin verði innanlands. En jeg vil taka það fram hjer, að stj. hefir gætt þess að koma ekki óorði á landið fyrir okur, þar sem það er venja annara þjóða að gefa vinnu sinna varðskipa í þessu. Jeg get vel ímyndað mjer, að það mætti gera fyrirframsamning um björgun, og það er alt annað, ef fyrv. stj. hefði sagt við fulltrúa „Ohm’s“ hjer: Við höfum ekki björgunarskip, en ef þið viljið gera ákveðinn fyrirframsamning um það, þá skulum við reyna að láta bjarga skipinu. Þetta myndi líta öðruvísi út heldur en þegar skip, sem ekki má selja björgun, kemur að og bjargar og verður svo að gera bakreikning. Jeg segi ekki, að þetta hefði átt að vera svona, en það er að minnsta kosti um annað að ræða, ef vátryggingarfjelögin biðja um samningsbundna vinnu við björgun. Jeg þykist vita, að þau rök, sem hv. þm. Borgf. flutti á þingi 1923, sjeu enn í gildi, og því ekki von, að nein stj. vilji binda sig til þess, að hver og einn geti kallað á varðskipin til bjargar öðrum skipum, því það grípur inn í strandgæsluna; en það getur vel verið, að Alþingi finni einhverja millileið, svo að það geti framkvæmt björgun fyrir fje. Það mætti líklega gera samning fyrirfram, svo að sá, sem á að borga, geti ekki síðar skotið sjer inn undir alþjóðareglurnar.

Þá er það þyngdarpunktur Óðins enn einu sinni. Hv. þm. Vestm. og hans fjelagar spyrja mig um það, hví jeg hefði ráðið sama mann til að sjá um smíði nýja skipsins, sem íhaldsstjórnin hafði til að líta eftir Óðni. Nú er mjer kunnugt um það, við hvaða mann jeg hefi samið, en jeg hefi ekki vitað, við hvaða mann íhaldsstjórnin hefir samið, en hitt hygg jeg, að íhaldsmenn viti, að jeg hefi samið við Nielsen framkvæmdarstjóra, og því get jeg ekki talað um annan, af því að hann er minn eini umboðsmaður. En að því er snertir heiðursmerkið, þá er það að segja, að Nielsen framkvæmdarstjóri hefir haft vjelfræðing einn sjer til aðstoðar um eftirlit með skipum fjelagsins, þegar þau voru í smíðum, og mun Nielsen hafa farið þess á leit við stj., að þessi vjelfræðingur, sem hann hefir haft sjer til aðstoðar, fengi heiðursmerki, og mun hann hafa fengið það að tilmælum Nielsens. En hitt er alkunna, að íhaldastj. leitaði ekki til Nielsens fyr en þurfti að fara að laga Óðin, en jeg hefi svo fengið Nielsen til að vera minn ráðunaut frá byrjun; í því liggur munurinn. Nú finst mjer, að hv. þm. Vestm. þurfi ekki að vera svo mjög hreykinn yfir smíði Óðins, því að jeg man ekki betur en að hann hafi hvert haust þurft að fara í dýra og langa viðgerð til Danmerkur fyrir það, hvert ómeti hann var upphaflega. Þegar það var ekki lengdin, þá var það vjelin, og þegar það var ekki vjelin, þá voru það katlarnir, og svona gekk það fram á síðasta haust, að þessi vansmíði hafa hrjáð þetta skip. En þótt jeg þekki ekkert þennan Brorsen vjelfræðing, þá vil jeg fullyrða, að það er beinlínis ósatt, að hann hafi ráðið íhaldsstjórninni til að hafa Óðin eins og hann var, og það sannar það best, að þegar minst var á skipið, þá hjelt sá, sem átti að sjá um alt, því fram, að skipið ætti að vera á lengd við venjulegan íslenskan togara, því að þá var ekkert himnaríki hærra til en Kveldúlfstogararnir, en 1/4 hraðskreiðara, og þegar Nielsen framkvæmdarstjóri bendir á, að það er ómögulegt að sameina þetta tvent, þá er hætt að tala við hann. En eins og jeg hefi altaf sagt um missmíði Óðins, og eins og allir vita, þá er þetta tvent höfuðmein við Óðin, að hann var ekki lengri en togari, en átti að vera fjórðungi hraðskreiðari. Það er ekki hægt að láta skipið ganga svona hratt og vera svona stutt, nema með því að hafa skipið svo þunt í botninn, að vjelin kemst ekki eins nærri kjölnum og átti að vera, en af því leiddi aftur, að „þyngdarpunkturinn“ varð á skökkum stað í skipinu og að það valt svo mikið. Þess vegna er það beinlíns ófyrirgefanlegt að vera að reyna að koma skömminni af þessu vansmíði á mann í öðru landi, sem honum hefðu ekki getað dottið í hug, af því að hann hefir sennilega miklu betra vit á því, og í öðru lagi var þessi kenning Kominn upp áður á heimili íhaldsins, og gallarnir þess vegna heimilismál Íhaldsflokksins. Það var meira að segja reynt að klína vansæmdinni af þessari vansmíði á Nielsen framkvæmdarstjóra, en jeg hefi hvað eftir annað sagt frá því, að hann reyndi að leiðrjetta, eftir því sem hægt var að leiðrjetta, annan höfuðgallann á Óðni, eftir að honum hafði nær því hvolft á Siglufjarðarhöfn, og að síðustu var það Nielsen, sem lagði til að lengja Óðin um 13 fet, og sú aðgerð hefir bjargað skipinu. Þess vegna er alt þetta skraf um krossinn, Brorsen og Nielsen alt saman óviðkomandi skömminni fyrir ólagið á Óðni, sem er einkamál Íhaldsins. Um aðrar bilanir á skipinu, svo sem ketilskemdir, er það að segja, að það hefði eins getað komið fyrir, þótt meiri þekking hefði verið til staðar um það, hvernig skipsskrokkurinn átti að vera.

Ekki finst mjer, að hv. þm. hafi heldur aukið hróður síns flokks fyrir sparsemi með því að fara að tala svo mikið um þann 5 þús. kr. reikning, sem Jón Ásbjörnsson málaflutningsmaður gerði stj. Jeg hefi ekki sagt annað en það, sem hv. þm. Vestm. varð að viðurkenna, að 5 þús. kr. væri nokkuð mikið fyrir eitt undirrjettarmál, en hv. þm. er ómögulegt að skilja annað en að vinnulaunin eigi að vera tekin með hundraðstölu, en það er sjálfsagt af því, að hv. þm. er kaupmaður, að honum finst að hundraðatölur eigi að ráða öllu. En það sýnist svo, sem ekki þyrfti að taka háa hundraðstölu fyrir að útskýra lögin frá 1921, því að það er öllum ljóst, að það er sá banki, sem ber ábyrgðina á því, að krónan okkar fjell, og því er það óhæfilegt, ef sá banki ætlar svo að fara að setja „kurs“ á gullið, þegar hann fer að selja okkur það. En það dettur engum annað í hug en að Íslandsbanki muni tapa þessu máli, enda er það afleiðing af gerðum hans. Jeg get þess vegna ekki annað en kallað þetta mikla viðleitni hjá þessum flokksbróður hv. þm. til að vera dýrseldur; hvort þetta er „taxti“ málaflutningsmannafjelagsins, veit jeg ekki, en það sýnir þá ekki annað en það, að „taxtinn“ er nokkuð frekur, og ennfremur sýnir það, að það eru ekki mikil hyggindi hjá íhaldsstj., þegar hún samdi við manninn, því að hún hefði getað samið við hann um að taka málið eftir öðru verðlagi en þessum mála flutningsmanna-„taxta“. En hv. þm viðurkennir það, sem ekki verður um deilt, að þessi maður tók 5 þús. kr. fyrir handarvikið. Fyrv. fjmrh. þótti þetta ákaflega dýrt, en vildi þó ekki taka málið af firmanu, svo það hefir það til hæstarjettar, svo það verður sennilega mjög ánægjulegur reikningur, sem fyrir það kemur að lokum Annars virtist mjer hv. þm. sjá ofsjónum yfir því, ef íhaldsmenn hefðu ekki öll mál fyrir landsstj. Nú er það vitanlegt, að þeir hafa það stundum en jeg býst við, að það hafi verið meining hv. þm. að reyna að fella einhvern blett á þann málaflutningsmann, sem nú er ráðinn til starfa fyrir stj. jafnvel fyrir það, að hann myndi verða of ódýr, en jeg held, að það sje best að bíða, þar til þeir reikningar koma.

Að því er snertir það, að lítið hafi áunnist í Einars Jónassonar málinu, þá held jeg, að það sje á engan hátt þessum málaflutningsmanni að kenna, heldur vil jeg benda hv. þm. á það, að orðið hefir uppvís ýmiskonar óregla í starfrækslu þess embættis, þar sem þetta mál var dæmt fyrir undirrjetti, og mjer þykir ekkert ólíklegt, að þar hafi getað verið missmíði á einhverju fleiru, t. d. var það hjá þeim sama undirrjettardómara, sem gekk svo illa að afgreiða mál Einars Jónassonar, að einum kaupmanni voru dæmdar 25 þús. kr. skaðabætur, þar sem annar rjettur dæmdi ekki nema lítinn hluta af þeirri sekt, og þar sem almannarómur mun segja, að engin sekt hefði átt að vera. Það getur þess vegna verið ástæða til að athuga fleira en málafærslumenn stj. En jeg get ekki láð hv. þm. Vestm. það, fyrst hv. þm. hefir ekkert fundið til þess, að blöð flokks hans væru að uppnefna starfsmenn ríkisins, þá er ekki að undrast yfir því, þótt hv. þm. finnist það ekkert óeðlilegt, þótt undirmenn stj. verði berir að því að blanda sjer í stjórnmálaerjur, eða með frekjufullum orðum álasi sínum yfirmönnum. En ef trúa má hv. 2. þm. G.-K., þá hefir hann sjálfur lýst yfir því, og þótt menn gangi inn á skýringu hv. þm. (ÓTh), sem er röng, að þessir starfsmenn hafi viljað fella stj., þá er það starfsemi, sem ekki á að koma til greina. Það á vitanlega ekki að heimta það, að þeir sjeu með stj., þeir geta kosið eins og þeir vilja, en það er óhæfilegt, ef það er satt, sem hv. 2. þm. G.-K. ber á þá, að þeir hafi verið með undirróður gagnvart stj. (JJós: Er það ekki sagt?). Jú, en þá hefir hv. þm. annaðhvort logið upp á skipstjórana, eða þeir eru brotlegir við almennar siðareglur. En jeg hefi sýnt það, að jeg hallaðist meira að því, að þetta væri ekki tilfellið, eða að minsta kosti látið eins og jeg hefði meiri trú á myndarskap skipstjóranna heldur en á sannsögli hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh), því að jeg hefi ekkert gert til að skapa þeim óþægindi, sem þó hefði verið fullkomlega rjettmætt, annaðhvort að sannaðist á þá sektin, eða þá að gera hv. 2. þm. G.-K. ósannindamann. En þetta er mildi frá minni hendi, sem ekki myndi nokkursstaðar annarsstaðar sýnd, og það er of mikið, því sje það rjett, að hv. 2. þm. G.-K. hafi ranglega borið svona sakir á þessa menn, þá hefði hv. þm. (ÓTh) sannarlega átt það skilið, að þeir fyndu hann í fjöru. En mjer finst, að jeg hefði kunnað betur við, að þeir hefðu opinberlega lýst þetta ósannindi þegar þeir sáu þetta í blöðunum. En jeg get annars vel ímyndað mjer, að þeir hafi álitið, að það myndi verða lagt svo mikið hatur á sig hjá Íhaldinu, ef þeir ljetu þennan „dáta“ þess bera ábyrgð á sínum götudrengshætti.

Þá var hv. þm. (JJós) eitthvað óánægður með þann skipstjóra, sem stýrði danska varðskipinu síðustu tvö árin, sem Íhaldið sat við völd. Sennilega hefir það verið út af einhverjum dómum um ódugnað skipsins. Mig minnir, að þessi maður hafi, eftir að hann kom heim, látið orð falla nokkuð á sömu lund og Ágúst Flygenring alþm. gerði hjer, og jeg ætla ekki að nefna suma af mínum kærustu vinum hjer í deildinni, sem hafa sagt, að sumir íslensku togararnir væru mjög slæmir með það að vera að brjóta landhelgislögin, en maðurinn mun hafa tekið það fram, að þetta væru góð skip, sem hefðu gott samband við land og sín á milli t að fá leiðbeiningar. Maðurinn segir sem sagt ekkert annað en það, sem allir vita, og er hart að áfella hann fyrir að segja satt.

Þá kom hv. þm. að því, að jeg væri ekki nógu skýr í máli, þegar einhverjir útlendir blaðamenn hittu mig að máli, og sjerstaklega virtist hv. þm. vera argur út af því, að jeg hefði gert hans flokk of hátt undir höfði í viðtali við blaðamenn árið 1927.

Danskur blaðamaður spurði mig um stjórnarmyndunina hjer skömmu eftir kosningarnar 1927. Jeg sagði, að enginn flokkur hefði meiri hluta. En jeg benti á þann möguleika, að bæjaflokkarnir, Íhaldsflokkurinn og Alþýðuflokkurinn, mynduðu stj. um gengismálið. Það var ekki hægt að segja neitt um það fyrirfram, en þó var sennilegt, að íhaldsstjórnin myndi sitja áfram til næsta þings. Ef íhaldsmenn og sócialistar hefðu komið sjer saman um að hækka krónuna, þá höfðu þeir með hv. þm. Dal. viðunandi afl til að taka að sjer stj. Þegar jeg fer svona varlega í viðtali við erlenda menn — en þess þekkjast dæmin, að það er eitthvað annað hjá sumum íhaldsmönnum, þegar þeir eru að fræða erl. þjóðir um bannmálið —, þá er það sannarlega langt gengið, þegar hv. þm. Vestm. fer að finna að því, hvernig jeg tali um andstæðinga mína erlendis. Er jeg gerði ráð fyrir, að stj. myndi sitja áfram, þá gaf jeg vissulega keisaranum, hvað keisarans var. Að Íhaldsflokkurinn bar ekki gæfu til að halda meirhlutaaðstöðu í þinginu með gengismálið sem brú milli þeirra og sócíalista, það er þeirra eigin sök, en ekki mín. Það hefði mátt viðhafa slíkar aðfinslur, ef jeg hefði sagt, að íhaldið hefði komið svo illa fram og ódrengilega við verkalýðinn, að til slíks sambands væri ekki að hugsa.

Um hinn einkennilega hluta ræðu hv. þm. Vestm., sem fjallaði um fulltrúa Dalamanna, ætla jeg ekki að segja nema litla gamansögu. Við stofnun eina hjer í Reykjavík störfuðu tvær skapstórar konur, er allur bærinn vissi um, að höfðu munninn fyrir neðan nefið. (HK: Það hafa allir). Ekki eins vel og vinur minn hv. þm. Barð. Dag nokkurn kom önnur þeirra til yfirmanns stofnunarinnar með miklum bægslagangi og skýrði frá því, að hin hefði beitt hana voðameðferð og ódæmaskömmum. Forstjóranum, sem var maður rólyndur, varð þá að orði: „Jeg þykist vita, að þjer hafið ekkert getað sagt“. Þetta þótti merkilegt svar, því konan gekk þegjandi burt. Hún skildi sneiðina. Á sama hátt ætla jeg ekki að svara þessum barnapíuþvotti hv. þm. Vestm. viðvíkjandi hv. þm. Dal. Hann er maður til að svara fyrir sig sjálfur.

Annars er það ekki beinlínis þörf að slá svo mjög á þjóðernisstórtrumbuna fyrir sinn flokk. Það er kunnugt, að í flokknum eru allir þeir stór-Danir, sem á Íslandi búa. Allir slíkir menn ganga til kosninga með Íhaldsflokknum. Enda er það ekkert óeðlilegt; mikið af þeim er fjesýslulýður, er hefir sameiginlega hagsmuni mönnum þeim, er skipa Íhaldsflokkinn. Þeir skilja ekki frekar en skarnið og bleytan.

En úr því að hv. þm. fór að finna að því, að jeg væri linur í máli í nefndinni, þá væri ekkert á móti að athuga, hvernig fulltrúi Íhaldsflokksins hefir komið þar fram. Hann er þar sannarlega ekki sá kröfuharðasti. Ef menn vilja á annað borð fara út í þessa sálma, þá er jeg sannarlega ekki á móti því, að það verði rannsakað, og þá athugað líka, hversu mikil sjálfstæðishetja fulltrúi íhaldsins reynist þar.

Það getur margt breytst á skömmum tíma. Nú hefir hv. þm. Vestm. haldið lofræðu um hinn eina fulltrúa frjálslynda flokksins á þingi. Það söng öðruvísi í flokknum haustið 1926; þá átti íhaldið kost á að fá hann inn á þing í Dalasýslu. En þá þótti svo mikils við þurfa, að sjálfur formaður Íhaldsflokksins ásamt núv. hæstv. forsrh. gerðu sjer báðir ferð vestur í Dali og gerðu hvað þeir gátu til að vinna á móti honum. Það fór nú svo þá, að þeim tókst að leggja kappann að velli, og mun það sannast, að ákafinn hafi engu minni verið hjá formanni Íhaldsins en Framsókn við að fá hann feldan. Formaður Íhaldsflokksins var þá í svipuðum hug til hv. þm. Dal. eins og Gissur Þorvaldsson, er hann kom að Sturlu Sighvatssyni hálfdauðum og föllnum á Örlygsstöðum. Þá hoppaði Gissur upp, svo að sást undir iljar honum, um leið og hann reiddi vopnið til höggs og mælti: „Hjer skal jeg að vinna!“