15.04.1929
Neðri deild: 45. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1260 í B-deild Alþingistíðinda. (679)

16. mál, fjárlög 1930

Magnús Guðmundsson:

Jeg þyrfti aðeins að svara hæstv. dómsmrh. fáeinum orðum. Hann talaði um það, að við þm. Skagf. hefðum viljað hafa tvö frystihúsin á Sauðárkróki, en það er ekki rjett. Við vildum hafa einungis eitt frystihús, og láta tvö fjelög vera í samvinnu um það og veita báðum fjelögunum styrk, en þegar búið var að veita öðru fjelaginu styrkinn, þá fórum við fram á styrk til hins. Aðaldeilan er um, hvað fór milli hæstv. ráðh. og sjera Sigfúsar. Ráðh. hefir neitað að hafa talað um þetta mál við sjera Sigfús. Á því má sjá, að það er annaðhvort hæstv., dómsmrh. eða sjera Sigfús, sem hefir rangt fyrir sjer í þessu. (Dómsmrh.: Eða hv. þm. sjálfur). Það getur ekki verið, því að jeg fer eftir sögusögn manna, sem á fundinum voru.

Hæstv. dómsmrh. notaði heilan klukkutíma til þess að svara minni stuttu ræðu áðan, og skákaði þar í því hróksvaldi, að jeg er dauður. Hann var svo ónærgætinn að blanda þar inn alveg nýju máli, um Arnarhólstúnið, og hefi jeg þar of lítinn tíma til andsvara. Jeg hefi ekki betur sjeð en að hestum sje beitt á túnið á haustin núna í stjórnartíð hæstv. dómsmrh., og verð jeg að telja það meiri saurgun á þeim helga stað heldur en að leyfa fólki að koma þar saman í júnímánuði, þegar búið er að slá. Það var landsspítalasjóðsnefndin, sem fjekk túnið lánað, svo að þetta var eingöngu í landsins þjónustu og ríkissjóður græddi á þessu 6–7 þús. kr. á ári. Þykir mjer það góð leiga fyrir einn dag.

Hæstv. ráðh. sagði, að Hnífsdalsmálið hefði verið lagt á hilluna nokkru fyrir stjórnarskiftin síðustu, en það er með öllu rangt. Svo talaði hann um þennan dómstól almenningsálitsins, sem sje hafinn yfir alla aðra dómstóla og hann hefir svo miklar mætur á. Jeg vil þá benda honum á það, að það er skift verkum í stjórnarskránni, og svo lengi sem hann vill vera ráðh. og lifa í landinu, þá verður hann skilyrðislaust að beygja sig undir dóma dómstólanna. Hann talaði svo um franskt hneykslismál í þessu sambandi, og veit jeg ekki, hvað það átti að þýða, nema ef hann vill líkja sínum eigin málum við það.

Það hafa nú orðið æðilangar umr. á þessum eldhúsdegi, og er það að vonum, því margt er áfellisvert í fari hæstv. stj. Hæstv. dómsmrh. hefir líka gert sitt til þess að lengja umr., og hefir hann sjerstaklega dregið tímann með því að standa upp eftir hverja ræðu okkar stjórnarandstæðinganna og blanda óskyldum málum inn í umr., og notar svo miklu lengri tíma til andsvaranna heldur en ræður okkar tóku. Þegar þessar umr. verða gerðar upp, þá geri jeg ráð fyrir, að tiltölulega langmesti hlutinn falli á hans bak.