18.04.1929
Neðri deild: 48. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1387 í B-deild Alþingistíðinda. (716)

16. mál, fjárlög 1930

Jóhann Jósefsson:

Mörg eru þau erindi, sem legið hafa fyrir hv. fjvn., sem hún hefir ekki sjeð sjer fært að sinna. Geta verið veigamiklar ástæður fyrir synjun hennar á upptöku sumra þeirra. En aftur eru það önnur erindi af þeim, sem frá var vísað af hv. fjvn., sem mjög mun orka tvímælis um, að rjettmætt hafi verið að hafna.

Jeg hefi nú leyft mjer að taka upp eina slíka beiðni og flyt brtt. um það á þskj. 345. Það er XXIII. brtt. á því þskj. og er þess efnis, að Björgu Sigurðardóttur verði veittur utanfararstyrkur, 1500 kr., og í öðru lagi styrkur til að halda uppi kenslu í síldarmatreiðslu. 2000 kr., eða alls 3500 kr. Þessi ungfrú sótti um þennan styrk til fjvn., en n. veitti henni enga áheyrn. Jeg er nú á gagnstæðri skoðun við hv. fjvn. um rjettmæti þeirrar synjunar. Hygg jeg, að hv. fjvn. hafi annaðhvort ekki hirt um að kynna sjer málavexti og dugnað þessarar konu, eða ekki haft tíma til þess eða þá engan áhuga haft fyrir því, að Íslendingar lærðu að hagnýta sjer síld til matar. Nú má segja, að Íslendingar eti alls ekki síld og sjerstök andúð hefir verið gegn því að eta hana til þessa tíma.

Jeg þekki umsækjanda ekkert annað en það, að hún kom út í Vestmannaeyjar í fyrra og kendi þar matreiðslu síldar. Kendi ungfrú Björg í tólf stöðum í fyrra á Vesturlandi, Suðurlandi og Norðurlandi og hafði alls 360 nemendur, og hafði hver þeirra lært matreiðslu á 20 rjettum eftir námið. Aðferðin, sem ungfrú Björg hafði, sýnir, að hún hefir unnið að þessu á „praktiskan“ hátt. Hún hafði þá reglu, að bjóða hópi manna daglega til að bragða á þeim rjettum, sem framreiddir voru. Var það til þess, að margir kyntust þeim rjettum, sem ungfrúin bjó til úr síldinni. Er þetta heppileg aðferð til að kynna síldina og gera hana vinsæla sem fæðutegund meðal fólks. Það er oft barmað sjer yfir því, að fólk kunni ekki að hagnýta sjer þessa hollu, næringarmiklu og vitaminríku fæðutegund. En þjóðin breytir ekki alt í einu matarhæfi sínu. Það þarf að leggja mikla vinnu í það að útvega nýrri fæðutegund útbreiðslu og til þess þarf oft fleiri ár, því fólk er seint til þeirra hluta. Þingið þarf því að styðja þessa viðleitni. Þessi umsækjandi er nú víða kunn vegna þeirra 1/2 mán. námskeiða, sem hún hjelt víða um land í fyrra. Var hún mjög áhugasöm og dugleg í því starfi sínu. Jeg skal geta þess, að jeg flyt ekki þessa till. vegna ungfrú Bjargar. Hún er hraust og dugleg og fær í flestan sjó og í engum vandræðum með atvinnu. Jeg flyt hana aðeins vegna nauðsynjar þeirrar, sem á því er, að fólk læri að hagnýta sjer þennan ágæta mat. En til þess þarf að kenna því að matreiða og eta þennan ágæta mat. Einn hv. þm. sagði, að ekki þyrfti að kenna fólki að borða síld. Allir kynnu að matreiða hana, með ediki og lauk og eta hana með brauði. En rjettir ungfrú Bjargar eru fjölbreyttir og mjög vel við flestra smekk. Þó er því ekki til að dreifa, að mikið sje í þá borið eða dýr efni sjeu notuð í þá. Þar er aðeins um einfalda og ódýra notkun að ræða í öllum atriðum. Ungfrú Björg hefir lært matreiðslu hjá Svíum, og þeir kunna manna best að matreiða síld á einfaldan og ódýran hátt. Hún hefir nú þegar lært að búa til 20 rjetti úr síld og vill auka við þá kunnáttu sína með því að fara utan til frekara náms. Jeg vil benda á það, að hún hefir kent á þessum stöðum: Hafnarfirði, Grindavík, Álftanesi, Borgarnesi, Hnífsdal, Siglufirði, Hrísey, Akureyri, Vestmannaeyjum og Reykjavík. Hefir hún ágæt meðmæli frá mörgum þessum stöðum. Það er því engin hætta á því, að styrkveiting til hennar fari forgörðum eða verði illa varið. Það má um þessi síldarnámskeið segja, að þau voru lítið undirbúin. Fólk vissi ekki af þeim fyr en kenslukonan var komin á staðinn. Er því merkilegra, hvað árangurinn hefir orðið góður. Jeg vil beina því til hv. þdm., að þeir styðji þessa till., svo góðu starfi verði haldið áfram, og þótt einhverjir hv. þm. álíti ekki þörf á meiri mentun til að kenna þetta, þá samþykki þeir þó síðari liðinn, svo kenslu þeirri, sem byrjuð er, verði haldið áfram.

Þá hafa skátar sótt um nokkurn fjárstyrk til sinnar starfsemi. Hv. fjvn. fer mjög loflegum orðum um starfsemi þessa fjelagsskapar í nál. sínu. Vil jeg, með leyfi hæstv. forseta, lesa úr áliti fjvn. Þar segir svo: „Tveim nýjum liðum er bætt þarna inn, öðrum til „bandalags ísl. skáta“ (500 kr.). Hefir það með höndum holla og góða starfsemi meðal æskumanna, sem nefndin álítur, að sje viðurkenningar makleg“. — Þetta er rjett á litið hjá hv. n. En hún hefir numið um of við neglur sjer fjárveitingu til þessa. 1000 kr. er hið minsta, sem komast mætti af með til starfrækslu þessa fjelagsskapar eins og hann er nú. Jeg vil upplýsa það, að þessi holli fjelagsskapur, sem æfir fjelaga sína í stundvísi, reglusemi og hjálpfýsi og heiðarleik í hvívetna, hefir nú starfað hjer á landi í 16 ár, og telur nú um 500 drengi, sem skiftast á 10 fjelög. Eru 3 þeirra í Reykjavík, en 7 í kaupstöðum og kauptúnum utan Reykjavíkur. Axel Tulinius, sem altaf hefir verið lífið og sálin í þessum fjelagsskap, stofnaði fyrsta fjelagið á sumardaginn fyrsta 1913. Jeg vil benda á það, að þessi fjelagsskapur er stofnaður á fyrsta sumardag. Enda fylgir sól og sumar starfsemi skátanna í hvívetna. Þar sem fjelög þessi eru nú orðin dreifð um landið, þá þarf heimsóknir, uppörvun og leiðbeiningar og hjálp til að stofna ný fjelög. Fylgir því talsverður kostnaður, auk þess sem kosta þarf til brjefa og prentunar á lögum og reglum skátanna. Er því 500 kr. upphæð alt of lítil. Nú hefir sendimaður verið á ferðalagi meira en mánuð á Ísafirði, Sauðárkróki, Siglufirði og Akureyri. Og nú hefir verið send beiðni um að fá hann til Húsavíkur til að stofna fjelag þar. Sýnir þetta áhuga fyrir þessu máli um land alt. Er því sýnilegt, að meiri fjárstyrk þarf til að halda starfseminni áfram en þann, sem hv. fjvn. leggur til að veittur verði.

Þá er brtt. XXXVI. á sama þskj.: „Til þess að fullgera veg í Vestmannaeyjum, 2/3 kostnaðar, alt að 12000 kr.“ Þessi vegagerð er áframhald þess vegar, sem byrjað er á og áður hefir verið veittur styrkur til, 1926 og 1927, að mig minnir. Annað fje hefir Vestmannaeyingum ekki verið veitt til vegagerða. Þessi vegagerð er hafin vegna þeirrar almennu ræktunar, sem orðið hefir í Vestmannaeyjum á síðustu árum og sem borið hefir þann árangur, að þar, sem áður voru óræktarmóar, er nú komið girt og ræktað land. Jeg hefi gert mjer nokkurt far um að sýna þeim hv. þm., sem leið hafa átt um Vestmannaeyjar, þessar framfarir í ræktun Eyjanna, og hefir það verið einróma álit þeirra allra, að það sje undrunarvert, hversu skjótum stakkaskiftum þetta land hefir tekið, eftir að byrjað hafði verið að leggja vegi, sem gera ræktun mögulega. Í fyrra gerðust þau nýmæli um þessa ræktun, að ungur og efnilegur maður ofan úr Borgarfirði kom þangað með dráttarvjel (traktor) og tók að sjer vinslu á landi í ákvæðisvinnu. Var talsvert unnið á þennan hátt, svo ræktun skilar þar nú drjúgum áfram. Nú er búið að mæla út alt ræktanlegt land, bæði það, sem gott er, og það, sem er miður fallið til ræktunar. Byrjað var að leggja veg í gegnum besta landið. En bráðum verður líka farið að rækta hið lakara landið, hið svonefnda Ofanleitishraun. En þá er nauðsynlegt að leggja veg, til þess að ná þangað áburði frá fiskhúsunum. (BÁ: Er þetta stórt land?). Jeg veit ekki, hve margir hektarar það er. En það hefir alt verið mælt út og það eru ekki fáir verkamenn, sem þarna hafa tekið land til ræktunar. Er svo frá samningum gengið, að þegar þessi svæði verða komin í rækt, verður goldið af þeim árlegt gjald í ríkissjóð. Landskuldir og lóðarleiga er nú 18 þús. kr. En eftir fá ár mun hún fara upp í 20–30 þús. kr., þegar þeir blettir, sem nú er verið að rækta, verða gjaldskyldir. Það var hið besta verk, er Alþ. styrkti þessar framkvæmdir. Enda sjest líka árangurinn greinilega, því þar, sem áður voru óræktarmóar, eru nú komin rennsljett og græn tún. Og þegar litið er til þess, að fólki fjölgar í Vestmannaeyjum og að þar eru nú um 4 þús. manna, þá verður að viðurkenna rjettmæti skoðunar Sigurðar Sigurðssonar búnaðarmálastjóra, sem álítur, að enginn blettur ætti að vera óræktaður þar í Eyjum, sem annars væri hægt að rækta.

Vil jeg svo leggja þessar brtt. mínar undir dóm heilbrigðrar skynsemi hv. þdm.