19.04.1929
Neðri deild: 49. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1462 í B-deild Alþingistíðinda. (737)
16. mál, fjárlög 1930
Ásgeir Ásgeirsson:
Jeg stend upp vegna fyrirspurnar hv. frsm. um alþingishátíðarnefndina. Jeg skal geta þess, að fyrir 10 dögum var haldinn fundur í nefndinni út af erindi hv. fjvn., og mun n. senda skýrslu um ákvarðanir sínar nú þegar, svo að hv. fjvn. getur tekið afstöðu til þeirra fyrir 3. umr.
Úr því að jeg stóð upp, get jeg tekið það fram, að jeg mun ekki að þessu sinni greiða atkv. með sjerstökum námsstyrkjum til stúdenta, eða flytja till. um þá, þar sem stj. hefir sett ákveðna upphæð í því skyni. En jeg mun fylgja hækkunartill. hv. fjvn., enda tel jeg sjálfsagt, að mentamálaráðið telji sig fyrstu 1–2 árin bundið við fjárveitingar til stúdenta, sem notið hafa sjerstaks styrks í fjárlögum undanfarin ár. Væru það svik við þá, sem byrjað hafa nám með þeim bakhjarli, ef þeir væru sviftir honum áður en þeir hafa notið hans í 4 ár, eins og skylt er lögum samkvæmt.