15.04.1929
Neðri deild: 45. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1176 í B-deild Alþingistíðinda. (667)
16. mál, fjárlög 1930
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Hv. þm. Dal. byrjaði á því að gefa skýrslu um viðskifti sín við Dani út af íslenskum stjórnmálum, en var þó svo varkár, sjálfs sín vegna, að fara ekki ítarlega út í þau mál.
Hv. þm. hjelt því fram, að Íslandsbanki væri íslensk stofnun, vegna þess að tveir af bankastjórunum væru skipaðir af íslenskum stjórnarvöldum. En hann forðaðist að minnast á það, að meginhluti hlutafjárins er eign útlendinga og að hluthafafundur og þar með æðstu yfirráð yfir bankanum eru háð erlendu valdi. Þetta fyrirtæki er því danskrekið og dansksinnað að sama skapi. (SE: Kemur það þessu máli við?). Jú, af því að það lýsir kynlegu ósamræmi hjá hv. þm. sem yfirlýstri sjálfstæðishetju, að hann skuli jafnfúslega hafa gengið á hönd þessu stærsta danska fyrirtæki á landi hjer. (SE: Jeg er skipaður af ísl. stjórninni til að gæta íslenskra hagsmuna). Það er gott, að hv. þm. skuli játa með þessu, að Íslandsbanki sje danskur, því ekki hefði þurft að setja menn til þess sjerstaklega að gæta hagsmuna Íslands í íslenskum banka. En þá verður það bæði broslegt og furðulegt, að hv. þm. Dal., sem hefir jafnan verið örlátur á yfirlýsingar um óbeit sína gegn dönskum áhrifum, skuli einmitt hafa valið sjer það hlutskiftið, að efla hjer með starfskröftum sínum dönsk yfirráð á fjármálasviðinu. Hv. þm. Dal. getur skemt sjer við að tala um það, að hann sje skipaður til að gæta íslenskra hagsmuna í bankanum, því stjórn bankans og ráðstafanir hluthafafundanna á undanförnum árum sýna, að hagsmuna erl. hluthafanna hefir verið gætt, en fríðindin og ívilnanir bankanum til handa sóttar til ísl. ríkisins.
Hv. þm. Dal. getur því ekki borið það af sjer, að einmitt þegar hann, vegna fylgisleysis meðal kjósendanna í landinu, þurfti að gera varanlegar ráðstafanir um framtíð sína, valdi hann sjer þessi dönsku móðurbrjóst, og að hann dró á sig mikið ámæli fyrir þá aðferð, sem hann beitti til þess að geta sjálfur skipað sig þar á spenann. Auðvitað má líta á það, hv. þm. Dal. til afsökunar, að hann mun hafa vonað, að þessi brjóst yrðu dropasæl, á meðan þau ekki yrðu þursogin.
Hv. þm. Dal. talaði mikið um hnútukast frá mjer og setti upp vandlætingarsvip og kveinstafi yfir því, að stj. skuli drepa fingri á eitt af kaunum hans um leið og hún ber af sjer lögin hjer á Alþingi. Er það venja hans, þegar honum er svarað í viðeigandi tón, að kveinka sjer yfir óbilgirni veraldarinnar og vonsku mannanna. En þessi píslarvættistónn er illa viðeigandi fyrir þá menn, sem þykjast eiga erindi í eldhúsið. Þeir hv. þm., sem gera hjer aðsúg að stj. og leitast við að bera á hana sakir, geta tæplega búist við því, að hún taki á þeim með sjerstakri umhyggju fyrir því, að þeir komist hvergi við í þeirri almennu viðureign.
Þá talaði hv. þm. Dal. enn langt mál um strandgæslu hins danska varðskips og endurtók með nokkurri viðbót öll fyrri ummæli sín, án þess að taka að neinu leyti til greina þær ástæður, sem liggja fyrir til skýringar á málinu. Jeg hefi í fyrri svarræðu minni til hv. þm. sýnt fram á, að enda þótt strandgæslu skipsins sje hagað nokkuð á annan veg en margir telja æskilegt, þarf það ekki að vera brot á þeim samningi, sem um þetta gildir á milli þjóðanna. Hv. þm. Dal. hefir alveg hliðrað sjer hjá að svara tveimur spurningum viðkomandi honum sjálfum í sambandi við þetta mál. En þær voru þess efnis, hvers vegna hann hafði ekki gengið fram í því í sambandslaganefndinni, að í sambandslögin frá 1918 yrðu sett skýr ákvæði um það, hversu marga daga danska varðskipið mætti liggja á höfnum til ketilhreinsunar og annara nauðsynja, og yfir höfuð um það, hversu strandgæslunni skyldi haga, svo að ekki orkaði tvímælis. Og í öðru lagi spurði jeg hv. þm., hversu marga daga varðskipið hefði legið inni á höfn og hversu það hefði gætt landhelginnar, þegar hann var sjálfur dómsmrh. En hv. þm. láðist að svara þessum spurningum. Og hvers vegna hefir hv. þm. ekki svarað þeim? Af því að hann er í raun og veru að gera sig hlægilegan, þegar hann er að deila á sambandsþjóð okkar fyrir strandgæsluna án þess að geta sýnt, að hún sje í ósamræmi við þau samningsákvæði, sem hann á sínum tíma var með í að setja og tók þá góð og gild fyrir hönd þjóðarinnar. Og um strandgæsluna í sinni stjórnartíð vill hann vitanlega heldur ekkert segja, enda hafði hann þá sjálfur skapað sjer aðstöðuna og bar þá ábyrgð á því að koma sæmilega fram fyrir hönd þjóðarinnar gagnvart jafnrjetthárri sambandsþjóð.
Jeg hefi þegar bent á ýmsar ástæður, sem fyrir liggja til skýringar í þessu máli, en sem hv. þm. Dal. forðast að taka til greina. Fylla er ekki hentugt skip til strandvarnanna. Samt getur ísl. stj. ekki, samkv. þeim samningi, er hv. þm. var á sínum tíma með í að setja um þetta efni, krafist þess, að Danir leggi til hentugra skip. Auk þess nota Danir skipið til æfinga fyrir sjóliðsmenn jafnframt því að inna af höndum strandvörnina, og getum við heldur ekki sagt neitt við því. Jeg hefi bent á það, að árið 1926 tók Fylla marga togara og eins það, að þótt hún hafi tekið fáa togara síðastl. ár, þarf það ekki að vera sönnun fyrir mjög ljelegri strandgæslu, heldur getur það hafa stafað af því, að skipið hafði til gæslu þann hluta landhelginnar, þar sem yfirleitt er örðugt að taka togara, á svæðinu kringum Snæfellsnes. Það mætti í raun og veru alveg eins segja, að það væri sönnun fyrir mjög góðri strandgæslu, því hið „ideella“ takmark strandgæslunnar er það, að landhelgin sje algerlega varin. Enda sýndu dagbækur skipsins, að það hafði þá siglt um 15 þús. sjómílur á tiltölulega stuttum tíma.
Hv. þm. Dal. taldi, að munurinn á tölu þeirra togara, sem íslensku varðskipin hefðu tekið, og svo aftur hið danska væri sönnun fyrir því, hversu göfugt hlutverk hann sjálfur hefði int af höndum í sjálfstæðisbaráttunni, en taldi aftur á móti, að jeg hefði staðið mig illa í því efni og að nýja leiðandi menn þyrfti í landinu, ef núv. stj. teldi þessa strandgæslu fullnægjandi af hálfu Dana. Jeg hefi nú sýnt fram á, að íslenska stj. hefir ekki aðstöðu til þess að krefjast breyt. í þessu efni, og mjer virðist það ekki lýsa sjerlegum hetjuskap hv. þm. Dal. í sjálfstæðisbaráttunni, að hafa með fúsu geði gengið að þessum samningum fyrir okkar hönd, hafa sjálfur orðið sem dómsmrh. að taka afleiðingum þeirra með þögn og þolinmæði, en rísa nú upp með mikilli vandlætingu í garð núv. stj. yfir því, að hún standi sig ekki betur en hann sjálfur og verði yfirleitt að búa við afleiðingar handaverka hans sjálfs í þessu efni.
Þá vill hv. þm. telja, að ástæða sje til að skifta um stj. til þess að krefjast betri strandgæslu af Dönum. En reynslan sýnir, að hvorki hann nje aðrir fyrv. ráðh. hafa tekið núv. stj. fram í þessu efni. Og þessi skoðun hv. þm. er mjer sönnun fyrir því, hversu gamaldags hv. þm. er í hugsunarhætti. Hann vill kasta sem mestri áhyggju upp á Dani, jafnframt því sem hann þykist berjast fyrir því, að við tökum öll okkar mál í eigin hendur. Hann heldur hjer úti blaði og kostar mann til þess að lesa hinar fornfálegu hugsanir sínar og halda uppi óvinsamlegum umr. um sambandsþjóð okkar um leið og í sál hans þróast einskonar undirlægjuhugsunarháttur og bónbjargatilhneiging gagnvart Dönum. Þetta sýnir betur en nokkuð annað, að hv. þm. hefir stansað á þróunarbrautinni og að hann er einskonar eftirlegukind frá tímum Danahatursins, þegar Íslendingar Köstuðu áhyggju sinni upp á umhyggju þeirrar þjóðar, sem þeir þó af gildum sögulegum ástæðum báru mjög þungan hug til.
Enda þótt hv. þm. Dal. hafi ekki tekist vel að ganga frá samningnum milli Íslendinga og Dana, svo að hann er nú síóánægður yfir ákvæðum hans, virðist þó þessi hv. þm. jafnan líta svo á, að helstu sjálfstæðisúrræði okkar sjeu fólgin í pappírsgögnum og málæði. Aftur á móti er hann ekki viðlátinn, ef þörf er á atkv. hans hjer á þingi til þess að bjarga nauðsynjavöru landbúnaðarins eins og áburðin um úr fjárgróðataki útlends kaupmanns eða vinna bug á leppunum og erlendum yfirráðum í síldarversluninni. Hv. þm. virðist í stuttu máli vera mjög náinn vinur flestrar þeirrar erlendu ásælni hjer á landi, sem í eðli sínu stríðir á móti hugsjón þjóðarinnar og ætlunarverki um fullkomið sjálfstæði þjóðarinnar, ekki einungis í orði, heldur og á borði. Hv. þm. þarf því ekki að búast við, að hann verði tekinn mjög hátíðlega, hvorki hjer á Alþingi nje í blaði sínu, meðan hugmyndir hans í sjálfstæðismálunum eru svo gamaldags og langt á eftir skilningi flestra nútíðarmanna á Íslandi.