15.04.1929
Neðri deild: 45. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1208 í B-deild Alþingistíðinda. (672)

16. mál, fjárlög 1930

Hákon Kristófersson:

Án þess að vilja gera lítið úr tilmælum hæstv. forseta, vil jeg taka það fram, að jeg þarf engrar afsökunar að biðja á mælgi minni við þessar eldhúsdagsumr. Jeg þarf því ekki þess vegna að takmarka mál mitt. Hinsvegar er engin furða, þó að farið hafi langur tími í þessar umr., því að hjer hefir verið tvöfaldur eldhúsdagur. Það hefir verið ráðist á tvær stjórnir. Fyrv. stj. hefir verið blandað inn í umr. og hefir það lengt þær að mun. Jeg mun reyna að stilla ummælum mínum svo í hóf, að ekki gefist tilefni til neinnar harðvítugrar deilu, svo framarlega sem andstæðingar mínir eru ekki haldnir af óviðráðanlegum geðofsa.

Það, sem jeg vildi sjerstaklega vekja máls á, er um gjafafje Herdísar sál. Benediktsen. Það kemur fram í aths. við fjárlagafrv. um 14. gr. XV., að styrkveiting til húsmæðraskólans á Staðarfelli er látin falla niður, þar eð ákveðið er, að Herdísarsjóður taki hann að sjer. Jeg ætla nú að leyfa mjer að bera fram fyrirspurnir til hæstv. dómsmrh. og vona, að jeg fái greið og góð svör. Í fyrsta lagi vil jeg spyrja hæstv. ráðh., hver hefir ákveðið þetta, og í öðru lagi, með hvaða heimildum það er gert. Það er ekki fyrir það að synja, að þegar hinum svokallaða húsmæðra skóla á Staðarfelli var komið á laggirnar, var talsverður uggur í mjer og öðrum um það, að þegar búið væri að smeygja inn litla fingrinum, mundi öll höndin koma á eftir. Það kom sem sje greinilega í ljós hjá ónefndum mönnum, að þarna væri möguleiki til að láta sjóð Herdísar sál. taka til starfa og blanda honum inn í Staðarfellsgjöfina, eða öllu heldur söluna. Sá, sem mest barðist á móti þessu, var hv. 2. landsk. (IHB) og ýmsir fleiri, og það leiddi til þess, að stofnað var til harðvítugra mótmæla gegn því, að þetta kæmi fyrir í framtíðinni. Jeg hefi einhverntíma sagt — og það er í samræmi við skoðanir fjölda manna, —, að þetta gæti ekki orðið, nema því aðeins, að ekki yrði farið eftir ákvæðum þeim, sem felast í arfleiðslubrjefi Herdísar. Jeg hefði aldrei gert ráð fyrir því, að nokkur stj. treysti sjer til þess að ganga á svig við síðasta vilja þessa eða annara gefenda. Til þess að skýra þetta nánar, skal jeg lesa nokkur atriði úr brjefinu, með leyfi hæstv. forseta. 3. liður hljóðar svo: „Að lokum ákveð jeg, Herdís Benediktsen, sem minn síðasta vilja, að þegar útfararkostnaður minn hefir verið heiðarlega greiddur ásamt kostnaði þeim, er skiftin eftir mig hafa í för með sjer, og þegar framanskrifuðu hefir verið nákvæmlega fullnægt, þá skulu allar þær eignir, sem eftir mig verða skuldlausar, eður þrír fjórðu partar allra skuldlausra eigna minna, aðeins með þeim takmörkunum, sem jeg hefi ákveðið í 2. lið, ganga til stofnunar kvennaskóla á Vesturlandi, og er sú ráðstöfun mín gerð, bæði af einlægum vilja mínum og samkvæmt þeirri ósk, sem einkadóttir mín elskuleg, Ingileif Sólborg Charlotta Benediktsen, ljet fleirum sinnum í ljós við mig sem sinn hjartans vilja“.

Í 4. lið stendur ennfremur:

„Þessi gjöf mín til kvennaskólastofnunar á Vesturlandi óska jeg að beri nafn okkar mæðgna og heiti „minning Herdísar og Ingileifar Benediktsen“. Gjöfin skal vera undir stjórn og umsjón landshöfðingjans yfir Íslandi, og er það vilji minn, að henni verði komið í konungleg ríkisskuldabrjef og renturnar lagðar upp í 10 ár og þeim bætt við höfuðstólinn, sem aldrei má skerða, heldur aðeins verja vöxtum hans til áminstrar skólastofnunar. Að umgetnum 10 árum liðnum skal enn leggja upp renturnar af öllum höfuðstólnum, eins og hann þá er orðinn, þangað til svo mikið fje er fyrir hendi, að landshöfðinginn, eftir samráði við amtsráðið í Vesturamtinu, álítur það nægilegt til þess að setja kvennaskólann á stofn, svo að hann geti tekið til starfa án þess að höfuðstóllinn sje skertur“.

Jeg þarf ekki að lýsa hinum rauða þræði þessa brjefs, sem er sá, að skólinn skuli ekki settur á stofn fyr en hann er orðinn svo efnaður, að hann geti sjeð fyrir sjer sjálfur. Þetta byggi jeg bæði á brjefinu og eins á umsögn manna, sem voru þessu kunnugir og þekt höfðu þessa merkiskonu. Viðvíkjandi því atriði, að í brjefinu er talað um landshöfðingja, þá segir sig sjálft, að í þess stað er nú um viðkomandi ráðh. að ræða. En um amtsráðin er það að segja, að aðrir aðilar hafa komið í stað amtsráðs Vesturamtsins. Get jeg í því efni vísað til kgl. tilsk. frá 2. mars 1908, sem hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Þá er til þess kemur að stofna kvennaskóla í hinu fyrverandi Vesturamti af sjóði „Minning Herdísar og Ingileifar Benediktsen“, skal leita álita sýslunefndanna í nefndu amti um þau atriði, er amtsráði Vesturamtsins var ætlað að hafa afskifti af samkvæmt gjafabrjefi frú Herdísar Benediktsen“.

Jeg vona nú, að hæstv. dómsmrh. lái mjer það ekki, þótt jeg furði mig á, ef þessari ákvörðun hefir verið slegið fastri án þess að viðkomandi sýslunefndum hafi verið gefinn kostur á að segja álit sitt um það. En mjer er kunnugt um, að það hefir ekki verið gert. Þess hefði þó mátt vænta, því hæstv. stj. var vel kunnugt um öll þau andmæli, sem fram hafa komið gegn því, að þessi sjóður tæki til starfa fyr en hann væri þess megnugur að sjá um skólann að öllu leyti, og að honum yrði ekki slegið saman við annað gjafafje. Jeg get ekki fallist á þá afsökun, sem jeg býst við, að hæstv. stj. muni koma með, að þessu hafi verið slegið föstu þegar tekið var við Staðarfellsgjöfinni. Enda á að kenna þá gjöf við þá fóstbræðurna, Gest heit. Magnússon og Magnús heit. Guðmundsson. Og enda þótt sá skilningur sje í það lagður, að Alþ. hafi tekið við gjöfinni með því skilyrði, að Herdísarsjóðnum yrði slegið saman við hann, þá getur það ekki skoðast bindandi, því slíkt var ómögulegt að gera, nema með því að ganga á svig við síðasta vilja stofnanda sjóðsins. Um það, hvert fyrirkomulag yrði haft á skólanum, legg jeg ekki eins mikið upp úr; þótt miðað væri við Ytri-eyjarskólann, þá hafa breyttir tímar gefið rjett til hagkvæmara fyrirkomulags. Hitt er aðalatriðið, að sjóðurinn sje ekki látinn byrja fyr að starfa en hann er fær um að bera uppi allan kostnað af skólahaldi. Sjóðurinn var í árslok 1927 kr. 141736.04, og við það hafa svo bætst 5% vextir á árinu 1928; nemur það nokkrum þús. kr. Jeg hafði ekki búist við því að sjá þetta í aths. við fjárlagafrv. Jeg verð að líta svo á, að þetta sje gert án hæfilegrar heimildar. Jeg veit það, að jeg tala hjer fullkomlega í samræmi við vilja þeirra aðila, sem um þetta eiga að fjalla og sem jeg nefndi áðan. Það er nú máske barnalegur skilningur hjá mjer, en jeg leit nú samt svo á, að Alþ. kæmi þetta ekki nokkurn skapaðan hlut við. Það eru ráðh. og sýslunefndirnar, sem hafa umráða- og ákvörðunarrjett um þennan sjóð. Og standi sá skilningur minn óhaggaður, þá sje jeg ekki, að Alþ. hafi neitt með þetta að gera. Og þá er því líka óheimilt að taka móti gjöf, sem setur það skilyrði, að þessi sjóður sameinist henni og að þar verði skóli frú Herdísar settur. Og jafnvel þótt Alþ. hafi gert eitthvað í þessu máli, sem því bar enginn rjettur til, þá heimilar það nú stj. engan veginn að gera þetta. Ef hún hefir gengið framhjá rjettum aðilum, þá hefir hún að mínu viti enga heimild haft til að stofna þennan skóla nú. Ef sú regla yrði upp tekin að ganga framhjá skilmálum gjafabrjefa, þá mundi enginn sjá sjer fært að gefa slíkar gjafir. Þeir geta þá ávalt átt á hættu, að ákvæði þeirra yrðu síðar að engu höfð.

Jeg skal viðurkenna, að þetta stendur í gjafabrjefi Magnúsar Friðrikssonar, og má því máske segja, að Alþingi hafi lofað þessu. En jeg tel það nú samt ekkert samþykki Alþ., þótt þetta hafi verið borið undir einhverja n. í þinginu, ef það hefir ekki verið samþ. af Sþ. eða annarihvorri d. þingsins. Jeg hefi áður leyft mjer að bera fram mótmæli gegn þessu, og jeg hefi sömu skoðun enn.

Mjer þykir nú að sinni ekki ástæða til að fara frekar inn á þetta mál. Jeg býst við, að hæstv. dómsmrh. muni gefa góð og gegn svör, eins og vænta má af honum. Skyldi það gleðja mig mjög, ef þau sýndu það, að ótti minn væri með öllu ástæðulaus og að enginn líkræningjaháttur væri framinn í þessu máli. En því nafni kalla jeg það, ef stj. ekki framkvæmir síðasta vilja látinna manna.

Jeg skal nú ekki verulega blanda mjer inn í hinar miklu umr., sem orðið hafa hjer um ýms mál. En jeg verð að átelja ummæli, sem hæstv. dómsmrh. viðhafði í deilu sinni við hv. þm. Vestm. Hæstv. ráðh. vildi dæma hann og Íhaldsflokkinn fyrir ólag það, sem átt hafði sjer stað á áfengisversluninni. Jeg vona, að ekki verði tekið hart á mjer, þótt jeg spyrji um, hver mín afskifti hafa verið í því máli. Það kann að vera, að beina megi ásökun til einstakra manna. En að beina slíkum ásökunum til flokksins yfirleitt nær ekki nokkurri átt.

Þá þótti mjer leitt að heyra af vörum jafnágæts manns og hæstv. dómsmrh. er, að íhaldsflokkurinn hefði lagst flatur fyrir Spánarsamningunum. Þetta kalla jeg ódrengskap. (Forseti hringir). Vill hæstv. forseti segja mjer, hvers vegna hann hringir? (Forseti BSv: Jeg vítti það, að hv. þm. viðhafði orðið „ódrengskapur“). Já, hvað á að segja? Kallar hæstv. forseti það ekki ódrengskap að bregða öðrum mönnum um það, sem þeir hafa ekki gert? (Forseti BSv: Jú, að vísu. En hv. þm. er svo orðhagur, að hann getur vel viðhaft þinglegra orð um þetta). Jeg man nú ekki til, að hæstv. forseti hringdi, þegar hæstv. ráðh. sagði, að íhaldsflokkurinn hefði verið dæmdur fyrir afglöp sín við áfengisverslunina. Jeg held, að það sje að minsta kosti jafnóþinglegt og það, sem jeg sagði. En hæstv. forseti var ekkert að fást um það. Það er vitanlega hæstv. forseta til sóma að halda uppi reglu, en það er rjett, að allir sjeu jafnir fyrir lögunum. Þótt jeg sje nú staddur í þinghúsinu og mæli þar í þeirri helgi, sem veitt er þar, þá er jeg reiðubúinn, ef jeg hefi mælt eitthvað ósæmilegt, að endurtaka það utan þessara veggja. (ÓTh: Jeg skal vera ábyrgðarmaður á þeim víxli!). Jeg verð að lýsa undrun minni yfir því, að hæstv. forseti, eftir alt, sem hjer hefir verið sagt, skuli finna ástæðu til þess að víta það, þótt jeg tali um drengskap. Jeg talaði þó sannarlega kurteislega, eins og við var að búast af mjer. Jeg get ekki álitið það, að hæstv. forseti álíti, að jeg sje einn af þremur mestu orðhákum deildarinnar, sem bent hefir verið til að vera mundu.

Jeg ætla ekki að draga fram nein ný árásarefni. Eins og vant er að vera hefir nú verið deilt mjög á hæstv. stj. Verður hver stj. að sætta sig við, að slíkt sje gert. En á eitt mál verð jeg þó að minnast, og það er Tervani-málið. Það vildi svo einkennilega til, að jeg hafði minst á það mál annarsstaðar, en þó með allri hógværð og sanngirni, sem mjer er lagið. Mjer var nú álasað fyrir þetta, svo jeg hjelt máske, að jeg hefði þarna hlaupið eitthvað á mig og átalið það ómaklega, að stj. hefði þarna gert eitthvað, sem ekki hefði verið rjett. Nú hefir þetta mál verið vítt hjer og hæstv. stj. hefir fært fram sínar varnir. En jeg verð að lýsa því yfir, að þær hafa ekki verið eins mikilsverðar og vænta hefði mátt. Aðalvörnin hefir verið bygð á ummælum hins stóra og merka lögfræðings, Lárusar Jóhannessonar, sem var verjandi í Júpiter-málinu. En jeg get nú samt ekki sjeð, að þetta rjettlæti aðgerðir stj. í þessu máli. En þótt jeg leggi annan skilning í þetta en hæstv. stj., þá er það ekki af neinum illvilja gert. Og þau ummæli hæstv. dómsmrh., að á móti þessu væru ekki aðrir en skrælingjar og úrþvætti þjóðarinnar, þykja mjer alveg óviðurkvæmileg.

Hæstv. dómsmrh. sagði, að ýmsir skipstjórar væru á sama máli og hann um þetta. Það getur verið satt. En það haggar þó ekki minni skoðun á málinu, eftir að hafa heyrt þær umr., sem hjer hafa fram farið. Sannanir þær, sem hafa fest álit mitt, eru eiðfestir framburðir vitnanna og mælingar þær, sem fram fóru. Það er aðalatriðið í þessu máli. Fortíð bátsins kemur heldur ekkert þessu máli við. Þótt hann hafi verið notaður áður til að smygla inn áfengi og í góðu vinfengi við hv. 2. þm. G.-K., þá haggar það ekkert grundvelli dómsins. Annaðhvort hafa bæði skipin verið sýkn eða sek. En nú hafði hæstirjettur tekið vitnin gild og dæmt Júpiter sekan eftir því. Mjer er það ekkert launungarmál, að einhver hefir borið þá sögu til næstv. dómsmrh., að jeg hafi viljað koma fram vantrausti á stj. á fundum fyrir vestan út af þessu máli. En það var nú síður en svo. Jeg hreyfði þessu máli og bygði ummæli mín á rökum, sem jeg veit, að eru rjett. Jeg vildi aðeins láta það fram koma, hvort menn væru stj. sammála eða ósammála um þetta. Á einum fundi vildu menn enga ákvörðun taka um þetta, en annarsstaðar var það gert. Þetta var það, sem gaf mjer sjerstaka ástæðu til að minnast á þetta mál. Og verð jeg að segja, að jeg álít það miður farið, sem gert hefir verið í því, þótt jeg hinsvegar vilji álíta, að hæstv. dómsmrh. hafi gert það eftir bestu sannfæringu. Skal jeg svo ekki fara frekar út í þetta að sinni.

Jeg vil vona, að hæstv. dómsmrh. gefi mjer ákveðin svör við spurningu minni viðvíkjandi Herdísarsjóðnum og Staðarfellsskólanum.