19.04.1929
Neðri deild: 49. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1416 í B-deild Alþingistíðinda. (724)
16. mál, fjárlög 1930
Magnús Torfason:
Jeg á brtt. á þskj. 345, þar sem farið er fram á, að gefið verði upp viðlagasjóðslán það, sem ríkið veitti vegna Stokkseyrarbrunans. Þetta lán var veitt með því fyrirheiti, að því aðeins kæmi til endurgreiðslu, að þeir, sem að brunanum væru valdir, gætu látið eitthvað af höndum rakna. Nú er útsjeð um, að nokkuð sje af þeim að hafa, og virðist því sjálfsagt, að lánið verði gefið upp samkv. áðurnefndu fyrirheiti.
Þá á jeg einnig XLIV. brtt. á sama þskj., og gengur hún í þá átt, að fara fram á, að Jakobi Gíslasyni verði veittar 1200 kr. til framhaldsnáms í rafmagnsfræði. Jeg skal geta þess, að fyrir tveim árum hafði jeg þá æru og ánægju að mæla með því, að þessum unga manni væri veittur lítill styrkur, sem hann og fjekk. Jeg kallaði hann þá hið græna trjeð, og hann hefir nú sannað þau ummæli mín með því, að hann hefir nýskeð lokið prófi með ágætiseinkunn og þannig gert þjóð sinni mikinn sóma. Hygg jeg það mála sannast, að fáir muni hafa stundað nám sitt með annari eins kostgæfni og hann og verið eins vandir við sjálfa sig. Hann var ári lengur en hann þurfti við háskólanám sitt, því að hann gat ekki sætt sig við annað en að ná þeirri fullkomnustu þekkingu í sinni grein, sem kostur var á. Í þessu hefir komið fram mannkostur, sem varla er hægt að meta sem vert er og alstaðar kemur í bestu þarfir.
Að afloknu prófi hefði honum sjálfsagt staðið opið að ná í lífvænlega stöðu þegar í stað, en í stað þess herðir hann á náminu. Hann lætur sjer ekki nægja, að hann hefir þegar aflað sjer hinnar fullkomnustu bóklegrar þekkingar. heldur vildi hann einnig öðlast hina bestu verklegu fræðslu, sem unt er, og því fjekk hann inngöngu í ríkisraforkustöð Dana í Höfn. Er svo eftirsótt af rafmagnsfræðingum að fá inngöngu þar, að þangað komast ekki menn nema með allra bestu prófum og fyrirtaks meðmælum. Einn af kennurunum við fjöllistaskólann, sem er heimsfrægur maður, mælti svo fast með þessum manni, að honum var leyfð innganga, þótt margir aðrir yrðu frá að hverfa.
En sökum þess, hve aðsóknin er mikil, eru engin laun greidd þeim, sem að komast. Því hefi jeg farið fram á, að honum yrði veittur þessi lítilfjörlegi styrkur fyrir fæði og húsnæði, meðan hann dvelur þarna.
Jeg verð að álíta, að gott sje og nauðsynlegt að styrkja góða Íslendinga til náms í þessari grein, rafmagnsfræðinni. Við erum smám saman að beisla fossana, og sú virkjun verður von bráðar í stórum stíl, og þá verður brýn þörf á nýtum sjerfræðingum til þeirra hluta. Framtíð landsins er bundin við fossana og virkjun þeirra. Og síðan jeg bar þessa till. fram, hefir hæstv. atvmrh. sagt mjer, að stj. vanti einmitt mann til þess að vera henni til leiðbeiningar í þessum efnum. Er enginn vafi á því, að Jakob Gíslason er manna best fallinn til þess. Hefir viljað við brenna, að þeir menn, sem við þvílíkt hafa fengist, hafi ekki verið starfi sínu fyllilega vaxnir. Orsökin til þess hefir þó oft verið sú, að þetta hafa verið menn, sem ekki hafa getað öðlast nægan undirbúning sökum fjárskorts. Hjer er aftur um mann að ræða, sem hefir aflað sjer þeirrar bestu þekkingar, sem völ er á. Jeg vona því, þegar litið er á verðleika þessa manns og þörf landsins, að hv. deild taki vel í þessa málaleitun.