18.04.1929
Neðri deild: 48. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1380 í B-deild Alþingistíðinda. (715)

16. mál, fjárlög 1930

Haraldur Guðmundsson:

Það er að sjálfsögðu erfitt fyrir hv. þdm. að gera upp með sjer, hvernig þeir skuli greiða atkv. um þær mörgu brtt., sem fyrir liggja. Jeg verð að segja fyrir mig, að eftir fljótan yfirlestur vil jeg helst ljá þeim flestum liðsinni. Jeg ætla þó eingöngu að tala um fáar þeirra, aðallega þær, sem jeg er flm. að. Eru þær allar á þskj. 345.

Fyrst er XIV. till., þess efnis, að námsstyrkur til ráðstöfunar fyrir mentamálaráð verði hækkaður úr 4000 kr. í 12000 kr. Fjvn. hefir lagt til, að upphæðin verði hækkuð í 8000 kr., en það þykir mjer of lítið. Það er öllum þdm. kunnugt, að um fátt af liðum fjárlaganna er rætt meira en persónulega styrki, og þá helst námsstyrki. Margir, sem þykjast sparsamastir á ríkisfje, vitna í það, hversu duglegir þeir sjeu að standa á móti slíkum 1000–1200 króna styrkjum. Jeg lít svo á, að þessu fje sje betur varið en mörgu öðru, sem ráðstafað er með fjárl. Hjer er um að ræða styrki til efnilegra námsmanna, til þess að nema gagnleg fræði, sem ekki er kostur á að nema hjer heima. En hinum, sem stundað geta námið hjer heima, leggur ríkissjóður til mikið fje, beint og óbeint. Það kostar mikið fje að halda uppi háskóla og mundi kosta enn meira, ef skólanum væri þannig háttað, t. d. deildum fjölgað, að færri stúdentar þyrftu að leita til útlanda. Það er því ekki nema sanngjarnt að styrkja þá stúdenta, sem verða að sækja til útlanda, enda hefir það verið viðurkent, því að í fjárl. þetta ár eru veittar 24000 kr. til stúdenta við erlenda háskóla. Samt er það of lítið. Enda hefir stj. tekið upp 4000 kr. til viðbótar. Og áreiðanlega verður bætt við til einstakra manna. Það er að sumu leyti óheppilegt að láta Alþingi ráða úthlutun námsstyrkja. Það er hætt við, að handahóf ráði nokkru. Jeg held því, að betra sje að hafa sjerstaka stofnun, sem fær það fje til umráða og skiftir því á milli stúdenta. Mentamálaráðið er einmitt slík stofnun. Jeg hefi athugað, hvað slíkir styrkir nema miklu eftir fjárl. í ár, og eru það um 12000 kr. Nú hætta tveir stúdentar, og þá eru eftir um 10000 kr. Ef till. stj. verður samþ., þýðir það, að 6 af þeim stúdentum, sem í fjárl. eru, fá ekki styrk framvegis, en ef till. fjvn. verður samþ., þyrfti að lóga tveimur. Ef mín till. verður samþ., verður veitt sama upphæð og nú er í fjárl., og þá væri hægt að bæta við tveimur stúdentum næsta ár. Þetta er það allra minsta, sem hægt er að komast af með.

Næsta brtt. mín er við 14. gr. og er þess efnis, að styrkur til kvöldskóla Iðnaðarmannafjelagsins á Ísafirði verði hækkaður upp í 1500 kr., en til vara 1200 kr. Jeg skal geta þess, að meiri hl. fjvn. hefir fallist á að mæla með varatill., og því get jeg tekið hina aftur. Jeg veit ekki, hvort hv. dm. hafa gert sjer ljóst, hvernig þessu máli er háttað. Frá því að skóli þessi var stofnaður, árið 1910, og þangað til 1924 naut hann sama styrks og kvöldskólinn á Akureyri, 1000 kr. á ári. Á þinginu 1924 ríkti mikill „sparnaðarandi“, eins og menn muna, hjá hinum ráðandi flokkum þingsins, að minsta kosti í orði kveðnu. Þá var fyrst ráðist á alþýðufræðsluna, framlagið til þessara skóla lækkað niður í 500 kr. hjá hvorum. 2–3 árum seinna var þetta hækkað upp í 1200 kr. hjá Akureyrarskólanum, en til þessa hefir engin hækkun fengist til Ísafjarðarskólans. Í báðum bæjunum stendur þó eins á. Á báðum stöðunum er þörf á sömu fræðslu til iðnaðarmanna og iðnnema, og þegar þess er gætt, að með lögum um iðnaðarnám er fyrirskipað, að iðnaðarmenn, sem hafa lærlinga, skuli sjá þeim fyrir fræðslu, sjá allir, hve órjettlátt það er, að aðstaðan skuli vera gerð svona ólík. Iðnaðarmenn geta ekki int þetta af hendi nema með því að kaupa tíma handa lærlingunum eða koma þeim í kvöldskóla, því að í dagskóla geta iðnnemar ekki gengið, eins og allir vita. Það er því rökrjett afleiðing af því að leggja þessa kvöð á iðnaðarmenn, að hið opinbera verður að styrkja slíka skóla sæmilega. Skólinn starfar nú í tveim deildum með yfir 50 nemendum. Kenslukraftar eru ágætir, og skólinn nýtur yfirleitt trausts og hylli allra manna, sem til hans þekkja.

Þá á jeg brtt. XXI., við 14. gr., um það, að kvenfjelagið Ósk á Ísafirði verði styrkt að 2/5 hlutum til byggingar húsmæðraskóla á Ísafirði. Þetta fjelag hefir um margra ára skeið haldið uppi húsmæðraskóla á Ísafirði og lagt til þess mikið fje. Ríkið hefir styrkt það dálítið til þessarar starfsemi. Skólinn hefir verið ódýr mjög. Nemendur hafa aðeins þurft að greiða 75 kr. á mánuði í kenslugjald fyrir heimavist með fæði. Til þessa hefir skólinn haft aðsetur sitt í húsi, sem einstakur maður á, við mjög sanngjarna leigu. Nú hefir það hús verið selt og skólinn er húsnæðislaus. Ef hann á að starfa eins og hann hefir gert til þessa, er ókleift að fá húsnæði við hans hæfi, eða að minsta kosti ekki nema gegn mjög hárri leigu, sem mundi gleypa mestan hluta styrksins. Þess er skemst við minnast, að Alþingi samþ. í fyrra að styrkja að þó byggingu húsmæðraskóla á Laugum í Þingeyjarsýslu, en hjer er aðeins farið fram á 2/5 hluta. Jeg vona, að hv. d. sjái, hve hjer er farið hóglátlega í sakirnar og hversu mikla þörf er um að ræða, bæði fyrir fjelagið og hjeraðið í heild sinni.

Við 15. gr. flyt jeg brtt. um hækkun á styrk til leikfjelags Ísafjarðar, úr 600 kr. í 2500 kr. en til vara 1000 kr. Jeg verð enn að leita samanburðar til Akureyrar. Á báðum stöðunum hafa starfað leikfjelög með lítilsháttar ríkisstyrk, en á Akureyri er styrkurinn nú orðinn 1000 kr. Jeg hygg, að bæði fjelögin hafi unnið mikið og gagnlegt starf. Þeir, sem í þeim eru, hafa lagt mikið á sig, án þess að bera nokkuð úr býtum. Á Ísafirði hefir leikendum ekki verið launað, en fjelagið hefir lagt mikið í kostnað og leitast við að sýna aðeins góða leiki. Árið 1928 ljek fjelagið 6 sjónleiki, hvern öðrum betri. Voru það úrvalsleikrit eftir alþekta höfunda. Leikir, sem hafa bæði listagildi og menningarlegt gildi. Leiksýningar voru um 30 og aðgangseyrir tiltölulega lágur, enda aðsókn yfirleitt góð að sýningunum. Þetta verður að teljast vel gert í ekki stærri bæ en Ísafjörður er, með 2200 íbúum. Fjelagið hefir tvívegis fengið mann, sem er betur að sjer um þessa hluti en flestir aðrir á landi hjer, Harald Björnsson, til að leiðbeina leikendum, og kostað til þess talsverðu fje. Jeg tel víst, að hv. þdm. sjái enga ástæðu til að gera mun á leikfjelögunum á Ísafirði og Akureyri og samþ. að minsta kosti varatill. mína.

XXVII. brtt. er í þrem liðum. Fyrsti liðurinn er um það, að Sigrúnu Magnúsdóttur verði veittar 2400 kr., til vara 1500 kr., til leiknáms í Kaupmannahöfn. Þessi stúlka er ein af aðalleikendum Ísafjarðar og hefir getið sjer ágætan orðstír. Hún hefir notið tilsagnar hjá Haraldi Björnssyni, og hann hefir eggjað hana mjög á að halda áfram námi. Það varð til þess, að danski sendiherrann útvegaði henni aðgang sem nemanda að konunglega leikskólanum í Kaupmannahöfn og þangað fór hún í fyrra haust. Hún hefir hlotið lofsamlegan vitnisburð kennara sinna og mun að náminu loknu hverfa heim aftur til Ísafjarðar. Verður hún þá að sjálfsögðu ráðunautur og leiðbeinandi leikfjelagsins þar og ein af aðalleikkonum þess.

Í nánu sambandi við þetta er till. um styrk til Gunnars Hallgrímssonar, til þess að kynna sjer stjórn hljómsveita erlendis og ljúka námi í fiðluleik. Þessi maður hefir síðustu 6 árin staðið fyrir hljómsveit á Ísafirði. Hann hefir stundað nám hjá góðum kennurum í Reykjavík í 2 vetur og haft af því ærinn kostnað. Hljómsveitin á Ísafirði á alt sitt undir honum, en hann vill ekki halda áfram við það starf sitt, nema hann geti aflað sjer viðbótarþekkingar í þessum fræðum. Bæði Sigrún og Gunnar eru alveg efnalaus. Þau hafa ekki annað en handafla sinn og hvorugt þeirra á aðstandendur, sem geti styrkt þau að ráði til náms og utanfarar. Ef Alþingi bregst ekki vel við þessu, verða þau bæði að hætta við frekara nám. Væri það illa farið. Hljómlist og leiklist þarf að efla víðar en hjer í Reykjavík.

Þá er síðasti liður till. um styrk til Jónasar Tómassonar, til þess að kynna sjer nýjungar í hljómlist erlendis og undirbúa útgáfu tónsmíða sinna.

Í raun og veru ætti að vera óþarft að tala mörg orð um þessa till. Jónas er þegar orðinn þjóðkunnur maður. Hann hefir gefið út mörg sönglög og hlotið lofsamleg ummæli hinna fróðustu manna á þessu sviði. Nú á hann býsna mikið af verkum, sem ekki er fullgengið frá, en sem hann hefir mikinn hug á að gefa út, og væri áreiðanlega mikill fengur fyrir okkur, ef það gæti orðið. Jónas er organleikari kirkjunnar á Ísafirði, eini söngkennarinn þar og hefir staðið fyrir fjölda samsöngva bæði á Ísafirði og víðar. Jeg minnist þess ekki að hafa sjeð önnur ummæli um hann eða verk hans en hin lofsamlegustu. Það mætti geta þess, að einu sinni kom til orða, að kennari yrði sendur til Noregs til þess að læra að stjórna söngsveitum við skóla, og sá, sem skólastjóri kennaraskólans fyrst sneri sjer til, var Jónas Tómasson. Magnús Helgason sagði, að hann þekti engan mann, sem hæfari væri til þeirra hluta. En sjerstakar ástæður urðu þess valdandi, að ekkert varð úr þessu ferðalagi.

Þá á jeg, ásamt 2 hv. þm. öðrum, XXIX. brtt. á þskj. 345. Er hún um það að hækka styrkinn til Þórbergs Þórðarsonar úr 1200 kr. upp í 2400 kr. Fyrir þessu ætti ekki að þurfa mikið að mæla. Þórbergur Þórðarson hefir á undanförnum átum fengist mikið við orðasöfnun og mun nú vera búinn að safna 40–50 þús. orðum. Má vera, að sumum finnist þetta ekki mikið, þeim sem halda, að hjer sje um það að ræða að orðtaka bækur. En þegar þess er gætt, að þetta safn er tekið af munni þjóðarinnar og að í því er fjöldi fágætra orða, sem ella mundu hafa glatast, ef þeim væri ekki safnað og þau skrásett, þá ættu menn betur að skilja, hversu mikið og þarft verk Þórbergur hefir unnið. Þetta mikla safn mun án efa síðar verða metið að verðleikum. Og hætt er við, að orðabókin, sem væntanlega kemur einhverntíma, hefði orðið fátæklegri, ef ekki hefði notið Þórbergs við. Auk þess er Þórbergur einhver hinn allra snjallasti rithöfundur, sem við eigum, og sá allra listfengasti maður á íslenskt mál, sem jeg hefi kynst. Er það eitt næg ástæða til að hækka styrk til þessa manns. Nú er sá maður, sem Alþ. hefir styrkt til samningar orðabókarinnar, fallinn frá, og engin upphæð veitt til áframhalds því starfi hefir verið tekin upp í frv. stj. Virðist mjer því sjálfsagt að hækka styrkinn til Þórbergs, svo hann geti betur gefið sig við orðasöfnuninni, meðan ekki er annað unnið að orðabókinni. Og þeir, ef nokkrir eru, sem kynnu að telja það starf lítilsvert, ættu að minnast þess, hver ritsnillingur hann er. Gætu þeir þá greitt atkv. með brtt. okkar af þeim ástæðum.

Vil jeg svo vísa þessum brtt. mínum til hv. þd. til trausts og halds.