26.04.1929
Neðri deild: 54. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1490 í B-deild Alþingistíðinda. (748)
16. mál, fjárlög 1930
Sigurður Eggerz:
Þegar fjárl. voru hjer síðast til umr., bar jeg fram till., sem hækkuðu útgjöldin um rúmar 2000 kr., svo að jeg get með góðri samvisku einnig í þetta sinn borið fram smátill., sem þó eru þess eðlis, að þær geta haft mikla þýðingu.
Fyrst er VIII. brtt. á þskj. 408, sem jeg flyt ásamt hv. þm. N.-Þ. og hv. 2. þm. G.-K., um 1500 kr. styrk til Axels Dahlmanns, til tannlækninganáms erlendis. Það er að vísu svo, að í gildandi fjárl. eru stúdentum ætlaðar 24 þús., en sú fjárveiting er miðuð við þá stúdenta, sem stunda nám í erlendum háskólum, svo að þessi maður heyrir ekki þar undir. Þá er líka í núgildandi fjárl. ætlaður sjerstakur styrkur eftir ákvæðum mentamálaráðsins. 4000 kr., sem verður 8000 kr. En þessi maður getur ekki heldur fengið styrk þar, því að sú skoðun er ráðandi í mentamálaráðinu, að styrkveitingarnar miðist eingöngu við þá stúdenta, sem nám stunda við erlenda háskóla.
Ef við nú lítum á ástæðurnar hjer heima, sjáum við, að það er alls ekki nóg af íslenskum tannlæknum hjer. Helstu tannlæknarnir fá sjer danska aðstoðarlækna. Auk þess vantar tannlækna með nægilegri kunnáttu úti um land. Það skiftir miklu máli að fá nóga lærða tannlækna, enda býst jeg við, að hv. dm. viðurkenni það. Þá má geta þess, að faðir þessa manns er ekki svo efnum búinn, að hann geti af eigin ramleik styrkt son sinn til hins dýra náms. Námið tekur 3 ár og nemendur þurfa að greiða ýms gjöld til skólans sjálfs, sem nema um 4000 ísl. kr., auk alls þess kostnaðar við að dvelja erlendis, sem nemandi hjeðan þarf til dæmis að greiða. Það sjá því allir, að hjer er um verulega mikinn kostnað að ræða og mikil ástæða til að hlaupa undir bagga, þar sem um nám er að ræða, sem ekki verður numið hjer heima, en er bráðnauðsynlegt fyrir landið. Að þessu athuguðu sje jeg ekki annað en að eins mikil ástæða sje til að styrkja þennan stúdent og þá, sem nám stunda við erlenda háskóla. Bæði rektor og Guðm. Hannesson hafa gefið þessum manni lofleg vottorð. Hann hefir þegar lesið eitt ár við háskólann hjer.
Jeg hefi þegar gert grein fyrir því, að þessi maður getur ekki fengið styrk af hinum föstu liðum fjárl. Hinsvegar er nám hans mikils virði og fyllilega hliðstætt öðru námi. Faðir hans er ekki svo efnum búinn, að hann geti styrkt hann, og liggur því eigi annað fyrir honum en að hætta námi, ef hið opinbera sjer sjer ekki fært að hjálpa honum. Vona jeg, að hv. deild sjái sóma sinn í því að gera þessum pilti jafnhátt undir höfði og öðrum, sem ekki geta leyst próf af hendi hjer. Má vera, að jeg hafi farið of mörgum orðum um svo sjálfsagða till.