19.04.1929
Neðri deild: 49. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1458 í B-deild Alþingistíðinda. (735)

16. mál, fjárlög 1930

Lárus Helgason:

Mig furðar á því, hvernig hv. fjvn. hefir tekið í styrkinn til áveitu og sandgræðslu í Meðallandi. Eins og kunnugt er, er búið að skýra frá því, hvernig undirbúningi þessa máls er varið. Enda hefir hv. fjvn. haft öll plögg fyrir sjer. Hjer er um heila sveit að ræða, sem er í þessum voða frá náttúrunnar hendi. Ráðunauturinn hefir skýrt frá því, að þarna væru sýnilega 23 þús. hektarar, sem gæti orðið nytjaland, ef hafist er handa um að græða upp landið. Það er líka víst, að þarna eru góð skilyrði fyrir hendi. Kemur þar aðallega tvent til greina. Í fyrsta lagi að girða og í öðru lagi að veita vatni á landið með tiltölulega litlum kostnaði, en sem vitanlegt er, að ber fljótan og góðan árangur.

Jeg hefi verið svo vorkunnsamur við það opinbera, að jeg hefi aðeins farið fram á örlítinn part af áætluðum kostnaði, það allra minsta til þess hægt sje að byrja á framkvæmdum í þessu efni. Jeg hefi aðeins tekið fyrsta og sjálfsagðasta póstinn úr áætlun ráðunautsins til þess að koma í veg fyrir áframhaldandi skemdir. Í sveitinni eru um 30 búendur. Þegar jeg tek til samanburðar það, sem veitt hefir verið til Rangæinga í þessu skyni og hvernig hv. n. hefir tekið málaleitunum þeirra — og er þó síður en svo, að jeg sje að telja það eftir —, þá verð jeg að segja, að mjer er alveg óskiljanleg aðstaða hv. n. til minnar till. Nefndin mælir með 12000 kr. hækkun til Rangárvallasýslu, en á móti 1/4 parti af þeirri minstu upphæð, sem ráðunauturinn leggur til að lagt verði til verndar Meðallandinu. Þetta sannfærði mig um, að það er greinilega ókunnugleiki hv. nm. að kenna, hvernig þeir hafa tekið í till. mína. En jeg er þess fullviss, að þó að sendur yrði óvilhallur maður bæði austur á Rangárvelli og Meðalland til að athuga þetta mál. mundi hann strax sannfærast um, að ekki væri þörfin minni í Meðallandinu en Rangárvöllunum. Enda lágu fyrir skýrslur frá óvilhöllum manni, sem leggur eindregið til, að styrkurinn sje veittur. Samt eru hv. n. svo mislagðar hendur, að hún kemur ekki auga á nauðsyn þessa máls og leggur á móti þeim litla hluta kostnaðarins, sem jeg fer fram á. En jeg vænti þess fastlega, að hv. dm. líti öðruvísi á málið og leggi lið sitt til þess, að þessi sanngjarna og sjálfsagða brtt. mín nái fram að ganga.