17.04.1929
Neðri deild: 47. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1298 í B-deild Alþingistíðinda. (691)

16. mál, fjárlög 1930

Sveinn Ólafsson:

Það verður einhver að rjúfa þá miklu þögn, sem hjer ríkir, og skal jeg þá ríða á vaðið. Reyndar eiga ýmsir aðrir bæði fleiri og umfangsmeiri till. en jeg að tala fyrir.

Jeg á einungis eina brtt. við þennan kafla fjárlaganna, XI. brtt. á þskj. 345, um 12000 kr. fjárveitingu til að byggja loftskeytastöð í Papey með miðunaráhaldi. Jeg býst við, að flestum þdm. sje lítið kunnugt um það, sem gerst hefir undanfarið um viðbúnað til byggingar loftskeytastöðvar í Papey. Því hefir oft verið hreyft heima í hjeraði og nú síðast leitað til sjerfróðra manna, fyrst og fremst til vitamálastjóra og landssímastjóra, en einnig til annara, er skyn bera á þá hluti. Landssímastjóri hefir gert áætlun í tvennu lagi um byggingu stöðvarinnar, og er till. þessi miðuð við lægri upphæðina. Taldist honum svo til, að fullkomin loftskeytastöð, er næði á hverjum tíma til Reykjavíkur, mundi kosta um 20 þús. kr. En minni stöð, er oftast á að ná til Reykjavíkur, en er þó ekki örugg, á að kosta 7500– 8000 kr. Hefir það orðið að samkomulagi við vitamálastjóra að haga till. svo, að ef lítil stöð verður reist í Papey, þá verði sett þar upp miðunartæki í sambandi við stöðina, svo úr því verði skorið, hvort unt er að gefa miðanir og leiðbeina skipum í dimmviðri frá þessari litlu stöð og þannig fullnægja ætlunarverki radiovita, sem bráðlega hlýtur að verða reistur á einhverju andnesinu eystra. Að hjer er farið fram á 12 þús. kr. í stað 7500 kr., sem áætlun landssímastjóra hljóðar um, stafar af því, að vitamálastjóri leggur áherslu á það, að miðunartæki verði, reynd þarna um leið og loftskeytastöð verður reist, en verð sjálfvirkra miðunartækja er áætlað 4–5 þús. kr. Út af fyrir sig eru þau ekki nauðsynleg, er radioviti kemur nærlendis, og mætti þá flytja þau burt og nota þau annarsstaðar.

Að nauðsynlegt sje að koma eynni í hraðfrjettasamband við land, mun enginn efast um, sem staðhætti þekkir. Jeg vil aðeins benda á það, að í sveitunum og verstöðvum milli Austurhorns og Dalatanga eru fleiri smábátar undir 12 smálesta stærð en í nokkru öðru hjeraði landsins. Samkv. fiskiveiðaskýrslum fyrir árið 1927 voru þarna í förum 180–200 slíkir bátar á því ári, auk nokkurra stærri. Siglingaleið er þarna hæpin og hættuleg vegna grunnsævis kringum eyna. Það, sem hjer er farið fram á, er öryggisráðstöfun sjómannanna vegna. Þeir mörgu menn, sem þarna eiga leið um með dýr farartæki, eiga sanngirniskröfu á, að eitthvað sje þeim til öryggis gert. Sjómenn leita oft til Papeyjar undan veðri, en þaðan geta þeir ekki gert vart við sig eða kallað á hjálp úr landi. Eru því oft gerðar umfangsmiklar og dýrar ráðstafanir til að leita þeirra, er ekki hafa náð til hafnar og haldnir eru týndir, en reynast þá að liggja undir eynni.

Hin hlið þessa máls veit að veðurstofunni. Það er álit veðurstofustjóra, að Papey sje hinn ákjósanlegasti staður til veðurathugana. En veðurathuganir þar koma ekki að notum meðan eyjan er ekki í hraðfrjettasambandi við umheiminn. Upphæðin, sem um er beðið, er ekki há, þar sem horfið hefir verið að því að taka litlu stöðina, og síst þegar miðað er við það margháttaða verkefni, sem henni er ætlað. En það er hægt að sætta sig við þessa úrlausn, því að jafnvel með litlu stöðinni verður aðaltilganginum náð. Það verður altaf hægt að koma veðurskeytum annaðhvort til Reykjavíkur eða Seyðisfjarðar, en þaðan eru þau daglega símuð til veðurstofunnar eða til útlanda, þegar landssíminn er slitinn, og koma þá loftleiðina hingað frá útlöndum.

Að lokum skal jeg bæta því við, að eftir því sem jeg held, þá mundi önnur sú stöð, sem ætlað er að leggja niður á Suðurströndinni á næsta sumri, er landssímalínan kemur austur um, ef til vill nægja þarna, og gæti þá kostnaðurinn við að reisa stöð í Papey horfið að meira eða minna leyti, ef niðurlagða stöðin önnur yrði flutt til eyjarinnar.