18.04.1929
Neðri deild: 48. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1360 í B-deild Alþingistíðinda. (712)
16. mál, fjárlög 1930
Ásgeir Ásgeirsson:
Jeg skal segja nokkur orð um brtt. þær, er jeg flyt.
Á þskj. 345, tölul. LXII, er þess farið á leit, að Magnúsi skólastjóra Helgásyni verði veitt full laun, þótt hann láti af störfum. Jeg ætla ekki að gera Alþingi þá minkun að fara að lýsa verðleikum þessa ágæta manns fyrir þingheimi, því þeir eru þjóðkunnir. Aðeins skal jeg geta þess fyrir þá þm., er kynnu að halda, að hann hefði safnað auð fjár, að framan af var hann prestur á Torfastöðum í 22 ár við lítil laun. Staðnum skilaði hann af sjer endurbygðum og endurgjaldslaust. Þá gerðist hann kennari í Hafnarfirði, og frá því kennaraskólinn var stofnaður hefir hann starfað við hann. Frá því breyt. var gerð á launalögunum hefir hann notið sæmilegra launa, og þó ekki svo, að hann hafi safnað fje til ellinnar, enda er hann allra manna hjálpsamastur, þeirra er jeg þekki. Jeg veit af undirtektum hv. þdm., að þessi till. muni engan mótbyr fá. Er þetta hin síðasta þökk, er Alþingi á kost á að flytja hinum ágæta manni.
Þá á jeg XLVIII. brtt. á sama þskj., um að veita 2000 kr. styrk til minningarsjóðs frú Maríu Össursdóttur frá Flateyri, til berklavarnastarfsemi. Þessi sjóður er nú um 8000 kr. auk vaxta á síðasta ári. Hefir hann eflst mjög fyrir atbeina hjeraðsbúa. Ekki má byrja að nota hann, fyr en hann verður 10000 kr., og er þess væntst, að ríkið hjálpi nú til, svo hægt verði að grípa til hans þegar á næsta ári. Er ætlunin að byggja á Flateyri sólskýli fyrir börn, og á yfirleitt að beina starfseminni í þá átt að hindra útbreiðslu berklaveiki. En það þýðir sama og sparnaður á útgjöldum ríkissjóðs til berklavarna.
Jeg skal ekki eyða orðum að tveim smátill. um að hækka styrkina til þeirra Páls skálds Árdals og Hólmgeirs Jenssonar. Hækkunin er lítil, en báðir eru þeir alls góðs maklegir, fátækir og aldraðir. Þurfa þeir báðir hækkunarinnar með.
Þá flyt jeg, ásamt nokkrum öðrum, till. um að veita Magnúsi Ásgeirssyni 1500 kr. styrk til ljóðaþýðinga. Er safn það, er hann gaf út í vetur af þýðingum erlendra úrvalsljóða, flestum þm. kunnugt. Um þær þýðingar vil jeg leyfa mjer að lesa upp álit Árna Pálssonar, og þarf þá ekki frekar vitnanna við. Hann segir svo:
„Jeg hefi kynt mjer ljóðaþýðingar Magnúsar stúdents Ásgeirssonar og þori jeg að fullyrða að hann er nú hinn snjallasti ljóðaþýðari á voru máli. Hann hefir næman málsmekk og viðkvæman skilning á ljóðum, og stundum, þá er best gegnir, nálega takmarkalaust vald yfir formi. Tel jeg vafalaust, að sumar þýðingar hans jafnist á við hinar bestu þýðingar Steingríms og Matthíasar. Væri því vel farið, ef Alþingi sæi sjer fært að styðja að því, að þessi gáfa hans verði ekki arðlaus og gagnslaus“.
Fleiri brtt. skal jeg ekki nefna að sinni, en þó vil jeg bæta við mínum bestu meðmælum með till. um styrkinn til kvennaskólans. Það er engin ástæða til að lækka hann frá því, sem verið hefir, nema ný skipun sje á gerð um fræðslu kvenna. Kvennaskólinn hefir fulla þörf á þessum styrk og honum hefir ekki verið varið illa; það er hinn myndarlegasti skóli. Hann er landsskóli; bæði eru nemendur úr öllum sýslum landsins og eins hefir ríkið haldið honum uppi. En hann er einn ódýrasti landsskólinn. Það er því síst ástæða til að fara að skera af styrk hans. Þó skólinn hafi safnað sjer nokkrum sjóði, þá ætti það ekki að vera áhugamál Alþingis að eyða því fje til rekstrar, því síðar getur að því orðið góður stuðningur, er farið verður að byggja yfir hann.
Fleiri till. skal jeg ekki minnast á, en vil ljúka máli mínu á því, sem jeg byrjaði, að jeg vænti þess, að enginn finnist sá hjer í hv. deild, er ekki fylgi af fúsu geði till. um eftirlaun síra Magnúsar, er hann nú, sakir elli og þreytu, lætur af skólastjórn.